Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Þetta er Íslendingurinn sem er grunaður um hræðilega glæpi á Spáni

Þetta er Íslendingurinn sem er grunaður um hræðilega glæpi á Spáni

Íslend­ing­ur­inn sem er í haldi lög­regl­unnar á Spáni grun­aður um barn­a­níð heitir Ómar Trausta­son. Þetta herma heim­ildir Mannlífs. Ómar hefur verið dæmdur fyrir barn­a­níð á Íslandi tvisvar en í seinna skiptið sýkn­aði Hæsti­réttur hann.

Í fyrra mál­inu voru þolendur fjórir en einn í því síð­ara. Á Spáni er nú talað um átta fórn­ar­lömb. Fórn­ar­lömb og meint fórn­ar­lömb Ómars er því ekki svo fámennur hópur. Ómar hefur hins vegar hingað til ein­ungis fengið tíu mán­aða dóm en rétt­ar­kerfið hefur óneit­an­lega reynst honum vel.

Svo virð­ist sem að eftir að Hæsti­réttur sleppti honum árið 2014 þá hafi hann fljót­lega flutt erlendis, til Suður-Ameríku, en spænsk yfir­völd virð­ast gruna hann einnig um brot þar. Samkvæmt Þjóðskrá er lög­heim­ili hans þó í Danmörku. Síðustu tvö ár hefur Ómar í það minnsta búið í bænum Torre Pacheco, en þar er hann grun­aður um árásir á átta börn frá síð­asta sumri. Mikið magn barnakláms fannst í tölvu hans.

Ómar var 32 ára þegar Hér­aðs­dómur Suð­ur­lands dæmdi hann fyrst fyrir barn­a­níð. Það var árið 1993 en brotin áttu sér stað á árunum 1990 til 1992. Dómurinn var ekki þungur, tíu mán­uðir fyrir að mis­nota fjóra unga drengi í Vest­manna­eyjum. Ómar að vísu við­ur­kenndi að hafa mis­notað einn pilt í við­bót árið 1988. Hvernig það fór er lík­lega lýsandi fyrir upp­lifun Ómars af rétt­ar­kerf­inu. Samkvæmt umfjöllun DV árið 2013 „leystu“ for­eldrar pilts­ins, Ómar og félags­mála­stjóri í Vest­manna­eyjum það í kyrr­þey.

Aron Arn­órs­son var einn þeirra fjög­urra sem Ómar var dæmdur fyrir að hafa mis­notnað. Mál hans var þó ekki „leyst“. Hann var bráð­kvaddur þann 11. októ­ber árið 2013, ein­ungis 32 ára. Móðir hans sagði and­lát hans beina afleið­ingu af mis­notkun Ómars. „Við fengum hann aldrei til baka,“ sagði hún í minn­ing­ar­grein.

Þegar Aron lést þá hélt hann að Ómar væri á leið í fang­elsi í þrjú ár. Enda var það nið­ur­staða Hér­aðs­dóms Suð­ur­lands sem hafði sak­fellt hann fyrir ýmis kyn­ferð­is­brot gegn 14 til 15 ára pilt. Tæpum tveimur vikum eftir að Aron lést ákv­aðu fjórir af fimm dóm­urum að sýkna hann. Málið  dæmdu Markús Sig­ur­björns­son, Árni Kol­beins­son,  Ólafur Börkur Þor­valds­son, Viðar Már Matth­í­as­son og Ingi­björg Bene­dikts­dóttir. Líkt og í fleiri sýkni­dómum í kyn­ferð­is­brotum þá var Ingi­björg sú eina sem var ósam­mála.

Í þeim málum sem áttu sér stað hér á landi mátti greina ákveðið mynstur á mis­notkunni. Í Press­unni árið 1993 var því lýst svo: „Flest atvikin sem dæmt var fyrir voru af svipðum toga. Ómar sætti lagi var einn með pilt­unum, á heim­ili sínu eða í bíl. Hann sýndi þeim klám­m­myndir um leið og hann færði talið að kyn­ferð­is­málum. Hann sýndi þeim kyn­færi sín um leið og hann hafði í frammi kyn­ferð­is­lega til­buði, svo sem sjálfs­fróun. Einnig gerði hann til­raunir til að færa þá úr föt­unum og fara höndum um kyn­færi þeirra og tókst það í sumum til­fellum.“

Í mál­inu árið 2013 leit­aði pilt­ur­inn til Ómars því fjöl­skylda hans varð hús­næð­is­laus. „Pilt­ur­inn fékk húsa­skjól hjá Ómari, bæði í Breið­holti og í Kópavogi, og mat og pen­ing fyrir nesti í skól­ann, auk þess sem Ómar hélt að honum fíkni­efnum,“ segir í frétt Vísis um dóm hér­aðs­dóms.

Samkvæmt spænskum fjöl­miðlum þá er Ómar grun­aður um að hafa notað ávallt sömu aðferð, modus oper­andi eins og það er orðað. Hann mun hafa ving­ast við unga pilta, boðið þeim svo ýmis­leg verð­laun með það að mark­miði að mis­notka þá.

Móðir Arons heit­ins, Helga Jóns­dóttir, var afdrátt­ar­laus í við­tali við DV árið 2013. Hún taldi þjóð­ar­skömm hvernig dóm­stólar á Íslandi hög­uðu sér. „Ómar fær 10 mán­aða dóm fyrir barn­a­níð, það er svartur blettur á íslensku rétt­ar­kerfi, þessi drengir á sínum tíma fengu lífs­tíð­ar­dóm og sonur minn í reynd dauða­dóm,“ sagði Helga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum