Bóluefnið Spútnik V kom ekki til Íslands eins og fullyrt var í gær að myndi gerast. Þeir 2000 skammtar sem áttu, samkvæmt frétt Mannlífs, að fara til að bólusetja þá sem færu á gosstöðvarnar í fyrsta sinn voru aldrei annað en hugarburður, settur fram í því skyni að blekkja Íslendinga. Þá var ekki opið fyrur bólusetningar í Laugardagshöllinni. Sömuleiðis voru þau orð Kára að hann botnaði ekkert í Þórólfi Guðnasyni sótttvarnalækni uppspuni frá rótum. Mannlíf þakkar og hlakkar yfir þeim sem hlupu 1. apríl og biður Kára Stefánsson afsökunar á að hafa gert honum upp skoðanir og vitnað til ummæla sem aldrei voru borin fram. Hann á heiður skilinn fyrir að kvarta ekki.































Athugasemdir