Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ráðist á Berg fyrir að hlusta á Helga Björns: „Þau felldu hjólið og spörkuðu í andlitið á mér“

Ráðist á Berg fyrir að hlusta á Helga Björns: „Þau felldu hjólið og spörkuðu í andlitið á mér“
Guð­bergur á skutl­unni. Ofbeld­is­fólk réð­ist á hann í Aust­ur­brún í gær. Mynd: Guðmundur Sigurðsson.

„Ég var að koma akandi hér eftir Aust­ur­brún­inni þegar þessi ómenni réð­ust á mig. Svona skutla fer hægt yfir og ég var bara að njóta veð­urs­ins og hlusta á nýja lagið með Helga Björns þegar ósköpin dundu yfir,“ segir Guð­bergur Guðnason sem varð fyrir fólsku­legri árás í gær.
Eins og Mannlíf greindi frá í morgun var ráð­ist ráð­ist á eldri mann í gær með afar grófum hætti. Þrennt var í hópnum sem réðst gegn honum.
„Þau byrj­uðu á því að henda í mig flöskum með ein­hverju í sem ég veit ekki hvað var. Ég náði að beygja mig frá annarri en hin lenti í höfð­inu á mér. Ég spurði þau hvað þeim gengi til að koma svona fram við 74 ára gamlan mann. Þau sögðu að þeim lík­aði ekki lagið sem ég var að hlusta á og voru mjög dólgs­leg í fram­komu,“ segir Guð­bergur.

Hann ákvað að hringja á lög­regl­una en þá skipti engum togum að þre­menn­ing­arnir réð­ust á hann.

„Ég vank­að­ist mikið eftir að þau felldu hjólið og spörk­uðu í and­litið á mér. Eftir það börðu strák­arnir mig báðir og annar þerra með járn inn í lóf­anum til að gefa þyngri högg,“ segir Guð­bergur sem alla jafnan er kall­aður Bíla-Bergur.
Hann segir stelpuna hafa stolið af sér sím­anum á meðan á átök­unum stóð. Þá hafi hún líka stolið tölvukubb úr skutl­unni með þús­undum dæg­ur­laga sem hann hafi safnað sér í áranna rás.
„Ég náði að gera annan mann­anna óvirkan og hélt honum föstum en ákvað að sleppa honum í stað þess að bíða lög­regl­unnar sem var á leið­inni. Það var klaufa­skapur en löggan telur sig vita hverjir voru að verki, þetta munu víst vera kunn­ingjar þeirra, eins og sagt er“.
Fólk dreif að og svo vel vildi til að kona á vett­vangi náði myndum að atburð­unum og því ein­fald­ara en ella að þekkja ofbeld­is­fólkið.
„Ég sé eftir öllum lög­unum sem fólk hefur safnað fyrir mig og fært mér og skil ekki hvers vegna þau stálu kubbnum úr því að þau þoldu ekki lögin. Þau þola kannski engin lög, hvorki hegn­ing­ar­lög né dæg­ur­lög. Hélt nú samt að allir þyldu Helga Björns eftir allt sem hann hefur gert fyrir þjóð­ina“.
Bergur var lemstr­aður þegar Mannlíf hitti hann á heim­ili sínu nú eftir hádegið en það var samt í honum eld­móður. Vinir hans sem Mannlíf hitti sögðu að Bergur ætti fleiri líf en kött­ur­inn en  nú yrði hann að fara spar­lega með það sem eftir væri.
„Ég sagði þessum aum­ingjum að þeir væru heppnir að hafa ekki hitt á mig tíu árum fyrr, þá hefði ekki þurft neina löggu til að gera út um málið,“ segir Bergur og deplar bólgnum og bláum aug­unum stráks­lega.
Bergur var vanur að eiga við óláta­menn á meðan hann var lög­reglu­maður vestur á fjörðum fyrir margt löngu og skilja þurfti að heilu áhafn­irnar á ver­tíð­ar­loka­böllum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi