Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Garðari bjargað á seinustu stundu þegar Krossnes fórst: „Hann átti aðeins örfáar mínútur ólifaðar“

Garðari bjargað á seinustu stundu þegar Krossnes fórst: „Hann átti aðeins örfáar mínútur ólifaðar“

„Þegar brotnar bylgjan þunga, brimið heyr­ist yfir fjöll, þegar hendir sorg við sjó­inn, syrgir, tregar þjóðin öll, vertu ljós og leið­ar­stjarna“, skrif­aði Halldór Finnsson í minn­ing­ar­orðum um mennina­sem fór­ust þegar tog­ar­inn Krossnes SH fórst á Hala­miðum.

Allir fóru til hjálpar

Það var um klukkan 8 að morgni sunnu­dags­ins 23. febr­úar 1992 að neyð­ar­kall barst frá tog­ar­anum Kross­nesi þar sem þeir segj­ast vera komnir á hlið­ina. Öll nálæg skip hífðu strax upp veið­ar­færi og héldu til hjálpar hinu nauð­stadda skipi. Örfáum mín­útum eftir að neyð­ar­kallið barst hvarf Krossnes af rat­sjá. Slétta­nes ÍS var eitt þeirra skipa sem næst voru slys­staðnum, aðeins um eina sjó­mílu frá Kross­nesi.

Við neyð­ar­kallið var strax unnið sam­kvæmt neyð­ar­plani um borð í Slétta­nesi. Stýri­maður sem var á vakt í brúnni ræsti þegar út alla áhöfn­ina og gaf út skipun um að gert yrði klárt til björg­unar mann­anna.

„Hann var greinilega langt leiddur“

Reynir Trausta­son var þá fyrsti stýri­maður um borð í Slétta­nesi og á vakt í brúnni þennan örlaga­ríka morgun. Hann sagði síðar í við­tali við Morg­un­blaðið að Það hafi ráðið úrslitum að allir gerðu rétt á þess­ari stundu.

„Ég rauk í spilið og hífði í einum grænum hvelli. Bað strák­ana að vera fljótir að afgreiða þetta því að skip væri að sökkva við hlið­ina á okkur. Öll áhöfnin var sett í stöðu sam­kvæmt neyð­ar­plani. Kokk­ur­inn settur í að hita kakó eins og gert er ráð fyrir. Þegar búið er að ná mönn­unum upp verður að hita þá strax upp með öllum ráðum,“ sagði Reynir.

Stýri­mað­ur­inn var uppi í brú ásamt Steinari Jónassyni vél­stjóra sem var á útkikki. Fljót­lega sáu þeir á Slétta­nesi neyð­ar­blys frá tveimur gúmmí­björg­un­ar­bátum og komu sam­tímis að með tog­ar­anum Guð­björgu. Steinar vél­stjóri kall­aði upp yfir sig að hann sæi mann í sjónum. Skipið var stöðvað. „Í því sáum við glitta í tvo flot­galla í sjónum. Sá sem við komum fyrst að var opinn og tómur. Þegar við komum að hinum sáum við að maður var í honum. Við köll­uðum en fengum lítil við­brögð. Hann var greini­lega langt leiddur.”

Kastaði sér fyrir borð

Á því augna­bliki kastaði Bergþór Gunn­laugs­son, annar stýri­maður, sér fyrir borð í flot­galla og með líf­línu til að bjarga mann­inum. „Hann tók hár­rétta ákvörðun á hár­réttu augna­bliki og það held ég að hafi orðið þessum manni til lífs því ég held að hann hafi ekki átt nema örfáar mín­útur ólif­aðar þegar hann kom hér um borð. Það var mik­ill velt­ingur og hann setti sig í stór­hættu,“ sagði Reynir síðar. Halldór Lárus Sig­urðs­son báts­maður fylgdi svo á eftir Bergþóri í sjó­inn og sam­eig­in­lega tókst þeim að koma Garðari í Mark­ús­ar­net og hann var hífður um borð.

Maðurinn sem bjargað var um borð í Slétta­nes, ,Garðar Gunn­ars­son, átti að baki ára­tuga­feril sem sjó­maður og skip­stjórn­ar­maður. Talið er að hann hafi verið hálf­tíma í fimm gráða köldum sjónum áður skip­verjar  af Slétta­nesi björg­uðu honum með líf­taug og Mark­ús­ar­neti.

„Mér finnst það ótrú­legt þrek hjá svona gömlum manni að lifa þetta af. Við sáum það allir sem tókum við honum að hann var á mörkum lífs og dauða þegar hann kom um borð. Hann var alveg mátt­laus, náfölur og við héldum á tíma­bili að hann væri far­inn“.

Níu bjargað

Garðar, sem hafði rétt fyrir slysið farið í hjarta­þræð­ingu, reynd­ist fót­brot­inn þegar hann kom um borð. Björg­un­ar­bát­ur­inn Daníel Sig­munds­son fór með lækni frá Ísafirði til móts við Slétta­nesið. Þegar þeir mætt­ust við utan­vert Djúpið var það slæmt í sjó­inn að ekki var talið ráð­legt að flytja lækn­inn milli skip­anna. Björg­un­ar­bát­ur­inn sigldi því með Slétta­nes­inu til Bol­ung­ar­víkur og þar fór lækn­ir­inn um borð og bjó um hann til flutn­ings á sjúkra­húsið á Ísafirði. Hann fór síðan með sjúkra­flugi til Reykja­víkur síð­degis á sunnu­dag­inn og gekkst undir aðgerð á Landa­kots­spít­ala.

Bergþór og félagar hans unnu mikið afrek með björgun Garðars og var það það meðal ann­ars þakkað björg­unaræf­ingum sem skylda er að gera einu sinni á ári um borð í skipum.

Alls var níu mönnum bjargað af Kross­nes­inu þennan dag en þeir Gísli Árnason, Hans Guðni Frið­jóns­son og Sig­mundur Elíasson fór­ust.

Garðar Gunn­ars­son lést í sept­em­ber, árið 2000, rúmum átta árum eftir slysið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum