Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Neytandi vikunnar – „Ég myndi vilja meira gagnsæi um verðþróun“

Neytandi vikunnar – „Ég myndi vilja meira gagnsæi um verðþróun“

Neytandi vik­unnar að þessu sinni er Björn Leví Gunn­ars­son fram­bjóð­andi Pírata í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi suður. Björn Leví býr í Reykja­vík ásamt eig­in­konu og tveimur börnum sem verða bæði komin í grunn­skóla í haust. Björn er upp­runa­lega úr Þor­láks­höfn en hefur búið á Grund­ar­firði, Sauð­ár­króki, Kópavogi, og í Providence í Banda­ríkj­unum. Hann er með masters­gráðu í tölv­un­ar­fræði með áherslu á gervi­greind og mennta­tölvu­tækni. Björn hefur unnið ýmis störf um ævina, unnið sem ung­lingur í sveit, fisk­vinnslu, bygg­ing­ar­vinnu, leið­bein­andi á leik­skóla og grunn­skóla, kerf­is­stjórn og umsjón tölvu­mála í opin­berum stofn­unum og sinnt gæða­eft­ir­liti og tölvu­þjón­ustu.

Hve miklu eyðir fjöl­skyldan í mat og aðrar rekstr­ar­vörur heim­il­is­ins á mán­uði og hvar verslar hún helst ?

„Versla aðal­lega í Krónunni og Bónus. Sökum þess að starfs­um­hverfið er mjög óskipu­lagt er þessi kostn­aður mjög breyti­legur og ég get ekki svarað því hversu miklu ég eyði í mat og rekstr­ar­vörur alla jafna. Heim­il­is­bók­haldið í net­banka­for­rit­inu sýnir mér enga gáfu­lega sund­ur­liðun á þessum kostn­aði“.

Hverju vilt þú breyta sem neytandi ?

„Ég myndi vilja meira gagn­sæi um verð­þróun. Ég myndi vilja að verð­skrár versl­ana væru aðgengi­legar á tölvu­les­an­legu formi. Þannig væri hægt að fylgj­ast með því að afslættir væru í alvör­unni afslættir en ekki að vara hafi verið hækkuð í verði áður en hún var sett á afslátt“.

Leggur þú fyrir, og hvaða leiðir notar þú ef svo er  ?

„Já, ég legg reglu­lega til hliðar á lok­aðan reikn­ing. Ég passa að hafa svig­rúm til þess að geta greitt stóra óvænta reikn­inga en set afgang­inn á lok­aðan reikn­ing“.

Telur þú álagn­ingu versl­ana sann­gjarna og gerir þú verð­sam­an­burð á vörum og þjón­ustu ?

„Ég hef ekki tíma til þess að gera verð­sam­an­burð. Álagn­ingin er gríð­ar­lega mis­jöfn og miss­ann­gjörn eftir því. Pakki af súkkulað­irús­ínum getur kostað allt frá tæp­lega 500 kr. til tæp­lega 1.000 kr“.

Verðtryggð lán, óverðtryggð lán eða engin lán ?

„Ég er með verð­tryggt lán hjá líf­eyr­is­sjóði. Þar er ekki í boði óverð­tryggt lán. Val­mögu­leik­arnir núna um óverð­tryggt lán með breyti­legum vöxtum og verð­tryggt lán eru í raun engir val­mögu­leikar. Óverð­tryggt lán með breyti­legum vöxtum er ekk­ert annað en verð­tryggt lán með geð­þótta­á­kvörðun um breyt­ingar á vöxtum. Verð­tryggt lán er þó með rök­studda til­vísun í eitt­hvað staðlað. Vissu­lega er hægt að fast­binda vexti í ein­hvern tíma en það er alltaf veð­mál hvenær rétti tím­inn er til þess að fast­binda vexti “.

Það þarf að laga margt í þessu. Það er ekki boð­legt að það séu alltaf neyt­endur sem taki á sig sveifl­urnar, að neyt­endur taki alla áhætt­una. Það verður að koma í veg fyrir að hægt sé að nota mæli­tæki sem við­mið til hækk­ana, eins og vísi­tala neyslu­verðs er, því það eyði­leggur mæli­tækið“.

Umhverf­is­vernd, skiptir hún þig máli ?

„Já. Ég hugsa umhverf­is­vernd mjög mikið út frá sjálf­bærni. Það er aug­ljós­lega ekki gott að vera ósjálf­bær á neinn hátt. Það gengur ekki til lengdar. Umhverf­is­vernd er í raun­inni sjálf­bærni í öllu sem við­kemur fram­tíð­ar­mögu­leikum. Ég sé ekki hvernig er hægt að vera á móti því“.

Annað sem þú vilt taka fram ?

„Það vantar gagn­sæi á svo mörgum sviðum, og ekki síst í neyt­enda­málum. Gagnsæi brýtur upp ein­okun og býr til sann­gjarnt sam­keppn­isum­hverfi sem kemur neyt­endum alltaf vel“.

Hvaða mál og málaflokkar telur þú að þurfi að leggja meiri áherslu á ?

„Augljósu málin sem þarf að leggja mikla áherslu á eru heil­brigð­is­málin (í stóru sam­hengi, heilsu­gæslu, sjúkra­húsa, öldr­unar, örorku og geð­heil­brigðis), atvinnu­mál, hús­næð­is­mál og umhverf­is­mál. Hagkerfi fyrir alla er hag­kerfi þar sem fólk er með þak yfir höf­uðið og á góðan afgang eftir nauð­synjar og býr við heil­brigði í sjálf­bæru sam­fé­lagi. Mér finnst ekki nægi­lega vel hugsað um þennan grund­völl heil­brigðs sam­fé­lags. Það sem þarf svo að leggja meiri áherslu á í dag eru nýsköp­un­ar­mál. Í síbreyti­legum heimi þurfum við að vera stöðugt á vakt­inni svo við getum aðlag­ast breyttum aðstæðum. Það gerum við best með því að hafa mjög virkt nýsköp­un­ar­um­hverfi til þess að takast á við áskor­anir fram­tíð­ar­innar“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum