Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Steinar upplifði þrældóm á vinnuheimili: „Það má ekki koma svona fram við fólk“

Steinar upplifði þrældóm á vinnuheimili: „Það má ekki koma svona fram við fólk“

„Ég þurfti að borga með mér í vinn­unni,“ segir Steinar Svan Birg­is­son, öryrki, mynd­listar- og gjörn­inga­lista­maður, um reynslu sína af starfi fyrir starfs­stað fyrir fatl­aða. Þar upp­lifði hann þræl­dóm og var á end­anum dæmdur úr leik.

Steinar er fatl­aður, þótt það sjá­ist ekki á honum. Eftir hrakn­ingar á vinnu­mark­aði benti Vinnu­mála­stofnun honum á að leita eftir úrræði á vegum Atvinna með stuðn­ingi, úrræði Vinnu­mála­stofn­unar, til handa fötl­uðum atvinnu­leit­endum.

Steinar Svan,

Á vef Vinnu­mála­stofn­unnar segir orð­rétt:

Atvinna með stuðn­ingi er árang­urs­rík leið fyrir þá sem þurfa aðstoð við að fá vinnu á almennum vinnu­mark­aði.

Vinnu­brögðin fela í sér víð­tækan stuðn­ing við þá sem hafa skerta vinnu­getu vegna and­legrar og/eða lík­am­legrar fötl­unar, aðstoð við að finna rétta starfið og veita stuðn­ing á nýjum vinnu­stað.

„Ég vildi vera lausn­a­mið­aður og tók þessu boði. Vildi láta reyna á það hvort ég gæti innt af hendi þau verk­efni sem mér voru falin og sá fram á að ef allt gengi að óskum væri þarna um að finna ákveð­inn stökk­pall út í atvinnu­lífið.“

Þræll í betri stöðu

Steinari leist vel á og ákvað að taka boði um fjög­urra vikna starfsprufu á vinnu­stað­inn. Hann var lát­inn skrifa undir papp­íra þess efnis að hann myndi starfa í einn mánuð, 4 tíma á dag, og á þeim tíma yrði starfs­hæfni hans metin.

„Ég borg­aði 40 þús­und krónur með mér í ferða­kostnað og mat. Fékk engin laun. Ég vann mikið, bjó til plast­vasa á suðu­vél, var settur á pökk­un­ar­vél­ina, þrykkti á möppur og viktaði og pakk­aði brjóst­sykri og ýmis­legt fleira.

Ég upp­lifði þetta sem ákveð­inn þræl­dóm en þó er má færa rök fyrir því að þræll­inn sé í betri stöðu en sá sem þreytir starfs­matið. Þrællinn fær nefni­lega mat að borða til að auka líkur á því að hann geti lagt enn harðar að sér í starfi sínu.“

Það á ekki að koma svona fram við fólk, segir Steinar.

Siðlaust og ólíðandi

Steinar segir að það hafi verið andað ofan í háls­málið á honum við hvert skref. „Það var alltaf verið að fetta fingur út í allt sem ég gerði. Ég var milli vonar og ótta all­ann tím­ann því mats­blaðið í lokin skiptir öllu, það er gul­rótin í starfs­mat­inu.“

Eftir tvær vikur á vinnu­staðnum hætti Steinari að lít­ast á blik­una. Hann segir það hafi verið andað ofan í háls­málið á sér og fylgst með hverju skrefi og í ofaná­lag var hann lát­inn kvitta undir á blað þar sem hann afsal­aði sér rétti á launum fyrir fram­lag sitt í starfs­mat­inu. Eftir starfs­matið hafði hann sam­band við bæði Eflingu og VR og spurði hvort það stæð­ist ein­fald­lega lög að þræla fólki svona út launa­laust. Og ekki bara ein­hverju fólki heldur þeim sem höllustum fæti standa og leita á náðir vernd­aðs vinnu­staðar þegar öll önnur sund virð­ast lokuð.

„Við nán­ari eft­ir­grennslan komst ég að því að það var sam­bæri­leg kvörtun í gangi þar sem ein­stak­lingur var að leita réttar síns en á end­anum gáfu bæði stétt­ar­fé­lögin út þá yfir­lýs­ingu að þetta stæð­ist lög. En þó þetta stand­ist ef til vill lög, telst þetta hátta­lag stjórn­end­anna sið­laust með öllu og ólíð­andi,“ segir Steinar Svan.

„Túlkun þeirra á starfs­mati þykir vera út um allt, túlkað á einn hátt hér og á annan hátt þar. Sem dæmi fékk ég starfs­manna­af­slátt í verslun Múla­lundar en samt var ég ekki starfs­maður heldur aðili í starfs­mati!”

Harkalegur stimpill

Að lok­inni fjög­urra vikna vinnu kom loks nið­ur­staðan. „End­ur­gjöfin sem ég hafði beðið eftir.“ Steinar segir að matið hafi þótt og þyki enn heldur harka­legt. „Ég taldi mig hafa fengið stimpil á mig og að ég væri dæmdur úr leik. Þetta er sökum þess að mik­il­vægir þættir eru metnir lágt á mats­blað­inu. Mér finnst þetta afar hlífð­ar­laust. Á mats­blað­inu eru listaðir upp þeir þættir sem vinnu­stað­ur­inn metur og svo er við­kom­andi ein­stak­lingi birt hvar hann lendir á mats­ska­l­anum.

Ég á til dæmis erfitt með að læra nýja hluti, og það kom fram á mats­blað­inu, en það sem kom ekki fram er að þegar ég hef lært þá get nýtt mér þá áfram. Þess var aldrei getið.“

Döpur reynsla

Steinar er mjög beygður eftir þessa reynslu. „Vinnu­mála­stofnun sagði að ég hefði skrifað undir og þar með væri allt lög­legt og það var allt sem ég fékk frá þeim. Þetta er virt stofnun og lætur mikið á sér bera í sam­fé­lag­inu og má þó ekki koma svona fram við fólk. Og þá sér­stak­lega ekki þá ein­stak­linga sem standa hvað höllustum fæti í sam­fé­lag­inu. Ég mun seint gleyma þess­ari döpru reynslu.

Það eina sem ég tek jákvætt frá þessu er að ég kynnt­ist skemmti­legu fólki sem þar starfar á gólf­inu. Vinnu­stað­ur­inn hefur á að skipa þó nokkrum fötl­uðum starfs­mönnum sem þar inna af hendi hluta­starf.

Þessi reynsla mín verður von­andi víti til varn­aðar til ann­ara, sem lenda í svip­aðri stöðu og þurfa að leita á náðir þeirra aðila sem fram­kvæma starfs­mat eftir end­ur­gjöf á vinnu­fram­lagi sínu.“

Þrátt fyrir ömur­lega reynslu er Steinar ekki að baki dott­inn og heldur atvinnu­leit áfram.

Vill á vinnumarkað

Aðspurður um drauma­starfið segir Steinar það vera eitt­hvað sem hann kann og getur.

„Það er erfitt að negla það niður en ég hef reynslu í afgreiðslu­störfum. Þau virð­ast þó vera að hverfa, maður þarf að afgreiða sig sjálfur á flestum stöðum án þess að nein verð­lækkun á vörum fylgi því!“ segir Steinar og skelli­hlær. „En ég er til­búin að prófa ýmis­legt, til dæmis fram­leiðslu­störf.“

Hann biður ekki um annað en vinnu­stað sem sýnir starfs­fólki virð­ingu.

„Ég vil bara vinna á stað sem kemur vel fram við fólk, þar sem vinnu­fram­lag mitt er metið og mér er tryggt hlut­verk á vinnu­mark­aði,” segir Steinar Svan sem heldur ótrauður áfram í virkri atvinnu­leit.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Frétt

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Fólk

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Var á reist árið 1979
Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina