Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Guðni syrgir röddina sem allir þekkja en nú er þögnuð: „Hvað segir hann í dag?“

Guðni syrgir röddina sem allir þekkja en nú er þögnuð: „Hvað segir hann í dag?“

Fyrrum ráð­herr­arnir, Guðni Ágústs­son og Sig­hvatur Björg­vins­son, minn­ast fall­ins félaga með fögrum orðum í minn­ing­ar­greinum í Morg­un­blað­inu í dag. Sá félagi var Gissur Sig­urðs­son frétta­maður sem lést 5. apríl síð­ast­lið­inn og lætur eftir sig fjögur börn og eina fóst­ur­dóttur. Útför Gissurar hefur ekki farið fram en verður aug­lýst síðar.

Gissur fædd­ist 7. des­em­ber 1947 í Hraun­gerði í Flóa. Níu ára gam­all flutti Gissur á Selfoss og bjó þar fram undir tví­tugt. Á ung­lings­árum starf­aði hann við hin ýmsu störf til sjós og lands, stund­aði flug­nám og afl­aði sér rétt­inda sem einka­flug­maður. Árið 1979 hóf Gissur störf sem blaða­maður á Alþýðu­blað­inu, var um skeið rit­stjóri Sjáv­ar­frétta og fór þaðan yfir á Dag­blaðið. Gissur varð síðar frétta­maður á Rík­is­út­varp­inu og gat sér þar orð meðal ann­ars fyrir mann­lífs- og sjáv­ar­út­vegs­fréttir. Þekkt­astur er hann lík­lega fyrir störf sín þegar hann færði sig yfir á Bylgjuna og flutti þar morgun- og hádeg­is­fréttir með mik­illi prýði.

Það var einmitt á Alþýðu­blað­inu sem þeir Gissur og Sig­hvatur kynnt­ust. „Einn af þeim ungu mönum, sem komu til starfa á Alþýðu­blað­inu á meðan ég starf­aði þar, var Gissur Sig­urðs­son. Hann var mik­ill og góður sam­starfs­maður sem vann sér fljótt álit og helg­aði sig síðan því starfi, sem hann hóf á Alþýðu­blað­inu, og gat sér hvar­vetna mjög gott orð. Ekki bara hjá þeim, sem hann stund­aði vinnu hjá, heldur einnig og ekki síður hjá þeim, sem hann starf­aði fyrir – fólk­inu í land­inu,“ segir Sig­hvatur og bætir við:

„Ég á margar og góðar minn­ingar frá þeim árum, sem við Gissur störf­uðum saman á Alþýðu­blað­inu. Ekki bara um hann heldur allt það góða fólk, sem með okkur vann. Þeir, sem eftir eru, verða að láta sér nægja að orna sér við minn­ing­arnar. Það geri ég nú, þegar ég kveð minn gamla starfs­fé­laga. Orna mér ekki bara við minn­ing­una um hann heldur okkar gamla vinnu­stað og alla þá, sem þar voru dag­legir félagar, oft á erf­iðum stundum. Góður og gegn blaða- og frétta­maður er fall­inn frá. Að honum er eft­ir­sjá.“

„Hann las aldrei fréttir. Hann sagði þær. Oft fékk maður á til­finn­ing­una að hann væri að tala við mann sjálfan í eld­hús­inu heima“

Guðni minn­ist Gissurar sem fyr­ir­myndar frétta­manns og töfr­andi sagna­manns. „Gissur Sig­urðs­son vakn­aði fyrir allar aldir, við fyrsta hana­gal. Hann var morg­un­maður þjóðar sinnar sem hafði skannað landið og miðin þegar aðrir fóru á fætur. Hann var frétta­maður af bestu gerð, for­vit­inn sagna­þulur sem kunni þá list að gæða mál sitt töfrum sagna­manns­ins og segja þjóð sinni frá atburðum líð­andi stundar. Morg­un­stund gaf honum gull í mund og sjálf­sagt hefur hann byrjað dag­inn við sól­ar­upp­rás með bleksvörtu kaffi,“ segir Guðni í minn­ing­ar­grein sinni.

Guðni segir að þræðir Gissurar hafi víða legið og hvar­vetna hafi hann unnið sér inn trúnað og vin­áttu manna. „Gissur átti vin­sældum að fagna sem útvarps­maður og það lá alltaf spenna í loft­inu: „Hvað segir hann í dag?“ Það var oft fár og eld­ing í orðum meist­ar­ans. Mál­róm­ur­inn var djúpur og magn­aður og þegar mikið lá við og alvar­leg tíð­indi bar að garði dýpkaði röddin. Errin urðu fleiri í fram­burð­inum. Fólkið lifði sig inn í atburði dags­ins. Hann las aldrei fréttir. Hann sagði þær. Oft fékk maður á til­finn­ing­una að hann væri að tala við mann sjálfan í eld­hús­inu heima. Svo þegar þannig viðr­aði í dauðum sjó frétt­anna ískraði allt af hlátri og atburð­irnir fengu á sig mynd ævin­týr­anna,“ segir Guðni og heldur áfram:

„Æsku­heim­ili Gissurar í Hraun­gerði og Selfossi var háskóli í mann­legum sam­skiptum. Það gerði Gissur djarfan og skiln­ings­ríkan um mann­lega reisn og rétt fólks­ins. Hann var lausastur allra manna við að gera sér manna­mun og þrátt fyrir að bera þá sig­ur­kór­ónu að vera tal­inn skemmti­leg­astur allra var hann líka maður sem undi vel einn og með sjálfum sér. Minn­ingin lifir um góðan dreng.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum