Jónatan Ingi Jónsson segir að í hans augum hafi það ekki verið minniháttar atvik þegar mannlaus bíll rann á ungan son hans á dögunum. Þannig lýsti lögreglan í fjölmiðlum. Jónatan deilir á Facebook myndum sem sýna það vel að litli pilturinn slasaðist illa.
„Síðustu daga höfum við fjölskyldan þurft að tækla það allra stærsta verkefni sem við höfum nokkurn tímann þurft að fást við. Eins og flestir vita lentum við í því að mannlaus bíll rann á miklum hraða á Gæa okkar um helgina, þar sem hann var að róla á leikvelli ásamt Huldu Björg systir sinni. Í einhverjum fjölmiðlum kom fram að lögreglan taldi þetta atvik „minni háttar“ og „alls ekki líta illa út“, en í okkar augum var þetta mjög alvarlegt þar sem Gæi var fastur undir bílnum og það blæddi talsvert mikið úr andliti og höfði hans,“ segir Jónatan.
Hann segir að það hafi verið mikil blessun að læknir var á svæðinu en hún hafði fyrir tilviljun orðið vitni af því þegar bíllinn rann. „Með hjálp bræðra og annarra góðra manna tókst okkur að losa hann undan bílnum á innan við mínútu. Blessunarlega var læknir á svæðinu sem hafði orðið vitni að atburðinum, og tók hún að sér að hugsa um hann þar til sjúkrabíll og lögregla komu á staðinn stuttu seinna. Á bráðamóttöku var Gæi skoðaður í bak og fyrir og sendur í CT skanna sem og röntgen. Því næst var hann svæfður svo hægt væri að gera að sárum hans sem voru víðsvegar um allt höfuð,“ segir Jónatan.
Hann segir áverkan ekki hafa verið minniháttar. „Meðal annars þurfti hann fimm spor undir vör, fimm spor á hnakka og annað eyrað þurfti nánast að sauma saman. Eftir frekari rannsóknir var okkur tjáð að auk fyrrnefndra áverka væri hann með sprungu í höfuðkúpu ásamt áverkum á augnbotni. Vegna þessa var okkur haldið á gjörgæslu í eftirliti í tvo sólarhringa og við tók svo einn sólarhringur á barnaspítalanum. Fyrstu tvo dagana eftir slysið var varla að sjá á okkar manni að hann hafi lent í svona alvarlegu slysi þar sem hann vildi helst komast heim til sín til að hitta Hauk litla bróðir sinn,“ segir Jónatan.
Hann segir það einfaldlega kraftaverk að ekki fór verr. „Það er í raun algjört kraftaverk að ekki fór verr og mátti ekki miklu muna. En bati hans á einungis fjórum dögum er undraverður. Hann er verkjaður en sýnir það ekki því hann hleypur um allt, sparkar í bolta eða reynir að fara í handahlaup,“ segir Jónatan og þakkar öllum að lokum sem hafa staðið með þeim í gegnum þessa erfiðu reynslu:
„Það er klárt mál að við eigum frábæra fjölskyldu og vini sem standa þétt við bakið á okkur þegar á reynir. Það hafa allir rétt okkur hjálparhönd og erum við ykkur ævinlega þakklát. Öll skilaboðin, matarsendingarnar og gjafirnar fyrir börnin okkar hafa reynst ómetanleg. Ást og friður.“






































Athugasemdir