Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fréttamaður RÚV myrti Lovísu – Harmleikurinn á Miklubraut

Fréttamaður RÚV myrti Lovísu – Harmleikurinn á Miklubraut

Það var um kaffi­leytið þann 26. ágúst árið 1976 að Lovísa Krist­jáns­dóttir, 57 ára Reyk­vík­ingur, brá sér í hús við Miklu­braut 26, til að vökva blóm fyrir vin­konur sínar, mæðgur sem voru á ferða­lagi í London.

Þetta góð­verk átti eftir að kosta Lovísu lífið þennan dag.

Alblóðug eftir eggvopn

Þegar Lovísa skil­aði sér ekki heim varð eig­in­maður hennar óró­legur og hafði að lokum sam­band við lög­regl­una um tíu­leitið um kveldið. Hann tjáði lög­reglu að það síð­asta sem hann hefði vitað af ferðum Lovísu hafi verið skottúr hennar á Miklu­braut­ina til að sinna blómunum. Lögregla hélt taf­ar­laust á stað­inn og fann Lovísu látna.

Lovísa lá alblóðug fyrir neðan hring­stiga sem lá niður í kjall­ara íbúð­ar­innar. Í upp­hafi var ljóst að ekki var um slys að ræða heldur morð og var fyrsta hugsun lög­reglu að öxi eða ann­ars konar höggvopn hefði verið notað við verkn­að­inn. Ekkert benti til inn­brots í húsið en þrennar úti­dyr voru að hús­inu. Rætt var við nágranna sem kváð­ust ekki hafa orðið varið við neitt og hófst strax leit að mögu­legu morð­vopni í nær­liggj­andi görðum svo og á Mikla­túni.

Grunur fellur á fjölmiðlamann

Ekki leið á löngu þar til grunur féll á Ásgeir Ing­ólfs­son, 42 ára þekktan fjöl­miðla­mann sem var kunn­ingi ungu kon­unnar sem bjó í íbúð­inni. Ásgeir hafði starfað sem blaða­maður og þýð­andi Vísi og Morg­un­blað­inu árin 1960 til 1967 og síðar frétta­maður og þulur hjá Rík­is­út­varp­inu til 1975.

Fékk málið mikla umfjöllun í sam­tíma­heilmildum, bæði vegna þess hve hrotta­leg árásin á Lovísu hafði verið en einnig vegna frægðar Ásgeirs.

Fjöldi vitna gáfu sig fram sem sögðu Ásgeir hafa verið við húsið þennan dag enda Ásgeir þekkt and­lit á hverju heim­ili í þjóð­fé­lag­inu. Á þessum árum hvíldi þó dökkur skuggi fíknar yfir Ásgeiri og lit­aði það líf hans.

Frímerkjasafnið verðmæta

Ásgeir var færður til yfir­heyrslu en neit­aði stað­fast­leg allri aðkomu að mál­inu.  Við hús­leit á heim­ili hans fannst ekk­ert sem tengdi hann við morð Lovísu. Töluvert mis­ræmi reynd­ist þó í fram­burði Ásgeirs sem gat enga skýr­ingu gefið á veru sinni við Miklu­braut­ina. Ástæða þótti til að halda Ásgeiri í gæslu­varð­haldi.

Meðal þeirra sem tóku þátt í yfir­heyrslum Ásgeirs var þýsiki lög­reglu­mað­ur­inn Karl Schütz, sem kall­aður hafði verið til lands­ins í vegna Guð­mundar- og Geir­finns­máls­ins eins og frægt er orðið. Svo fór að Ásgeir kall­aði eftir því að ræða eins­lega við Schütz þann 1. sept­em­ber og ját­aði hann fyrir honum morðið auk þess að rekja atburði hins örlaga­ríka dags.

Kvaðst Ásgeir hafa vitað af verð­mætu frí­merkja­safni í íbúð­inni og hugð­ist nýta sér fjar­veru mæðgn­anna og ræna íbúð­ina enda átti hann lykil að íbúð­inni sem hann hafði látið gera rúmu ári áður.

Með kúbein í tösku

Um morg­unin sagð­ist Ásgeir hafa farið inn í íbúð­ina með bláa íþrótta­tösku, fulla verk­færa úr bíl sínum. Hann tók sér góðan tíma í íbúð­inni, tók frí­merkja­safnið auk ann­arra verð­mæta sem í íbúð­inni var að finna, meðal ann­ars skart­gripi. Vitandi af íbú­unum erlendis var hann hinn róleg­asti á meðan hann fór í gegnum húsið. Því var honum brugðið þegar hann heyrði ein­hvern koma inn. Þar var Lovísa á ferð, komin til að vökva blómin.

Henni var brugðið við að sjá Ásgeir, sem hún átti eðli­lega ekki von á í íbúð­inni og það aug­ljós­lega í leyf­is­leysi. Hún mun enn­fremur hafa gert sér grein fyrir að til­gangur Ásgeirs í hús­inu var þjófn­aður. Ásgeir grát­bað Lovísu um að segja ekki til sín ef hann skil­aði öllu þýf­inu. Lovísa mun hafa hikað við en neitað síðan alfarið að verða við því. Fylltist Ásgeir þá örvænt­ingu, tók kúbein sem hann hafði í íþrótta­tösk­unni og sló Lovísu ítrekað í höf­uðið þar til hún lést. Losaði hann sig síðar við morð­vopnið á ösku­haug­unum.

Ár sorgar og átaka

Ásgeir var dæmdur til sextán ára fang­els­is­vistar af saka­dómi Reykja­víkur þann 4. mars 1977. Einnig var hann dæmdur fyrir þjófnað í íbúð­inni svo og þjófnað á þremur pen­inga­kössum í vél­smiðj­unni Héðni rúmu hálfu ári áður.

Árið 1976 var örlaga­ríkt og sorg­legt ár, ekki aðeins vegna dap­ur­legra örlaga þeirra Lovísu og Ásgeirs, tveggja ein­stak­linga sem bæði þóttu mikið sóma­fólk í alla staði þrátt fyrir að ógæfa fíknar hafi gert Ásgeir að morð­ingja. Þetta árið voru þrjú önnur morð framin hér á landi auk þess sem Guð­mundar- og Geir­finns­málið stóð í hámarki á þessum tíma.

Ásgeir fékk reynslu­lausn fimm árum eftir dóm­inn, hóf nýtt líf, sneri sér að þýð­ingum sem hann hafði áður haft starfa við og vann hjá Stöð 2 frá 1987 til dauð­dags árið 2001.

Hann fékk upp­reist æru árið 1996.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum