Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Sævar lést í Noregi: „Óbærileg sorg og erfiðara en tárum taki að kveðja“

Sævar lést í Noregi: „Óbærileg sorg og erfiðara en tárum taki að kveðja“

Sævar Þór Hilm­ars­son verður jarð­sung­inn í dag frá Hafn­ar­fjarð­ar­kirkju en hann lést á heim­ili sínu í Noregi 14. októ­ber 2020, fimm­tugur að aldri.

Sævar Þór var fæddur í Reykja­vík 31. ágúst 1970. Hann ólst upp í for­eldra­húsum Hafn­ar­firði til sjö ára ald­urs en þá flutti fjöl­skyldan á Hvols­völl. Þaðan lá leiðin aftur til Hafn­ar­fjarðar.

Sævar varð stúd­ent frá Flens­borg og stund­aði hann síðar háskóla­nám bæði í Frakk­landi og Noregi. Að loknu námi kenndi Sævar í grunn­skólum hér á landi en flutti síðan til Noregs eftir hrun.

Faðir Sævars kveður ein­stakan og ljúfan dreng í minn­ing­ar­grein í Morg­un­blað­inu. „Það vill gjarnan verða við leið­ar­lok að maður verður lág­vær og lang­sótt getur verið í orð­anna sjóð hvað draga skuli fram að lokum. Manni finnst það vera dálítið sér­kenni­legt að for­eldrar skuli þurfa að standa í því ömur­lega hlut­verki að kveðja og jarð­syngja barnið sitt. Vonandi hef­urðu fundið frið elsku fal­legi sonur. Við elskum þig og hafðu þökk fyrir allt. Reynum að finna styrk­inn saman og ylja okkur við allar þær frá­bæru minn­ingar sem við eigum öll um ein­stakan og ljúfan dreng.“

Bróðir hans gerir slíkt hið sama. „Það er skrýtin til­finn­ing og erfitt að fylgja bróður sínum til grafar, en líka gott að geta komið honum til hvíldar í sum­ar­land­inu sínu, þar sem honum líður örugg­lega vel núna. Eitt aðal­ein­kenni Sævars var að hann var alltaf svo blíður og góður við alla. Vinum sínum var hann traustur og góður vinur. Hann hafði ein­stakan og skemmti­legan húmor og fynd­inn og það var svo gaman að vera með honum þegar hann var í góðum gír. Nú kveðjum við ást­kæran bróður, vin, mág og frænda. Dreng með fal­legt hjarta­lag sem fór allt of snemma en gaf öllum af sér sem kynnt­ust honum. Minn­ingin þín mun lifa, elsku Sævar okkar!“

Stjúp­systir Sævars segir stórt skarð höggvið hjá fjöl­skyld­unni við and­lát Sævars sem reynt verði að fylla með góðum minn­ingum. „Alltaf var jafn gaman að hitta þig, þú varst ein­stakur gull­moli með góða nær­veru, alltaf stutt í húmor­inn og glensið. Það er óbæri­leg sorg og erf­ið­ara en tárum taki að kveðja góðan vin eins og þig. Við fjöl­skyldan reynum eftir fremsta megni að rifja upp og ylja okkur með frá­bærum minn­ingum um þig, elsku Sævar.“

Sævar verður jarð­sung­inn frá Hafn­ar­fjarð­ar­kirkju í dag kl. 13.

Mannlíf vottar aðstand­endum samúð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum