„Þetta byrjaði með orðum, svo var farið að sitja fyrir manni á leiðinni heim úr skólanum, skólataskan mín var fyllt með snjó og snjó troðið inn á mig og ég var laminn. Hann má eiga það drengurinn sem lamdi mig að hann bað mig síðar afsökunar á því,“ segir séra Davíð Þór Jónsson um einelti sem hann varð fyrir í grunnskóla.
Davíð Þór segir að hann hafi tvö til þrjú síðustu árin í grunnskóla eiginlega keypt sig lausan undan eineltinu með því að verða í raun og veru óalandi og óferjandi. Og hann varð sjálfur gerandi.
„Ég varð allt í einu svalur í huga þeirra sem voru að leggja mig í einelti af því að ég fór að stelast til að reykja úti á skólalóðinni með þeim, ég fór að brjótast inn eins og þeir og rífa kjaft við fullorðna. Og ég fór að taka þátt með þeim í að leggja hina í einelti sem lágu vel við höggi. Ástæðan fyrir því að ég lagði í einelti var að ég var öruggur á meðan; þá var ekki verið að leggja mig í einelti. Ég taldi sjálfum mér trú um að það væri afrek hjá mér að vera kominn í hóp gerendanna. Ég varð í raun og veru vandræðaunglingur og sem unglingur fékk ég fyrir innbrot tveggja ára skilorðsbundinn dóm. Þá varð ég svolítið hræddur og sneri við blaðinu í raun og veru.“
Davíð Þór er í Helgarviðtali Mannlífs.































Athugasemdir