Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Steinþór lést við gosrannsóknir – „Þá sá ég að eitthvað logaði þar sem ég bjóst við að hann væri“

Steinþór lést við gosrannsóknir – „Þá sá ég að eitthvað logaði þar sem ég bjóst við að hann væri“

Það hörmu­lega slys gerð­ist í Heklu­hrauni í nóv­em­ber árið 1947 að Steinþór Sig­urðs­son varð fyrir stórum hraun­steini sem valt fram af hraun­brún og beið hann sam­stundis bana.

Steinþór var jarð­fræð­ingur við rann­sókn­ar­störf á svæð­inu og var hann að kvik­mynda við einn hraun­foss­inn þegar gló­andi hraun­hella steypt­ist fram af brún á miklum hraða og lenti á honum.

Steinþór hafi verið rann­sóknir á svæð­inu ásamt Einari Baldvini Pálssyni, verk­fræð­ingi. Voru þeir fyrstir manna upp að gos­s­töðvum Heklu í mars það sama ár ásamt Jóhann­esi Áskels­syni. Þá hafði Hekla ekki gosið í ríf­lega 100 ár og eng­inn þálif­andi maður séð log­andi hraun streyma úr eld­gígum.

Eldgos lítið rannsökuð

Einar rifj­aði upp síðar að Steinþór hafi haft til umráða jeppa sem for­stjóri Rann­sókn­ar­ráðs rík­is­ins og fóru þeir félagar austur ásamt Árna Stef­áns­syni, verk­stjóra á tveimur jeppum. Ætluðu þeir að kynna sér stöð­una á hraun­inu en Steinþór hafði fylgst vel með því frá fyrsta degi og höfðu þeir farið í gegnum margar svað­il­farir því að gosið hófst. Þeir komust á bíl­unum norður fyrir Heklu, inn á Land­manna­leið, um fimm kíló­metra frá gígnum. Þar festu þeir bíl­ana í snjó og tjöld­uðu á milli jepp­anna. „Við gerðum það með fyrir augum að við gætum skriðið undir þá og kom­ist upp ef til þess kæmi að vind­áttin breytt­ist og vikri tæki að rigna yfir okkur,“ sagði Einar síðar.“

Á þessum tíma var ekk­ert skipu­lag til staðar kæmi til eld­goss, þau höfðu ekki verið rann­sökuð enda hafði lítið verið um gos á fyrri helm­ingi aldr­ar­innar. Einnig voru menn van­búnir til ferða á þessum tíma og áttu afar fáir fara­tæki í slíkar ferðir.  „Ég sá fyrsta dag­inn Heklu­gosið í nálægð. Ótrú­legan gosmökk­inn, log­andi hraun­elf­ina renna fram og loks sálir fram­lið­inna dansa í log­andi gossúl­unni,“ segir Einar síðar.

Honum voru þessi atburðir í fersku minni alla tíð, enda urðu atburð­irnir í kringum þetta Heklugos mikil lífs­reynsla fyrir hann og að lokum hörmu­leg.

Var kviknað í fötum hans

Steinþór, Einar og Árni héldu upp að Hraungíg þann 2. nóv­em­ber ásamt Rögnu Ófeigs­dóttur í Næf­ur­holti, sem hafði sleg­ist í för. „Við skoð­uðum gíg­inn sem hraunið rann úr, það var gaman að sjá hreyf­ing­arnar á hraun­inu frá brún gígs­ins sem við stóðum á. Steinþór var með kvik­mynda­töku­vél og mynd­aði hann hraun­straum­inn. Svo fór Ragna og nokkru síðar lagði Árni Stef­áns­son af stað niður fjallið.

Það var síðan upp úr kl. 16 að Steinþór og Einar fara að búa sig til heim­ferðar. Biður Steinþór þá Einar að hinkra aðeins við því hann vilji ná mynd af hraun­rennsli ekki langt frá hraun­kanti, suð­austur af Heklu.

„Ég sett­ist niður og beið á meðan hann fór að mynda en sá ekki til, því mis­hæð var á milli okkar. Svo fór mig að lengja eftir honum og tók að svip­ast um. Þá sá ég að eitt­hvað log­aði þar sem ég bjóst við að hann væri. Hann lá þar og það var kviknað í föt­unum hans. Ég hljóp til hans og kastaði mér yfir hann til þess að kæfa eld­inn í föt­unum yfir brjósti hans. Þegar ég gætti betur að sá ég að hann var dáinn. Örlítill blóð­straumur vætl­aði út úr munn­viki hans.”

Hjartað slitnaði frá æðum

Steinþór hafði fengið stóran stein á brjóstið og við krufn­ingu kom í ljós að höggið hafði verið svo gríð­ar­legt að hjartað slitn­aði frá æðunum. Hann mun hafa lát­ist sam­stundis.  Mynda­vélin hafði kast­ast frá og þegar hún var skoðuð síðar kom í ljós að all­stór steinn hafði ætt niður hlíð­ina og farið á Steinþór. Svo virð­ist sem hann hafi ofmetið fjar­lægð steins­ins þegar hann horfði á í gegnum linsu vél­ar­innar, sem gerði allt minna en það var.

Einar byrj­aði að hrópa í örvænt­ingu sinni og bar þá að Árna og Rögnu auk tveggja skáta sem höfðu verið á svæð­inu. Fóru þau á jepp­anum að hringja eftir eftir hjálp og klambra saman börum til að bera Steinþór niður en Einar varð eftir hjá Stein­þóri. Einar segir langan tíma hafa liðið. „Ég þurfti að flytja hann til svo hraunið kæmi ekki á hann. Ég var í góðu formi og gat borið hann í snjónum en það var mjög erfitt. Loks um miðja nótt komu Árni og menn með honum til okkar.”

Sam­tíma­heim­ildir herma að það hafi tekið 16 manns að skipt­ast á að bera Steinþór að sjúkra­bílnum og var leiðin erfið, bæði var svarta­myrkur auk þess sem ekki var unnt að ganga á nýju hrauni. Steinþór mun hafa verið fyrsti íslenski vís­inda­mað­ur­inn sem lét lífið við nátt­úru­rann­sóknir. Fráfall hans var vís­inda­sam­fé­lag­inu mik­ill harma­dauði enda hafði hann verið frum­kvöð­ull í eld­gos­a­rann­sóknum og drengur góður.

Einar Baldvin lést árið 2012, tæp­lega 100 ára gam­all.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum