Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Ragnar segir ekki sama hvernig stolið er: „Glæpirnir finna sér annan farveg, eins og vatnið“

Ragnar segir ekki sama hvernig stolið er: „Glæpirnir finna sér annan farveg, eins og vatnið“
Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR.

Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, segir það skipta sköpum í íslensku sam­fé­lagi hverju er stolið og hvernig því er stolið. Hann segir skattaund­an­skot, mútu­greiðslur, umhverf­is­glæpi og pen­inga­þvætti því miður sett í lit­ríka bún­inga eðli­legra hvers­dags­við­skipta.

Ragnar gerir launa­þjófnað á íslenskum vinnu­mark­aði að umtals­efni í nýrri færslu sinni á Facebook. Þar segir hann íslenska elítu vilja við­halda þjófn­aði svo ekki fari að ískra í hjólum atvinnu­lífs­ins. „Það er ekki sama hvernig þú stelur og hverju er stolið. Sjálf­taka og snún­ingar innan fjár­mála­kerf­is­ins eru við­tekin venja. Inn­herj­a­við­skipti og vinadílar á kostnað almenn­ings­hluta­fé­laga eru flokk­aðir sem „djöf­ullsins snilld“ fína fólks­ins enda of mikið vesen að gera veður úr slíku þegar und­ir­fjár­magn­aðar rann­sókn­ar­stofn­anir eða gagns­lausir eft­ir­lits­að­ilar mega sín lít­ils gegn fjár­sterkum hags­muna­öflum. Fjár­veit­ingar stjórn­valda ramma inn lög­gjafann til að elt­ast frekar við lamba­læri og snúða en millj­arða und­an­skot,“ segir Ragnar.

Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, fjall­aði einnig nýlega um launa­þjófnað á vinnu­mak­aði. Benjamín Halldór Þor­bergs­son, fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins brást þá ókvæða við og sak­aði verka­lýðs­fé­lögin ómál­efna­legan og veru­leikafirrtan mál­flutn­ing.

„Á meðan launum og líf­eyr­is­sparn­aði er stolið af vinn­andi fólki án afleið­inga getum við verið viss um að lítið muni breyt­ast í okkar sam­fé­lagi.“

Ragnar segir aðstöðumun­inn í þjóð­fé­lag­inu hróp­andi þar sem fjár­muna­öflin eru höf­undar kerf­is­ins. „Of langt mál er að telja upp þá snún­inga sem útrásar­prins­arnir tóku á eft­ir­launa­sjóðum almenn­ings fyrir hrun, og ein­göngu var sak­fellt fyrir brot af þeim málum, á meðan heim­ilum og ein­stak­lingum blæddi út. Sú sorg­lega stað­reynd er að lítið sem ekk­ert hefur breyst og margt sem bendir til að staðan hafi versnað til muna. Spill­ingin og glæp­irnir taka á sig önnur form og finna sér annan far­veg, eins og vatnið,“ segir Ragnar og bætir við.

„Launa­þjófnað verðum við að hafa óáreittan, segja sér­hags­muna­öflin, sem beita sér af mik­illi hörku gegn því að refsi­lögum verði komið yfir eitt af fjöl­mörgum tólum sem sér­hags­muna­öflin hafa notað til að græða eða koma ábyrgð­inni yfir á aðra ef braskið fer illa. Skattaund­an­skot, mútu­greiðslur, umhverf­is­glæpir og pen­inga­þvætti eru settir í lit­ríka bún­inga eðli­legra hvers­dags­við­skipta sem elítan verður að fá að hafa fyrir sig svo ekki fari að ískra í hjólum atvinnu­lífs­ins. Á meðan launum og líf­eyr­is­sparn­aði er stolið af vinn­andi fólki án afleið­inga getum við verið viss um að lítið muni breyt­ast í okkar sam­fé­lagi og munum við áfram búa við tvö­falt sið­ferði og tvö­falt dóms­kerfi þar sem skil­grein­ingin á því hvernig þú stelur er túlkuð eftir stétt og stöðu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum