Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Að finna frið í hamstola heimi

Að finna frið í hamstola heimi

Nútíma­líf ein­kenn­ist af streitu og margir eiga erfitt með að takast á við hana og finna frið í heimi sem virð­ist ham­stola. Hagnýt núvit­und getur hjálpað okkur að beisla hug­ann og læra að njóta lífs­ins betur. Bryndís Jóna Jóns­dóttir, ráð­gjafi og núvit­und­ar­kenn­ari, segir okkur frá því hvernig hægt sé að finna frið og ró, gæta að heils­unni og geð­rækt í nútíma­lífi.

Bryndís Jóna er náms- og starfs­ráð­gjafi og hefur unnið í mennta­kerf­inu í yfir tutt­ugu ár. „Ég vann lengst af í Flens­borg­ar­skól­anum í sextán ár þar sem ég sinnti ýmsum störfum, svo sem mannauðs­stjórnun og verk­efna­stjórnun Heilsu­efl­andi fram­halds­skóla. Sá skóli hefur verið í for­ystu um þróun og inn­leið­ingu þeirrar hug­mynda­fræði í sam­starfi við Embætti land­læknis. Þegar við vorum að leggja grunn að geð­rækt­ar­þema árið 2012 þá kom upp sú hug­mynd að kynna núvit­und fyrir starfs­fólki, en á þeim tíma var ekki mikil umræða búin að vera um núvit­und hér á landi. Ég fann strax að það lífs­við­horf sem við erum að rækta með okkur í gegnum núvit­und­ar­þjálfun­ina væri eitt­hvað sem ég vildi til­einka mér. Þannig að í upp­hafi árs 2013 fór ég á kennslu­þjálf­un­ar­nám­skeið í Bret­landi og síðan þá hef ég sótt mína þjálfun þangað sem núvit­und­ar­kenn­ari fyrir alla ald­urs­hópa, allt frá leik­skóla­aldri til full­orð­ins­ára.“

Erum mikið andlega fjarverandi

Hvað er núvit­und? Á hvaða fræðum eða kenn­ingum byggir hún? „Núvitund snýst um að auka með­vit­und um það sem er að ger­ast innra með okkur og í kringum okkur ásamt því að taka eftir við­brögðum okkar. Í raun­inni að vera til staðar í líf­inu okkar á meðan það er að ger­ast. Besta leiðin til að gera það er að taka sjálfs­stýr­ing­una af og stilla oftar inn á skyn­færin okkar. Vera með­vituð um það sem við sjáum, heyrum, snertum og svo fram­vegis. Í hraða dag­legs lífs hættir okkur til að vera mikið and­lega fjar­ver­andi og þá missum við af svo miklu í líf­inu. Sjálfs­stýr­ingin er reyndar frá­bært fyr­ir­bæri, mik­ill orku­sparn­aður í því að geta verið að gera eitt og hugsa um eitt­hvað annað en það er ekki gott ef hún tekur yfir líf okkar, hugs­anir, til­finn­ingar og ákvarð­anir. Með því að vakna upp af sjálfs­stýr­ing­unni þá verðum við betur fær um að sjá alla litlu hlut­ina í dag­legu lífi sem geta verið mjög nær­andi ef við bara veitum þeim eft­ir­tekt. Ég segi því oft að núvit­und bæti svo mörgum blómum inn í líf mitt, blómum sem ég ann­ars tæki ekki eftir.“

Hjálplegar leiðir til að til að takast á við lífið af yfirvegun

Hvernig getur nútíma­mað­ur­inn notað núvit­und í tengslum við anna­samt dag­legt líf sitt? Er þetta hag­nýt leið­sögn til að finna frið í ham­stola heimi? Hvernig væri lífið ef okkur tæk­ist það? Hvað græðum við? „Svo sann­ar­lega má segja að núvit­und geti veitt okkur hag­nýta leið­sögn í ham­stola heimi, enda er það heiti á einu nám­skeið­inu sem við kennum en það er eitt vin­sælasta núvit­und­ar­nám­skeiðið í Bret­landi. Þetta nám­skeið byggir á núvit­und og hug­rænni atferl­is­með­ferð og styður okkur við að átta okkur á hvað við erum að upp­lifa og koma okkur upp hjálp­legum aðferðum til að takast á við lífið. Það er bara svo að lífið færir okkur alls konar krefj­andi verk­efni og áskor­anir og með núvit­und erum við lík­legri til að vera í stakk búin til að takast á við það af yfir­vegun.

„Ef við náum að venja okkur á það og erum með­vituð um að við eigum alltaf val um við­brögð, þá aukast lík­urnar til muna að við náum að vanda okkur við að velja hjálp­leg­ustu leið­ina hverju sinni.“

Ef við ein­fald­lega gefum okkur tíma til að staldra við og eiga smá­vegis and­rými öðru hvoru yfir dag­inn. Eitthvað sem þarf alls ekki að taka langa stund, jafn­vel bara nokkrir með­vit­aðir and­ar­drættir. Ef við náum að venja okkur á það og erum með­vituð um að við eigum alltaf val um við­brögð, þá aukast lík­urnar til muna að við náum að vanda okkur við að velja hjálp­leg­ustu leið­ina hverju sinni. Málið er að þegar við upp­lifum streitu­á­stand höfum við til­hneig­ingu til að fá rör­sýn á hlut­ina og við sjáum ekki hvaða val­kostir eru í boði en um leið og við náum að staldra aðeins við þá getum við dregið úr streit­unni og áttað okkur á að við eigum alltaf val. Það eitt og sér er ótrú­lega vald­efl­andi.

Núvitund er reynslu­nám og því er það ekki fyrr en maður prófar æfing­arnar, form­legar og óform­legar, sem maður veit hvort þetta virkar fyrir mann. Við höfum mjög öfl­ugan og sívax­andi grunn rann­sókna sem sýna að núvit­und­ar­þjálfun er lík­leg til að stuðlað að auk­inni vellíðan og vel­gengni á ýmsum sviðum, draga úr streitu, kvíða, þung­lyndi, bæta sam­skipti, umburð­ar­lyndi og ákvarð­ana­töku svo eitt­hvað sé nefnt. Hins vegar er þetta engin töfra­lausn og ekki hægt að full­yrða að hún henti öllum. Þess vegna segi ég að mik­il­væg­asta rann­sóknin sé sú sem hvert og eitt okkar gerir á eigin skinni þar sem við skoðum hvort og þá hvernig núvit­und virkar fyrir okkur. Það er mik­il­vægt að aðlaga núvit­und­ar­þjálfun­ina að þér og þannig að hún falli sem best að þínu lífi, ekki gott ef hún fer að verða enn eitt atriðið á verk­efna­list­anum þínum. Það er ekki mark­miðið að allir verði mara­þon­hug­leið­endur heldur ekki síður að við opnum augun fyrir öllu því sem lífið er að færa okkur og gefum okkur tíma til að eiga stefnu­mót við okkur sjálf og tengja inn á við. Ég hef verið svo lánsöm að fá að fylgja fjöl­mörgum í gegnum mark­vissa núvit­und­ar­þjálfun og lang­flestir lýsa jákvæðum áhrifum á líf þeirra.“

Eitthvað að lokum? ,,Kannski bara að hvetja fólk til þess að byrja að æfa sig og ekki gef­ast upp þó að það gangi ekki full­kom­lega. Hver dagur og hver stund er nýtt tæki­færi til að æfa sig í núvit­und, tæki­færi til að mæta öllu því sem lífið færir af mildi og for­vitni, bæði þessu nota­lega og nær­andi í bland við allt hitt.“

Myndir / Hallur Karlsson

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur