Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, segist fegin því að hafa verið með grímu í heimsókn sinni í Hagkaup í Skeifunni í gær. Þar lenti hún í vandræðalegri senu með hressum kassadreng verslunarinnar.
Verkalýðsforinginn lýsir þessari reynslu sinni í færslu á Facebook. Í Hagkaup hélt hún til að undirbúa sig undir kosningarvöku með fjölskyldunni fyrir bandarísku forsetakosningarnar.
„Fór í Hagkaup í Skeifunni og keypti tónik og 2 lime. Hef boðið Magga og börnum á kosningavöku. Er að ímynda mér að ég verði ennþá vakandi á miðnætti og ætla bjóða uppá léttar veitingar og einn eða tvo sjússa. Drengurinn á kassanum æpti á mig rosa glaður í gegnum grímuna sína: „Á að fara að djamma? Má það?“
Hehe hló ég vandræðalega, hehehe. Gott að ég var með grímu,“ segir Sólveig.































Athugasemdir