Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Veirusmit við samfarir getur valdið leghálskrabbameini

Veirusmit við samfarir getur valdið leghálskrabbameini

„Stað­reyndin er sú að meiri­hluti þeirra sem fara í leg­háls­speglun finna aðeins lítil eða jafn­vel engin óþæg­indi. Það heyrir til und­an­tekn­inga að konur finni veru­legan sárs­auka. Jafnvel í þeim til­vikum þá tekur sýna­takan það stuttan tíma, aðeins nokkur augna­blik, að það tekur því ekki að deyfa,“ segir Ágúst Ingi Ágústs­son, kven­sjúk­dóma­læknir og fyrr­ver­andi yfir­læknir og sviðs­stjóri á Leit­ar­stöð Krabba­meins­fé­lags Íslands.

„Deyfing lengir skoð­un­ina og henni fylgja einnig óþæg­indi svo þegar upp er staðið þá hefur það lítið upp á sig. Konur sem upp­lifa mik­inn sárs­auka við sýna­tök­una geta alltaf óskað eftir deyf­ingu síðar ef gera þarf nýja sýna­töku. Í leg­háls­spegl­un­inni er leg­háls­inn fyrst skoð­aður vand­lega með smá­sjá; spegl­unin. Að því loknu eru tekin pínu­lítil sýni af leg­háls­inum, venju­lega tvö til fimm sýni, með þar til gerðri töng. Það er því ekki skorið í leg­háls­inn heldur eru sýnin klippt með þess­ari töng,“ segir Ágúst Ingi.

80 prósent smitast

HPV-veirusmit er mjög algengt og er talið að um 80 pró­sent fólks sem stundar kyn­líf smit­ist af HPV-veirunni sem breið­ist út við kyn­mök eða nána snert­ingu húðar á kyn­færa­svæði. HPV-stofnar eru margir og er talið að und­ir­teg­undir séu rúm­lega 100. Tæplega 30 teg­undir veirunnar geta valdið frumu­breyt­ingum í kyn­færum kvenna en um 15 þeirra tengj­ast leg­hálskrabba­meini en aðrar geta valdið vörtum á kyn­færum. Tveir stofnar veirunnar valda um 70-75% allra leg­hálskrabba­meina auk þess sem um 13 sjald­gæfari stofnar veirunnar geta valdið leg­hálskrabba­meini. Það er því mik­il­vægt að mæta reglu­lega í leg­háls­skoðun þótt við­kom­andi hafi verið bólu­sett. Síðustu ár hefur stúlkum verið boðið upp á bólu­setn­ingu gegn hættu­leg­ustu stofnum HPV-veirunnar en þrátt fyrir það er nauð­syn­legt að mæta reglu­lega í leg­háls­skoðun. 

Það þarf einn smit­aðan rekkju­naut til að smit­ast af HPV-veiru en aukin áhætta við að fá við­var­andi HPV-smit og síðar leg­hálskrabba­mein teng­ist meðal ann­ars fjölda rekkju­nauta og ef smokkur er ekki not­aður. Nefna má fleiri þætti sem geta haft áhrif á við­var­andi HPV-smit svo sem aðrar sýk­ingar og reyk­ingar en til dæmis nikótín finnst í leg­háls­sýni kvenna sem reykja.

Frumu­breyt­ingar í leg­hálsi vegna HPV-smits eru ein­kenna­lausar en þær geta þró­ast yfir í leg­hálskrabba­mein en ein­kenni geta þá verið blæð­ingar úr leggöngum eftir sam­farir, óeðli­leg útferð úr leggöngum og verkir í kyn­færum. Konur ættu að mæta reglu­lega í leg­háls­skoðun en þá er frumu­strok tekið úr leg­hálsi og sett í rann­sókn. Um er að ræða ein­falda en mik­il­væga rann­sókn sem gerð er hjá kven­sjúk­dóma­læknum, á heilsu­gæslu­stöðvum og hjá heim­il­is­læknum. 

7-800 íslenskar konur árlega

Frumu­breyt­ingar, eða for­stigs­breyt­ingar, finn­ast árlega hjá um 7-800 íslenskra kvenna sem farið hafa í leg­háls­skoðun. Óeðli­legt frumu­strok getur verið allt frá mjög vægum eða óljósum breyt­ingum í afger­andi frumu­breyt­ingar. Lang­flestar fara í nýtt strok eftir sex mán­uði en þær sem eru með mjög afger­andi vís­bend­ingar um frumu­breyt­ingar fara beint í leg­háls­speglun. Af þeim sem koma aftur eftir sex mán­uði fara svo ein­hverjar í leg­háls­speglun einnig vegna nið­ur­stöðu úr seinna strok­inu. 

Konur fá ekki deyf­ingu áður en þær fara í leg­háls­speglun og finna sumar til þegar sýni eru klippt úr leg­háls­inum eftir spegl­un­ina sjálfa. 

Keiluskurður

Frumu­breyt­ing­arnar ganga oft­ast til baka en ef um slæmar frumu­breyt­ingar er að ræða er ráð­lagður keilu­skurður. Hér á landi hafa síð­ustu fimm ár verið gerðir tæp­lega 300 keilu­skurðir á ári að með­al­tali.

Í keilu­skurði er aldrei allur leg­háls­inn tek­inn heldur aðeins ysti hluti hans, aðeins um 5 mm að þykkt. Ágúst segir að flest krabba­mein séu það lítil og stutt gengin að ein­faldur keilu­skurður dugi til lækn­ingar.

Hér á landi grein­ast að með­al­tali 15-20 konur árlega með leg­hálskrabba­mein og í sumum til­fellum eru þetta konur sem hafa ekki mætt reglu­lega í leg­háls­skoðun. Nið­ur­stöður rann­sóknar hér á landi hafa þó leitt í ljós að fer­ill sjúk­dóms­ins á meðal yngri kvenna virð­ist stundum vera svo hraður að krabba­mein á byrj­un­ar­stigi geta greinst með frumu­stroki áður en þrjú ár eru liðin frá síð­asta eðli­lega frumu­stroki. Það að mæta reglu­lega í leg­háls­skoðun ætti í flestum til­fellum að koma í veg fyrir að frumu­breyt­ingar eða for­stigs­breyt­ingar verði að krabba­meini þar sem þá er gripið í taumana. Skimun er ekki 100 pró­sent vörn gegn leg­hálskrabba­meini. Með því að mæta í skimun reglu­lega minnka lík­urnar á krabba­meini um 90% en það kemur ekki full­kom­lega í veg fyrir það og stundum eru frumu­breyt­ingar til staðar þó það sjá­ist ekki í stroki.

Skimun skapar öryggi

„Það er afar sjald­gæft og heyrir til algerra und­an­tekn­inga að krabba­mein geti mynd­ast á innan við þremur árum eftir að næsta sýni á undan hefur reynst eðli­legt,“ segir Ágúst Ingi.

„Miklar frumu­breyt­ingar eru ekki krabba­mein og jafn­vel þó þær hafi mynd­ast á þremur árum frá áður eðli­legu stroki þá er kon­unni ekki hætta búin svo lengi sem hún mætir reglu­lega. Þá finn­ast breyt­ing­arnar í tæka tíð og konan fær við­eig­andi með­höndlun. Það að stytta tím­ann milli skoð­ana enn frekar hefur verið sýnt fram á að auka ekki árangur af skimun­inni. Með því er átt við að það tekst ekki að koma í veg fyrir fleiri til­felli eða bjarga fleiri konum, því miður. Þriggja ára bil milli skoð­ana byggð­ist á gamla kerf­inu þar sem skoð­aðar voru frumur frá leg­háls­inum.

10 ár frá smiti í krabbamein

Með nýja kerf­inu er ski­mað fyrir HPV-veirum sem geta valdið frumu­breyt­ingum. Tíminn sem líður frá HPV-smiti og þangað til krabba­mein mynd­ast er um það bil 10 ár. Þannig að ef kona er HPV-nei­kvæð í skimun þá eru nán­ast engar líkur á að hún geti hafa fengið krabba­mein á fimm árum, helm­ingi styttri tíma en talið er að þurfi til að krabba­mein mynd­ist. Jafnvel fyrir konu sem fengi HPV-smit dag­inn eftir sýna­tök­una þá væru lík­urnar nán­ast engar á því að hún gæti verið komin með krabba­mein eftir fimm ár. Það sem leik­mönnum finnst oft erf­ið­ast að skilja er að skimunin bygg­ist á að lækka nýgengi og dán­ar­tíðni í stóru þýði, heilli þjóð, og verk­lagið bygg­ist á töl­fræði og líkum. Það er aldrei gengið út frá því að öllum sé hægt að bjarga enda er það ómögu­legt. Þess vegna koma óhjá­kvæmi­lega upp sorg­leg til­vik um ungar konur sem fá krabba­mein þrátt fyrir að hafa jafn­vel mætt reglu­lega í skimun.“

Það að grein­ast með frumu­breyt­ingar, krabba­mein og fara jafn­vel í keilu­skurð veldur and­legu álagi.

„Það er deg­inum ljós­ara að það getur haft mikil áhrif og valdið kvíða og ótta að fá þær nið­ur­stöður að kona sé með frumu­breyt­ingar. Mín reynsla er sú að rétt fræðsla og upp­lýs­ingar dregur veru­lega úr ótta og kvíða.“

Alveg óskiljanlegt

Ágúst Ingi segir að skoðun sín sé sú að konur eigi ekki að geta mætt þegar þeim sýn­ist til að láta taka hjá sér leg­háls­strok – ef um ein­kenna­lausa skimun er að ræða. 

„Kerf­is­bundin skimun er flókin og krefst mjög mik­ils utan­um­halds. Það að mæta oftar í skimun en ákveðið er eykur ekki árangur skimun­ar­innar en eykur aftur á móti kostn­að­inn. Það verður að hafa í huga að almenn­ingur – í þessu til­felli konur – greiða aðeins hluta af kostn­að­inum við skimun­ina en stjórn­völd greiða meiri­hlut­ann. Þess vegna er mik­il­vægt að tryggja að pen­ing­unum sé sem best varið og það þarf að vera öruggt að skimunin sé að gera gagn. Til þess að hægt sé að fylgj­ast með gagn­semi skimun­ar­innar er nauð­syn­legt að hún fylgi ákveðnu kerfi og sé í föstum skorðum. Ef svo er ekki þá getur eng­inn með vissu haldið því fram að það sé gagn af henni en ekki bara sóun á fjár­munum. Út frá þessum for­sendum verð ég að taka undir mik­il­vægi þess að konur fylgi skimun­ar­leið­bein­ing­unum og mæti þegar þeim er boðið en ekki oftar. Með þessu er ég alls ekki að taka afstöðu til ein­stakra til­vika. En það geta alltaf verið und­an­tekn­ingar sem krefj­ast þess að ski­mað sé fyrr en ella og það verður að skoða hvert til­vik fyrir sig. Það er mjög mik­il­vægt að treysta dóm­greind lækna í þessu atriði.“

Mikil óánægja hefur verið und­an­farin miss­eri eftir að farið var að senda leg­háls­sýni í skimun til Dan­merkur eftir að Krabba­meins­fé­lagið hætti að sjá um þennan þátt heil­brigð­is­þjón­ust­unnar. Nið­ur­stöðu er lengur að bíða en áður og fyll­ast margar konur ótta.

„Mín skoðun er sú að málum sé í dag verr fyrir komið en það var meðan Krabba­meins­fé­lag Íslands sá um leg­háls­skimun­ina,“ segir Ágúst Ingi. „Ég efast ekki um hæfni dönsku rann­sókna­stof­unnar en íslenska heil­brigð­is­kerfið er að minnsta kosti jafn hæft til að fram­kvæma þessar rann­sóknir og þess vegna tel ég það vera mikil mis­tök að senda sýnin úr landi. Það getur haft alvar­leg áhrif á íslenska rann­sókna­starf­semi að senda svona mik­inn fjölda sýna úr landi til rann­sóknar. Það er í raun alveg óskilj­an­legt að sú ákvörðun hafi verið tekin að flytja sýnin úr landi, þvert á ráð­legg­ingar allra umsagn­ar­að­ila að einum ein­stak­lingi und­an­skildum. Þar á ég við skimun­ar­ráð, land­lækni, meiri­hluta fagráðs um leg­háls­skimanir, verk­efn­is­stjórn sem ráð­herra skip­aði sjálfur, KÍ að sjálf­sögðu, fag­fé­lög fæð­inga- og kven­sjúk­dóma­lækna og rann­sókna­lækna, lækna­ráð Land­spít­ala og yfir­lækna rann­sókna­deilda Land­spít­ala. Varðandi þær miklu tafir og í raun þann ólestur sem nú ríkir varð­andi það að upp­lýsa konur og sýna­töku­að­ila um nið­ur­stöð­urnar þá tel ég að það sé að hluta til um tíma­bundið ástand að ræða. Að hluta til er um að ræða tækni­lega flókna yfir­færslu á tölvu­kerfum og gagna­grunnum sem ekki hefur gengið sem skyldi. Ég tel að þetta muni kom­ast í lag. Á hinn bóg­inn tekur það óhjá­kvæmi­lega mun lengri tíma að fá nið­ur­stöður þegar senda þarf sýnin úr landi. Land­spít­ali sá um HPV-mæl­ingar fyrir LKÍ um tveggja ára skeið og veitti fram­úr­skar­andi þjón­ustu og mjög skjóta. LKÍ hafði áður sent sýni erlendis til rann­sóknar og það tók venju­lega um þrjár vikur að fá nið­ur­stöður. Það tók Land­spít­ala aðeins örfáa daga að skila sömu nið­ur­stöðum. Varðandi yfir­færslu á tölvu­kerfum þá hefði þurft að hafa mun lengri aðdrag­anda og und­ir­bún­ings­tíma fyrir það. Ákjós­an­legra hefði verið að færa verk­efnið yfir á nýja aðila í þrepum án þess að loka LKÍ sam­tímis. Ákvörðun um þetta var hins vegar tekin í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en ekki af Krabba­meins­fé­lag­inu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum