Töluvert hefur borið á því að rafmagnshlaupahjólum hafi verið illa lagt. Ýmist hefur fólk kvartað undan því að þau séu skilin eftir á miðri gangstétt, svo erfitt sé að komast fram hjá þeim nema að fara út á götu. Nú eru íbúar Vesturbæjar hins vegar ósáttir vegna þess að rafmagnshlaupahjólum hefur verið lagt í bílastæði.
Þetta kemur fram í hópi íbúa Vesturbæjar á Facebook. Þar birtir Björn nokkur mynd af hlaupahjólum í bílastæði við heimili hans og skrifar:
„Hvaða mannvitsbrekkur eru hér á ferð?“
Vissulega eru ekki allir sammála, sumum finnst ekkert út á það að setja að hlaupahjólum sé lagt í bílastæði.
Steinþór skrifar: „Er nokkuð athugavert við þetta? Af hverju ætti frekar að vera bíll þarna? … Þau eru fyrir á gangstéttinni og þetta er fínn staður fyrir þau. Og þetta með að það þurfi að vera bílar í bílastæðum. Af hverju geymir fólk bílana sína ekki bara inni á lóð hjá sér. Er ekki heldur frekt að ætlast til að hafa einhvern sér díl fyrir bíla í almannarými?“
Honum er svarað: „Ef þú skoðar myndina betur má sjá að þarna í kring eru fjölbýlishús. Það fylgja yfirleitt ekki lóðir með íbúðum í fjölbýlishúsum. Held það sé svona almennur skilningur um að bílastæði séu ætluð bílum.“
Svafar skrifar: „Tvö farartæki í einu stæði. Þetta kallar maður nýtingu.“
Ein spyr: „Ósköp er fólk pirrað, kemstu ekki út úr bílnum eða? … Ég er svo þreytt á fyrirhyggju og predikunartóni „sænskra“ sossa að ég gæti gubbað. Ekkert nema kvein yfir engu á þessari síðu. Aumkunarvert.“
„Mega s.s. ekki vera neinar reglur eða viðmið um þessi farartæki? Bönnum skoðanir líka! Kannski bara best að skilja þau alltaf á miðri götu, ekkert mál að stoppa og færa,“ skrifar Ásta.
Augljóst er að misjafnar skoðanir eru á því hvar heppilegast sé að skilja eftir rafmagnshlaupahjól. Að skilja það eftir á miðri gangstétt eða í bílastæði telst þó tæplega sem ákjósanlegasti staðurinn.































Athugasemdir