Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Sigrún grátbiður um hjálp: „Ég bara get ekki verið svona lengur“

Sigrún grátbiður um hjálp: „Ég bara get ekki verið svona lengur“

„Í gær átti ég frá­bæran dag, þangað til, allt einu, eins og hendi væri veifað að ég fékk ég kvíða­kast, mjög slæmt kvíða­kast“

Sigrún Sig­mars­dóttir er þung­lyndis- og kvíða­sjúk­lingur sem telur rétt á að vekja athygli á sögu sinni og ann­arra sem eiga við sama sjúk­dóm að stríða. Hún á betri daga en hún á líka miklu verri daga, daga sem reyn­ast henni óskap­lega erf­iðir.

„Ég var að baka ketó súkkulaði­köku, glöð og kát og full tillhlökk­unar að smakka hana. En áður en ég vissi af leið mér eins og ég væri að fara í blóð­syk­ur­fall” segir Sigrún.

Hún rauk til og mældi blóð­syk­ur­inn sem reynd­ist í fín­asta lagi og þá vissi hún hvað var að ger­ast, hún var að fá slæmt kvíða­kast.

Sigrún Sig­mars­dóttir

Líðanin hræðileg

Sigrún byrj­aði að kúg­ast ill­lega og tók kvíða­töflu í kjöl­farið. ,,Taflan tekur rúman klukku­tíma að virka svo ég lagð­ist út af í fóstu­stell­ingu á meðan ég hélt áfram að kúg­ast og kúg­ast. Líðanin var hræði­leg, blóð­þrýs­ing­ur­inn rauk upp og ég tók blóð­þrýst­ings­lyf.

Sigrún lagði það þó á sig að fara í að elda kvöld­mat þótt erfitt væri. „Loksins hafði ég jóla­hangi­kjötið í mat­inn því ég náði ekki að elda það um jólin og hlakk­aði mikið til. Ég lagði líka í að gera upp­stúf sem reyndar smakk­að­ist guð­dóm­lega“.

Hef aldrei fengið jafn slæmt kast

Til að passa blóð­syk­ur­inn verður Sigrún að borða á 2ja til 3ja tíma fresti svo það var ekk­ert val um að borða kvöld­mat­inn. Hún gat komið ofan í sig einni sneið því enn kúg­að­ist hún mikið þar sem taflan var greini­lega ekki farin að virka.

„Því næst rauk ég upp á sal­ernið, eitt­hvað sem ég hef aldrei gert áður þegar ég fæ kvíða­kast og kastaði þrisvar sinnum upp. Það var mjög óvenju­legt því ég kasta aldrei upp, ekki einu sinni þegar ég fæ gubbupest.

Sigrún segir gær­dag­inn hafa verið hræði­legan, svo veik hafi hún verið. „Ég var einnig í miklu kvíða­kasti  og lagð­ist í rúmið með kaldan þvott­ar­poka yfir enn­inu, emj­andi af van­líðan. Á allri minni ævi hef ég aldrei fengið jafn slæmt kast og í gær“.

Íslenska heilbrigðiskerfið gallað

Sigrún seg­ist ekki vera að leita eftir vor­kunn heldur vilji hún benda á galla í íslenska heil­brigð­is­kerf­inu. Hún fær ekki aðgengi að sál­fræð­ingi á sjúkra­hús­inu í sínum heimabæ, Suð­ur­nesjum, og finnst það langt frá því að vera boð­legt. Það kostar 15.000 þús­und að leita til einka­rek­ins sál­fræð­ings og það sé langt því frá að allir hafi efni á því. ,,Ég er nokkuð viss um að ég þyrfti að koma einu sinni í viku til að byrja . Og þá yrði þetta 60.000 kr. mán­uð­ur­inn. Ég hef ein­fald­lega ekki efni á því.”

Hef lent í mörgu á lífsleiðinni

Sumir kasta kannski fram spurn­ing­unni af hverju Sigrún telji sig þurfa á sál­fræð­ingi að halda? Hún segir ástæð­una vera þá að þurfi að finna rót vand­ans, af hverju hún fái þessi erf­iðu kvíða­köst. Hún þurfi sár­lega á sál­fræð­ingi að halda.

„Ég hef lent í ýmsu á lífs­leið­inni minni og mörgum áföllum og þarf hjálp við að finna út hvað veldur kvíða­köst­unum. Þetta getur verið eitt­hvað í for­tíð­inni eða eitt­hvað nýlegra. Ég get ekki áttað mig á því án sér­fræði­hjálpar. Lækn­ir­inn minn er búinn að senda sál­fræð­ingi HSS beiðni um að hann taki mig í við­tal, ítreka hana og mun ítreka hana aftur á morgun“.

Sigrún segir að ástandið geti ekki varað svona lengur, hún gangi ávallt með kvíða­töflur á sér því hún viti aldrei hvenær næsta kast komi.

„Ég bara get ekki verið svona lengur. Ég geng með kvíð­art­öflur á mér, því ég veit aldrei hvenær kastið kemur“.

Biðlar til stjórnmálamanna

Sigrún sendi tveimur þing­mönnum skila­boð til að benda þeim á vanda­málið, að ekki sé að boð­legt að þurfa að bíða árum saman eftir sál­fræð­þjón­ustu. Hún biður Pál Mangús­son og Ásmund Frið­riks­son að ræða við við Svan­vandísi Svav­ars­dóttur, heil­brigð­is­ráð­herra, og leita svara.

„Ég er ekki sú eina sem er að bíða. Ein vin­kona mín er enn að bíða eftir aðstoð vegna fæð­inga­þung­lyndis og það eru komnir 16 mán­uðir síðan hún sótti um að kom­ast til sál­fræð­ings. Klárlega ætti fólk ekki að bíða árum saman eftir aðstoð við fæð­ing­ar­þung­lyndi“.

Því má við bæta að tveir þing­menn voru snöggir til svara. Ásmundur Friðks­son sendi Sigrúnu línu þar sem hann segir: „Þetta er leitt að heyra. Það var gert átak í sál­gæslu á heilsu­gæslu­stöðvum og sér­stak­lega á HSS. Ég er ekki með þetta allt í hausnum en klár­lega ætti fólk ekki að bíða árum saman“.

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir sendi Sigrúnu aftur á móti lengri og ítar­legri skila­boð eins og hér má sjá:

„Æ elsku, þetta hljómar ekki vel. Hvað varðar okkar afstöðu eða hvað við getum gert þá lögðum við fram frum­varp um að nið­ur­greiða sál­fræði­þjón­ustu í þrí­gang (2017, 2018 og 2019). Og það var sam­þykkt loks­ins og varð að lögum núna 1. jan­úar. Rík­is­stjórnin hins vegar neit­aði að fjár­magna málið. Þannig að það mun ekki virka almenni­lega fyrr en það verði tryggt fjár­magn í málið. Það að auka aðgengi fólks að sál­fræði­þjón­ustu er eitt af okkar helstu bar­áttu­málum í Viðreisn. Það er ekki bara lífs­nauð­syn­legt, heldur líka þjóð­hags­lega hag­kvæmt. Mik­il­vægt for­varnar- og lýð­heilsu­mál“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum