Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Samfélagið býr til skömm í börnunum

Samfélagið býr til skömm í börnunum

Sigríður Gísla­dóttir, vara­for­maður Geð­hjálpar, segir eitt brýn­asta verk­efni sam­tak­anna vera að efla fræðslu og stuðn­ing við börn sem alast upp hjá for­eldrum með geð­rænan vanda. Nánast engin úrræði séu í boði fyrir þann hóp. Sigríður ólst sjálf upp hjá móður með geð­rænan vanda og þekkir því af eigin raun áhrif þess að alast upp við slíkar aðstæður.

Sigríður segir mik­il­vægt að ná til barn­anna eins ungra og mögu­legt er þar sem þau læri smám saman að skamm­ast sín fyrir ástandið. „Mér finnst sam­fé­lagið vera að búa til skömm í börnum for­eldra með geð­rænan vanda,“ segir hún. „Þess vegna skiptir svo miklu máli að við styðjum við þau í æsku, kennum þeim að það sé í lagi að tala um þetta svo við aukum ekki lík­urnar á því að veik­indin fari áfram til næstu kyn­slóðar. Ég upp­lifði það sem barn að það fylgdi því mikil skömm að tala um sjúk­dóm mömmu og mér fannst ég vera algjör­lega ein í þess­ari stöðu, það hefur mikil áhrif á líð­an­ina bæði í æsku og á full­orð­ins­árum.“

Spurð hvernig sam­starfi Geð­hjálpar við skól­ana sé háttað í þessu verk­efni segir Sigríður að það sé á byrj­un­ar­stigi, en sé næsta skref á leið­inni að úrbótum. „Samtökin sem við erum í sam­starfi við, Our time, eru með pró­gramm fyrir skól­ana sem gengur meðal ann­ars út á að tala við kenn­ar­ana og útskýra hvernig eigi að tala við börn um geð­rænan vanda og hvernig sé hægt að aðstoða þau. Í þessum aðstæðum á skól­inn að vera griða­staður, börn eiga að geta leitað til kenn­ara eða ein­hvers í skól­anum sem þau geta talað við. Ég upp­lifði mik­inn kvíða í skól­anum sem barn. Mamma hringdi mig oft inn veika þegar að það voru miklir erf­ið­leikar hjá henni. Skóla­sókn og ein­kunnir mínar voru mér ekki mik­il­vægar í þeim aðstæðum. Það hefði skipt miklu máli fyrir mig að upp­lifa öryggi og stuðn­ing í skól­anum, en í stað­inn var ég skömmuð fyrir slæma mæt­ingu og frammi­stöðu. Ég var aldrei spurð um mína líðan eða ástandið heima. Þess vegna kveið ég því mikið að mæta í skól­ann því þar upp­lifði ég að ég væri óþekk og lélegur nem­andi. Stuðn­ingur og fræðsla fyrir börn sem eiga for­eldri með geð­rænan vanda er bæði réttur barn­anna og for­eldra.“

Börnin hafa enga rödd

Þú segir að þegar þú komst inn í stjórn Geð­hjálpar hefð­irðu byrjað á því að leita svara við því hvort ein­hverjar úrbætur hefðu orðið í þessum mála­flokki síðan þú varst barn, hver er nið­ur­staðan, hefur eitt­hvað breyst? „Nei,“ segir Sigríður ákveðin. „Þetta hefur ekk­ert breyst, því miður, ég vildi að svo væri en ástandið er enn það sama. Það er ekk­ert úrræði fyrir þessi börn og fólk virð­ist ekki setja börnin í fyrsta sæti. Þau hafa engan tals­mann, þau hafa enga rödd og það hlustar eng­inn á þau. Það var alla vega mín upp­lifun og þess vegna finnst mér svo mik­il­vægt að ég nýti rödd­ina mína, núna þegar ég er orðin full­orðin. Nú er hlustað á mig en það hlustar eng­inn á börnin þegar þau eru lítil. Það er líka mjög algengt í þessum aðstæðum að börn verndi for­eldrið, vilji ekki segja frá og séu hrædd um að verða tekin frá for­eldr­inu. Þess vegna er svo mik­il­vægt að búa til umhverfi þar sem þau upp­lifa að þau geti talað um þetta, fengið ráð, fengið stuðn­ing og finni ekki fyrir þess­ari skömm og hræðslu. Það er umhverfi sem ég tel að sé bara alls ekki til staðar á Íslandi og því þarf að breyta.“

Viðtalið í heild er að finna í blaði Geð­hjálpar

Á www.39.is getur þú skrifað undir áskorun þess efnis að setja geð­heilsu í for­gang í sam­fé­lag­inu.

Fólk með sjálfs­vígs­hugs­anir er minnt á Hjálp­ar­síma Rauða kross­ins, 1717, og net­spjallið. Einnig er hægt að leita til Píeta sam­tak­anna og sím­inn opinn allan sól­ar­hring­inn og er 552-2218 og vef­síðan www.pieta.is.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Kynning

Efni unnið í samstarfi við auglýsendur