Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Jóhanna býr ein í Svansvík: Sefur hjá ljósavélinni í óveðrum

Jóhanna býr ein í Svansvík: Sefur hjá ljósavélinni í óveðrum
Jóhanna Krist­jáns­dóttir, bóndi í Svansvík, hefur alla tíð búið ein og staðið fyrir sínu. Mynd: Reynir Traustason

„Ætli það hafi ekki verið 1987 sem ég tók við búinu af pabba og mömmu. Þá var búið á öllum bæjum hér um allt Ísa­fjarð­ar­djúp,“ segir Jóhanna Rannveig Krist­jáns­dóttir sem býr ásamt Krist­jáni syni sínum 18 ára gömlum með 300 fjár í Svansvík við Ísa­fjarð­ar­djúp.
Þrátt fyrir að veg­ur­inn um Djúpið hafi mikið batnað á síð­ustu árum er vetr­ar­færð á vest­firskum vegum og þá ekki síst fjall­vegum. Jóhanna hefur alla tíð búið ein og staðið fyrir sínu  búi.

Í eld­hús­inu í Svansvík. Jóhanna og Sigríður Sig­munds­dóttir, vin­kona hennar.

Árum saman ók Jóhanna syni sínum nokkrum sinnum í viku í skóla á Hólmavík sem er um 90 kíló­metral eið og yfir sjálfa Stein­gríms­fjarð­ar­heið­ina að fara. Veður þurfa ekki að verða neitt sér­lega válynd til að heiðin verði far­ar­tálmi.
„Þetta gekk ótrú­lega vel hjá okkur, við lentum aldrei í neinum vand­ræðum, ekki sem ég man eftir núna. Pabbi kenndi mér ungri að ég myndi kom­ast vel af í sam­spili við nátt­úr­una ef ég bara bæri virð­ingu fyrir henni og ætl­aði mér ekki um of. Þetta heil­ræði hefur reynst mér vel,“ segir Jóhanna íbyggin og hugsar til heið­ar­innar hvar hún mátti læð­ast um af var­færni í frosti byl og myrkri árum saman.

Tvö þorrablót í vetur

Þrátt fyrir að búskap hafi verið brugðið á fjölda bæja við Djúp und­an­farin ár og fólki fækkað mikið er sam­gangur á milli bæja eftir atvikum.
„Það eru ekki nema 30 kíló­metrar í næsta bæ þannig að það er ekk­ert þrek­virki að skjót­ast í kaffi­sopa og hitta fólk. Svo erum við búin að halda tvö þorra­blót í vetur. Við erum svo fá eftir hérna að fjölda­tak­mark­anir Þórólfs trufla okkur ekk­ert. Að öllu jöfnu höfum við haldið smala­hitt­inga þar sem allir koma saman sem að smölun koma, það hefur verið alveg upp í 70 manns. En í haust var ekki hægt að gera neitt slíkt. Það er eina til­fellið sem fjölda­tak­mark­anir hafa truflað hér í sveit.“

Stundum hefur Jóhanna þurft að bregða við þegar veður og ófærð hefta för fólks á vegum um Djúpið enda varla fyrir óvana að fara þar um að næt­ur­lagi í við­sjár­verðum veðrum.
„Ég man eftir útlend­ingi sem festi sig hérna upp á hjall­anum rétt ofan við bæinn. Ég fór og bjarg­aði mann­g­arminum í hús og gaf honum heitt að drekka og eitt­hvað í svang­inn og bjó honum hlýtt rúm. Við vökn­uðum svo um nótt­ina við lætin þegar flutn­inga­bíll kom á 90 kíló­metra hraða í skafl­inn þar sem bíll­inn hans var fastur. Það var ekki mikið eftir af fólks­bílnum eftir að vöru­bíll­inn hafði farið yfir hann. Það slas­aðir eng­inn sem betur fer og þá er flest í lagi,“ segir björg­un­ar­konan í Svansvík.

Rafmagnstruflanir

Rafmagn er á tíðum glopp­ótt í vetr­ar­veðrum í afskekktum byggðum og yfir­leitt verður straum­laust þegar síst skyldi. Í dimmum vetr­ar­veðrum þegar skaf­byl­ur­inn hleður upp sköflum og byrgir nær alla sýn láta loft­lín­urnar gjarnan undan. Jóhanna er starfs­maður Orkubús Vest­fjarða og þarf að bregð­ast við þegar straum­rof verður, í Reykja­nesi utan við Svansvík eru vara­afls­vélar fyrir Djúpið. Í raf­magns­leysi verður Jóhanna að girða sig í brók og halda út í sort­ann til að koma raf­magni á sveit­ina. Nútíminn gerir ekki mikið án raf­magns, jafn­vel ekki við Ísa­fjarð­ar­djúp þar sem tím­inn gengur um margt ögn öðru­vísi en í þétt­býl­inu.
„Ég verð að fara og koma raf­magni á áður en kólnar í húsum og svo þarf fólk eitt­hvað að sjá til líka. Ef veður eru mjög vond á ég til að leggja mig á bekk við hlið ljósa­vél­ar­innar og fara heim morg­un­inn eftir ef veður hefur eitt­hvað gengið niður,“ segir þessi harð­gerða kona sem hjálpar sveit­ung­unum með yl og birtu í líf sitt.

Byggðinni hnignar

Jóhanna er hugsi yfir fram­tíð byggðar við Djúp og telur að byggð­inni muni hnigna hratt héðan í frá.

„Við unga fólkið í Djúpinu erum öll komin yfir sex­tugt held ég að mér sé óhætt að segja. Eftir 10 ár verður þetta kannski orðið eins og Horn­strandir. Ég reikna með að Svansvík verði bara sum­ar­hús þegar ég bregð búi og svo er um marga aðra bæi. Enda hefur þró­unin verið í þá átt. En ég mun kveðja búskap­inn sátt við guð og menn. Hér hefur mér liðið vel, þetta er sveitin sem ól mig og mér hefur alltaf liðið vel hérna. Líka þegar veður er svo vond að því verður ekki með orðum lýst,“ segir nátt­úru­barnið í Svansvík og býður kaffi og kleinur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum