Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, hefur aflýst samræmdum prófum í ensku og stærðfræði sem 9. bekkur grunnskóla átti að taka í næstu viku. Hagsmunir nemenda réðu för við ákvörðun ráðherrans.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Lilju og kemur ákvörðunin í kjölfar þeirra vandræða sem upp komu við samræmda prófið í Íslensku á mánudag. Nú efast ráðherrann um að næstu próf muni ganga eitthvað betur og því hefur þeim verið aflýst.
Þeir nemendur sem það vilja geta tekið svokallað könnunarpróf í greinunum tveimur. Lilja segir í tilkynningu sinni að núverandi fyrirkomulag samræmdu prófanna gangi ekki upp.
„Núverandi fyrirkomulag samræmdra prófa er komið á endastöð. Grundvallarbreyting á samræmdu námsmati hefur verið í undirbúningi, þar sem markmiðið er að tryggja betur hagsmuni nemenda og þarfir þeirra fyrir skýrt námsmat,“ segir Lilja.































Athugasemdir