Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Náttúran hjálpaði í viðureigninni við krabbameinið

Náttúran hjálpaði í viðureigninni við krabbameinið
Hraundís Guð­munds­dóttir

Eftir / Hraun­dísi Guð­munds­dóttur

Ég hef alltaf verið heilluð af því sem nátt­úran gefur og hvernig við getum notað hana til að hjálpa okkur í dag­legu lífi en einnig við erf­iðar aðstæður. Ég ólst upp í góðum tengslum við nátt­úr­una og vissi ekk­ert betra en að leika mér við ána ofan við þorpið eða við öld­urnar í fjör­unni.

Svo flutti ég í sveit og fór þá að skoða allt sem óx í kringum mig. Börnin mín tók ég með mér til að greina gróð­ur­inn í skoð­un­ar­ferð­unum og svo leit­aði ég mér upp­lýs­inga um virkni plantn­anna á manns­lík­amann. Þegar ég ákvað að læra ilmol­íu­fræði fann ég nýja leið til að nýta plönt­urnar til að aðstoða fólk með ýmsa kvilla.

Að fanga skógarilminn

Mig lang­aði að fræð­ast meira um nátt­úr­una og fór því í nám í skóg­fræði við Land­bún­að­ar­há­skól­ann á Hvann­eyri. Margar rann­sóknir sýna að geð­heilsa fólks batnar við að tengj­ast nátt­úr­unni með göngu úti í skógi. Orkan þar og ilm­ur­inn róa okkur og gleðja.
Ég vildi fanga skóg­arilm­inn og færa hann inn í hús til þeirra sem ekki eiga kost á að ganga í skóg­inum. Því gerði ég til­raunir með að eima barr­tré. Flestar ilm­kjarna­ol­íur sem ætt­aðar eru úr skóg­inum eru róandi og upp­lífg­andi í senn, bakt­er­íu­drep­andi og fleira. Ég sendi olí­urnar til efna­grein­ingar í Frakk­landi til að kom­ast að virkni hverrar þeirra.

Erfitt verkefni

Árið 2018 greind­ist ég með brjóstakrabba­mein. Ég tók allan pakk­ann; lyfja­gjöf, aðgerð og geisla. En það var nátt­úran sem hjálp­aði mér í gegnum þetta verk­efni.
Þegar við öndum að okkur ilmi bind­ast sam­eindir við við­taka í nefi sem senda skila­boð til heil­ans og hafa áhrif á van­líðan og stress. Ég and­aði að mér ilm­kjarna­ol­íum þegar mér leið illa sem hjálp­aði mér einkum á tímum þegar ég komst ekki í góðar göngu­ferðir í nátt­úr­unni. Ég bland­aði líka saman olíum til að losna við bjúg og bólgur en mik­ill vökvi safn­ast upp í lík­am­anum í lyfja­með­ferðum. Mér reynd­ist birki­ol­ían einna öfl­ug­ust við að lyfta upp sálu minni. Þar sem apó­tek skóg­ar­ins hjálp­aði mér reyni ég nú að hjálpa öðrum.

Höfundur er ilmol­íu­fræð­ingur, skóg­fræð­ingur, eig­andi hraundis.is og félags­kona í FKA

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Frétt

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Fólk

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Var á reist árið 1979
Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina