Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

„Kærasti minn varð mjög hissa þegar ég brotnaði niður“

Ég hef verið með búlimíu í fjögur ár. Fyrir fimm árum kynnt­ist ég strák og við höfum nú verið trú­lofuð í ár. Hann er þrjóskur og ákveð­inn og í hvert skipti sem við deilum endar það ævin­lega með því að ég verð að biðj­ast afsök­unar jafn­vel þótt hann eigi sök­ina. Þetta hefur leikið mig þannig að ég er farin að taka átköst og kasta síðan upp.

Við búum núna sitt í hvoru lagi en bjuggum saman þar til fyrir nokkrum vikum að mamma krafð­ist þess að ég kæmi heim til sín og við tækjum okkur hvíld hvort frá öðru. Mamma var farin að hafa áhyggjur af mér. Við tölum samt saman á hverjum degi og hann hefur verið ofboðs­lega leið­in­legur við mig síðan ég flutti út.

Það er kannski ágætt að rekja sím­tal á milli okkar því það er lýsandi fyrir þá hegðun sem særir mig hvað mest. Við vorum að spjalla saman og gera fram­tíð­ar­á­ætl­anir en við eigum okkur draum sem við tölum oft um. Að þessu sinni tók hann lítið undir með mér og svar­aði eig­in­lega út í hött. Ég spurði hvað væri að en fékk engin almenni­leg svör. Þá sagð­ist ég ekki nenna að tala við hann ef hann gæti ekki talað við mig á nota­legum nótum. Hann baulaði á mig og ég skellti á.

Beið eftir símtali sem ekki kom

Ég beið í dágóða stund eftir að hann hringdi aftur í mig en hann hringdi ekki. Að lokum gafst ég upp og hringdi. Hann svar­aði ekki í sím­ann. Ég hringdi nokkrum sinnum þetta kvöld en hann svar­aði aldrei. Ég sendi honum þá SMS og bað hann að svara mér eða hringja strax því ég þyrfti að tala við hann en ekk­ert heyrð­ist frá honum. Mamma sagði mér að láta hann vera og sagði að ef hann léti ekki í sér heyra þá hefði hann greini­lega engan áhuga á mér.

Mér leið hroða­lega illa en ég fór að ráðum mömmu og lét hann í friði í tvo daga. Ég gekk um með hnút í mag­anum og gat ekk­ert borðað. Ég er í skóla og átti mjög erfitt með að ein­beita mér að lestr­inum. Mamma sá hversu hræði­lega mér leið og á end­anum hringdi hún í hann og spurði hvort hann ætl­aði að láta sam­band okkar enda svona. Hann sagð­ist ekki ætla að ræða það við hana. Hún spurði hann þá hvort hann vildi ekki ræða það við mig og hann svar­aði því ját­andi.

Þegar ég kom í sím­ann skellti hann á. Ég sendi SMS og bað hann um að hringja þegar hann gæti. Mörgum klukku­tímum seinna hringdi hann og þá var ég hágrát­andi. Ég skamm­aði hann fyrir að hafa ekki svarað mér og fyrir að fara svona illa með mig. Það eina sem hann sagði var: „Þú skelltir á og að skella á ein­hvern er hel­ber dóna­skapur. Auk þess er það varla til marks um að maður vilji tala við við­kom­andi þess vegna svar­aði ég ekki þegar þú hringdir.“ Ég sagði honum að mér hefði sárnað við hann og spurði hvort það skipti engu máli. Þá sagði hann: „Ég nenni ekki að standa í svona þvargi og kjaftæði.“

Baðst afsökunar

Þetta sam­tal end­aði með því að ég bað hann afsök­unar á að hafa skellt á hann og sagð­ist hafa hegðað mér eins og asni. Hann sagði þá að við skyldum bara gleyma þessu. Næstu daga á eftir var sam­band okkar sæmi­lega eðli­legt. Núna er sam­band okkar þannig að alltaf þegar ég krefst ein­hvers og fer fram á að hann sýni mér athygli og hlýju þá enda sam­skiptin ein­hvern veg­inn svona. Það er alltaf ég sem leita sátta og ég þarf ævin­lega að brjóta odd af oflæti mínu.

Samband okkar er oft gott og hann getur verið mjög góður við mig. En það er ein­hvern veg­inn ekki nokkur leið að tala við hann eða útkljá deilu­efni. Í hvert skipti sem það er reynt fer hann í fýlu og lokar sig af. Hann neitar iðu­lega að tala við mig og honum virð­ist vera alveg sama þótt ég hafi ekk­ert sam­band við hann. Mér finnst hann aldrei neitt miður sín þótt allt hafi farið í kalda kol á milli okkar og það að ég fór heim til mömmu hefur ekki orðið til þess að bæta sam­skiptin.

„Mér leið hroða­lega illa en ég fór að ráðum mömmu og lét hann í friði í tvo daga“

Ég á mjög erfitt með að skilja hvernig hann getur lokað sig gjör­sam­lega frá öllu. Þegar við ríf­umst eða eitt­hvað kemur upp á finnur hann ekki fyrir því. Mamma heldur að það sé vegna þess að honum sé alveg sama um mig. Ég trúi ekki að það sé rétt. Hann hjúfraði sig iðu­lega að mér á næt­urnar og hvísl­aði að mér hversu vænt honum þætti um mig og sagð­ist ekki geta verið án mín. Ég held að það sýni að hann elskar mig. Hann á hins vegar mjög erfitt með að ræða málin og leysa deilur. Ef ein­hver er ekki á sömu skoðun og hann þá finnst honum það til marks um að við­kom­andi sé á móti honum.

Borðaði og kastaði upp á víxl

Vegna þessa var ég farin að borða á mjög óeðli­legan hátt. Þetta byrj­aði með því að ég vildi grenna mig. Ég hélt kannski að kærast­inn yrði ánægð­ari með mig ef ég væri svo­lítið grennri. Ég nennti ekki að stunda lík­ams­rækt og mér datt í hug að snið­ugt væri að stinga putt­anum ofan í kok og æla þegar ég hafði borðað of mikið. Þannig gæti ég borðað það sem ég vildi en samt grennst. Fljót­lega fór ég að grenn­ast en þetta átmynstur varð að áráttu. Mér fór að líða ein­hvern veg­inn betur við það að borða og æla svo gjör­sam­lega öllu. Stundum gerði ég þetta oft á dag.

Ég fór út í búð á kvöldin og keypti alls konar sæt­indi, kökur, kex og nán­ast allt sem hönd á festi. Stundum keypti ég meira að segja beikon og alls konar feit­meti, eld­aði það og át. Um leið og ég var búin að borða fór ég inn á kló­sett og ældi og ældi. Ég var farin að finna fyrir mátt­leysi og van­líðan en það varð ekki til þess að ég hætti þessu. Það var bók­staf­lega eins og ég réði ekki neitt við neitt. Mamma tók eftir að eitt­hvað væri að en ég reyndi að halda þessu leyndu. Kærasti minn tók hins vegar ekki eftir neinu og hann varð mjög hissa þegar ég brotn­aði niður og ját­aði fyrir mömmu hvað ég hefði verið að gera.

Mamma krafð­ist þess þá að ég kæmi heim með sér og sagði við kærast­ann minn að það yrði að taka á þessu máli og best væri að ég væri hjá sér meðan verið væri að vinna í þessu því hún gæti þá betur fylgst með mér. Hann sagði ekk­ert en ég sá að honum mis­lík­aði. Hann tal­aði samt við mig og var reglu­lega almenni­legur fyrstu dag­ana eftir að ég kom til mömmu. Að und­an­förnu hefur sam­bandið hins vegar versnað og hann verður alltaf leið­in­legri og leið­in­legri við mig.

Á réttri leið

Í gær var lið­inn mán­uður síðan ég kastaði upp sein­ast. Ég er líka farin að stunda lík­ams­rækt og mamma kom mér í sam­band við nær­ing­ar­ráð­gjafa sem hefur búið til mat­seðil handa mér. Ég fer eftir því sem ráð­gjaf­inn segir og þetta gengur bara ágæt­lega. Ég er í mun betra formi en áður og lík­am­inn lítur vel út. Ég var farin að fá bjúg og var þess vegna oft bólgin og þrútin í framan og á höndum og fótum. Það er alveg horfið. Nær­ing­ar­ráð­gjaf­inn hefur sagt mér hvað ég get gert lík­ama mínum með því að borða ekki og m.a. sagði hann mér að ég gæti eyði­lagt tenn­urnar í mér með því að kasta svona mikið upp.

„Hann sagði ekk­ert en ég sá að honum mis­lík­aði. Hann tal­aði samt við mig og var reglu­lega almenni­legur fyrstu dag­ana eftir að ég kom til mömmu.“

Mamma vildi að ég færi til sál­fræð­ings en ég hef enn ekki viljað fara. Ég vil frekar reyna að gera þetta sjálf. Mér finnst þetta ganga óskap­lega vel og þrátt fyrir deilur milli mín og kærastans hef ég ekki fallið og farið að borða eins og vit­leys­ingur. Ég held að mamma vilji að ég hætti með kærast­anum mínum og hún haldi að sál­fræð­ingur geti talið mig á það. Ég er hins vegar ekki til­búin að gef­ast upp á honum strax. Hann hefur beðið mig að koma til baka og búa með sér en ég sagði nei. Ég finn að ég er enn ekki nógu sterk til þess.

Hvort ég verð það ein­hvern tíma á bara eftir að koma í ljós. Ég veit að mamma hefur rétt fyrir sér þegar hún segir að karl­menn sem raun­veru­lega séu ást­fangnir af konum sýni það þannig að ekki verði um villst. Hún telur að kær­asti minn vilji bara stjórna mér og fýlan sé hans tæki til þess. Ég veit að þetta er rétt en okkur líður samt oft­ast það vel saman að ég trúi því að þessu sé hægt að breyta og að við getum fundið leið til að tala saman og leysa okkar mál.

Hægt er að hlusta á Lífs­reynslu­sögur Vikunnar á Storytel. Guðrún Óla Jóns­dóttir, Gógó, blaða­maður hjá Vikunni, les upp lífs­reynslu­sögur sem sendar hafa verið inn í blaðið í gegnum tíð­ina og sög­urnar eru jafn ólíkar og þær eru margar. Ekki missa af því þegar nýr þáttur af Lífs­reynslu­sögum fer í loftið í viku hverri – fylgstu með okkur á Facebook.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Frétt

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Fólk

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Var á reist árið 1979
Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina