Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Jóhannes lögmaður Covid-skipstjórans: „Reyna draga upp myndina góðir á móti vondum“

Jóhannes lögmaður Covid-skipstjórans: „Reyna draga upp myndina góðir á móti vondum“
Sveinn Geir Arn­ars­son, skip­stjóri Júlíusar Geir­munds­sonar.

Jóhannes Bjarni Björns­son, lög­maður skip­stjór­ans á frysti­tog­ar­anum Júlíus Geir­munds­son ÍS, hefur neitað að leggja fram skips­dag­bók tog­ar­ans að svo stöddu. Í sam­tali við Mannlíf segir hann það gert vegna per­sónu­vernd­ar­sjón­ar­miða og að bókin verði ekki afhend nema stétt­ar­fé­lögin leggi fram umboð skip­verj­anna um afhend­ing hennar. Fáist sam­þykkið ekki kemur til greina að afhenda skips­bók­ina en þá aðeins þegar þeim upp­lýs­ingum sem snúa að Covid-veik­indum áhafn­ar­innar hefur verið eytt.

Líkt og Mannlíf greindi frá hefur sjó­prófum vegna Covid-túrs frysti­tog­ar­ans Júlíusar Geir­munds­sonar ÍS hefur verið frestað. Stétt­ar­fé­lögin sem kærðu útgerð­ina, Hrað­frysti­húsið Gunnvör, telja það bæði óeðli­legt og dula­fullt af hverju skips­bókin fæst ekki afhend taf­ar­laust. Bókin sú svipar til hins svo­kall­aða „svarta kassa“ um borð í flug­vélum og er lyk­il­gagn þegar kemur að fyr­ir­hug­uðu sjó­prófi.

Það var Jóhannes sem ekki vildi afhenda bók­ina nema að upp­fylltum áður­nefndum skil­yrðum. Það gerir hann fyrir hönd Sveins Geirs Arn­ars­sonar skip­stjóra. Aðspurður hvers vegna skjól­stæð­ingur sinn hafi ekki bara viljað afhenda sjó­bók­ina athuga­semda­laust segir lög­mað­ur­inn þetta snú­ast um reglur. „Það er ekki búið að hafna einu eða neinu. Upp­lýs­ingar um veik­indi eru per­sónu­upp­lýs­ingar. Sá sem biður um bók­ina þarf að vera með heim­ild til að fá hana. Þeir þurfa bara að koma með þau umboð. Þetta snýst um að fylgja reglum því þarna er verið að biðja um upp­lýs­ingar um veik­indi ein­hvers og heim­ild frá þeim aðila þarf að leggja fram. Hver og einn ræður því hvort upp­lýs­ingar um sig séu látnar af hendi til þess­ara aðila,“ segir Jóhannes.

Aðspurður hvað ger­ist neiti allir eða ein­hverjir skip­verj­anna að heilsu­fars­upp­lýs­ingar þeirra séu afhendar segir Jóhannes það ekki flókið. Hann segir að þá yrði ein­fald­lega strikað yfir upp­lýs­ingar í sjó­bók­inni. „Þá fá þeir bara ein­hverjar upp­lýs­ingar en aðrar ekki. Þeir geta alltaf fengið dag­bók­ina án upp­lýs­ing­anna um veik­indi ein­stakra manna, það stendur alltaf til boða og þeir geta fengið það strax. Um leið og umboðin hafa verið afhend þá fá þeir þessar upp­lýs­ingar. Við erum að fara eftir settum reglum og það er eng­inn að tefja neitt eða gera eitt­hvað sem er óvenju­legt, skrítið eða eitt­hvað annað. Það að þetta hindri að sjó­próf fari fram er nátt­úr­lega ekki rétt, það er verið að reyna draga upp ein­hverja mynd sem er ekki rétt. Góðir á móti vondum,“ segir Jóhannes.

Líkt og Mannlíf greindi fyrst frá fór frysti­tog­ar­inn Júlíusi Geir­munds­syni í frægan Covid-túr þar sem útlit er fyrir að veikum sjó­mönnum hafi verið haldið á sjó svo vikum skiptir og neyddir til vinnu. Þá hefur útgerðin orðið upp­vís að því að hlýða ekki sótt­varn­ar­lækn­inum á Vest­firði sem gaf ítrekuð til­mæli þess efnis að tog­ar­anum yrði stýrt í land svo áhöfnin kæm­ist í sýna­tökur. Það var ekki gert fyrr en þremur vikur eftir brott­för. Á end­anum tóku stétt­ar­fé­lög skip­verja sig saman og kærði skip­stjór­ann og útgerð­ina til lög­reglu. Nú berj­ast félögin fyrir því að fá skips­dag­bók­ina afhenda og kemur það til kasta dóm­stóla að skera þar úr.

Sveinn Arn­ars­son, skip­stjóri á Júlíusi Geir­munds­syni ÍS, hefur und­an­farið verið einn í skot­lín­unni vegna mis­tak­anna sem leiddu til þess að áhöfn hans veikt­ist af Covid 19 og þurfti að berj­ast við sjúk­dóm­inn á hafi úti svo vikum skiptir. Stjórn útgerð­ar­innar lýsti fullu trausti til Einars Vals Krist­jáns­sonar fram­kvæmda­stjóra sem beðið hefur áhöfn­ina afsök­unar á fram­ferðínu gegn þeim.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina