Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Bjartmar og góðverkin – Hjólahvíslarinn hjálpar útigangsfólki

Bjartmar og góðverkin – Hjólahvíslarinn hjálpar útigangsfólki

„Ég vil bara skapa lausn­a­mið­aða umræðu, þetta er mér mikið hjart­ans mál,” segir Bjartmar Leósson, hjóla­hvísl­ari og bar­áttu­maður fyrir breyttu þjóð­fé­lagi. Honum er afar umhugað um mál­efni úti­gangs­manna og fíkla en sá áhugi kom til með óvenju­legum hætti. Bjartmar er til­nefndur sem Hvunn­dags­hetjan hjá RÚV.

Bjartmar er mik­ill hjóla­maður og allt byrj­aði þetta fyrir tveimur árum þegar hann var staddur á Hlemmi í Reykja­vík og sá þrjú rán­dýr hjól fyrir utan stað sem er þekktur fyrir að vera sóttur af úti­gangs­mönnum og óreglu­fólki. „Ég fór að skoða þetta betur og sá að þarna voru mörg hund­ruð þús­und króna hjól með ein­hverjum rusl lásum eða jafn­vel engum. Ekki nokkur maður kaupir svona dýrt hjól og en sleppir almenni­legum lás. Ég tók myndir af þeim og kann­aði málin. Í ljós kom að þau voru öll stolin. Ég tók þau og kom þeim til eig­enda sinna.”

Bjartmar virkj­aði Facebook hóp­inn Hjóladót, tapað, fundið, stolið og bolt­inn fór að rúlla.

Á þessum tveimur árum hefur Bjartmar komið tugum hjóla aftur til rétt­mætra eig­enda og fékk við­ur­nefnið hjóla­hvísl­ari. „Ég er fyrir löngu búinn að missa töl­una.”

Verðmætið hleypur á milljónum

Í kjöl­farið fór Bjartmar að skoða fyrir utan svip­aða staði og gisti­úr­ræði fyrir úti­gangs­menn. Í ljós kom að mik­inn fjölda stol­inna hjóla var þar að finna.

„Dýrustu hjólin sem ég hef fundið eru hjól upp á hálfa milljón króna og tölu­verðan fjölda af hjólum á verð­bil­inu 200-400 þús­und krónur.” Bjartmar bendir á verð­mætin þegar á sé litið að sumir séu að stela 5-10 hjólum á dag. „Í fyrstu tók ég ein­fald­lega hjólin og skil­aði þeim til lög­reglu eða eig­enda, spil­aði mig týndan túrista með der­húfu og hettu!“

Með tím­anum fóru úti­gangs­menn­irnir að þekkja Bjartmar.

„Sumir voru óskap­lega reiðir út í mig. Einn sem var útúr­dóp­aður keyrði á mig á stolnu hjóli niður á Lauga­veg­inum þegar ég var að hjóla þar og æddi síðan í átt til mín. Ég var með beyglað hjól og gat lítið annað gert en að rjúka inn í næstu búð og biðja fólk að skella í lás. Svo hringdi ég á lög­regl­una.

Meira en góðkunningjar lögreglunnar

„Ég, hjóla­kall­inn, var alltaf að þvæl­ast og taka hjól og smám saman fórum við að tala saman og ég fékk sam­bönd inn í þennan heim. Ég hef alltaf haft ákveðna sam­kennd með fólki og fór að sjá þá sem þá ein­stak­linga sem þeir eru, ekki bara „góð­kunn­ingja lög­regl­unnar”. Og vin­átta byrj­aði að mynd­ast. „Þeir vissu að þrátt fyrir allt gætu þeir alltaf talað við mig og smám saman fóru þeir jafn­vel að koma með hjól til mín að fyrra bragði. Einn stór­tækur hjóla­þjófur bað mig meira segja um að redda sér hjóli á lágu verði, sem ég og gerði.“

Labba frosnir eftir dópi

Bjartmar hefur myndað sterk tengsl við úti­gangs­fólk í Reykja­vík, unnið með þeim í þeirra málum og kynnt sér heim þeirra vel. „Fíknin er svo sterk eftir að hörðu efnin náðu fót­festu. Ég hef vitað af mönnum ganga hálf­klædda frá mið­bænum og upp í Graf­ar­vog í nístandi frosti til að ná í næsta skammt, kannski ósofnir í margra daga.“

„Þetta eru ein­stak­lingar sem oft­ast eru með áfalla­sögur úr æsku. Þeir leita í vímu­efnin til að losna við van­líðan sem síðan leiðir til glæpa og þaðan fang­els­is­vistar og síðan aftur úr í vímu­efnin. Ég neita að trúa að við getum ekki hjálpað þessu fólki.”

Bjartmar verður þungur á brún þegar spjallið snýst að úrræðum fyrir þessa ein­stak­linga. „Mér finnst oft eins og Íslend­ingum sé tamt að bregð­ast ekki við. Ég hef átt margar bíldrusl­urnar um ævina, sem hafa bilað hist og her, og aldrei hefur nokkuð maður stoppað til að spyrja hvort ég þurfi aðstoð. Við þurfum virki­lega að taka okkur á varð­andi sam­kennd og sam­hug. Það er alltaf ætl­ast til að næsti maður reddi hlut­unum. Ég vil ekki búa í þannig sam­fé­lagi.“

Er samfélaginu dýrt

Bjartmar kallar eftir lausn­a­mið­aðri umræðu um þá sem minna mega sín sökum áfengis- og fíkni­efna­neyslu. „Það þarf að grípa unga fólkið fyrr. Skólinn er kannski búinn að stimpla þessa krakka, svo og sam­fé­lagið allt. Þau passa ekki inn í kass­ann og svo verða efnin á vegi þeirra. Eitt hjól borgar kannski einn skammt. Og að kom­ast frá A til B. Þeir eru að stela þetta 5-10 hjólum á dag svo ekki sé minnst á allt hitt.“

Bjartmar bendir á að aðstæður þessa fólks snerti allt sam­fé­lagið og að það hljóti að vera skyn­sam­legra, mann­legra og ódýr­ara að grípa til aðgerða til að hjálpa fólki.

Hann seg­ist ekki vera neinn sér­fræð­ingur en hann neiti að trúa því að sam­fé­lagið sé reiðu­búið að standa hjá, á meðan fólk hlaupi fram af bjarg­brún.

Frú Ragnheiður er flott

„Margir af þessum ein­stak­lingum treysta ekki þeim með­ferð­ar­úr­ræðum sem eru í boði. En ég verð að nefna að Frú Ragn­heiður er að gera virki­lega flotta hluti fyrir þennan hóp.“

Frú Ragn­heiður er úrræði Rauða kross­ins til að ná til jað­ar­settra hópa í sam­fé­lag­inu eins og hús­næð­is­lausra ein­stak­linga og ein­stak­linga sem nota vímu­efni um æð og bjóða þeim skaða­minnk­andi þjón­ustu í formi heil­brigð­is­þjón­ustu og nála­skipti­þjón­ustu.

„Enginn hjá Frú Ragn­heiði dæmir þá og þar fá þeir fatnað, svefn­poka og hreinar nálar svo fátt eitt sé nefnt. Það þarf bara að gera meira.“

Einn af sam­starfs­mönnum Bjart­mars, vinur og hans hægri hönd við að hala úti Facebook síðu og leit að hjólum, var langt leiddur fík­ill og við dauð­ans dyr. „Hann reif sig lausan og náði að verða edrú. Þetta er hægt! Hann hefur sýnt fram á það. Þetta eru flottir strákar og mann­eskjur, engin skrímsli. Ég hef trú á þeim og ég mun alltaf hafa trú á þeim. En þeir mega ekki láta sér detta í hug að stela hjólum!” segir Bjartmar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum