Í Staksteinum Morgunblaðsins í dag kemur fram að yfirmenn Morgunblaðsins ætli ekki að hitta Sigríði Dögg Auðunsdóttur, formanns Blaðamannafélags Íslands og fréttamanns á RÚV. Í það minnsta er fullyrt að „það verði bið á því“. Forsaga málsins er að stjórn félagsins sendi frá sér tilkynningu þar sem lýst var yfir óánægju með auglýsingu Samherja á mbl.is. Auglýsingin var þó ekki til að kynna fisk heldur að ráðast á Helga Selja.
Staksteinar eru, líkt og svo oft áður, aðallega tilvitnun í bloggarann og framhaldsskólakennaran Pál Vilhjálmsson. Hann er helst þekktur fyrir öfgakenndar jaðarskoðanir. Í Staksteinum segir: „Páll Vilhjálmsson gerir að umtalsefni tilþrif nýs valdamanns í félagi blaðamanna, eftir að opinberir starfsmenn komust þar í forystu. Yfirskrift hans er sláandi: „RÚV-tilræði gegn Morgunblaðinu.“
Svo er vitnað í blogg Páls. „Fréttamaður RÚV, Sigríður Dögg Auðunsdóttir, beið ekki boðanna þegar hún hlaut kjör sem formaður Blaðamannafélags Íslands. Fyrsta verk nýkjörins formanns var að vega að lífsafkomu blaðamanna Morgunblaðsins vegna þess að blaðið birti auglýsingu frá Samherja. RÚV, vitanlega, slær málinu upp. Krafa Sigríðar Daggar, og þar með Blaðamannafélagsins, er að fjölmiðlar birti ekki auglýsingar sem eru í andstöðu við hagsmunahópinn í Efstaleiti. RÚV er ríkisrekinn fjölmiðill og vill enga samkeppni, hvorki í ritstjórnarefni né á auglýsingamarkaði. Einn fjölmiðill, einn auglýsingamarkaður – og enginn má gagnrýna Helgan Seljan Sannleika.“
Við þetta bætir sá sem skrifar Staksteina: „Þann 1. maí, af öllum dögum, krafðist formaðurinn skýringa af starfsmönnum Árvakurs (!) sem hann á enga kröfu til. Ekki er vitað til að „RÚV“ leiti samþykkis auglýsingadeildar blaðsins um birtingu auglýsinga. Sigríður formaður hefur svo boðað yfirmenn blaðsins á sinn fund! Það gæti orðið bið á því.“































Athugasemdir