Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„KSÍ gerir engar tilraunir til að þagga niður ofbeldismál eða hylma yfir með gerendum“

„KSÍ gerir engar tilraunir til að þagga niður ofbeldismál eða hylma yfir með gerendum“

Guðni Bergsson, for­maður KSÍ, og félagar hans þver­taka fyrir að reynt sé að hylma yfir ger­endur kyn­ferð­is­of­beldis hjá sam­band­inu. For­mað­ur­inn vísar á bug öllum dylgjum þess efnis að reynt sé að þagga niður ofbeld­is­mál þeirra sem leikið hafa fyrir KSÍ.

Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu sem KSÍ sendi frá sér. Háværar sögur ganga um sam­fé­lagið um alvar­leg ofbeld­is­brot íslenskra lands­liðs­manna og fram hafa komið hrotta­legar lýs­ingar á meintu kyn­ferð­is­broti tveggja þeirra. Nýlegur pist­ill fram­halds­skóla­kenn­ar­ans Hönnu Bjargar Vil­hjálms­dóttur hefur sjálf­sagt ýtt Guðna og félögum út í það að senda frá sér yfir­lýs­ingu en hún sakar KSÍ um þöggun og kven­fyr­ir­litn­ingu.

Sjá einnig: Segir tvo þjóð­þekkta Íslend­inga hafa nauðgað sér ítrekað: „Ég skila skömminni, FOKKIÐ YKKUR“

Líkt og Mannlíf greindi fyrst frá liggur einn þekkt­asti og virt­asti lands­lið­maður Íslands í knatt­spyrnu, Gylfi Þór Sig­urðs­son, nú undir grun um brot gegn stúlku undir lög­aldri. Hann er laus úr haldi á Englandi eftir að hafa

borgað trygg­ingu

þess efnis.Knatt­spyrnu­mað­ur­inn Gylfi Sig­urðs­son sé laus gegn trygg­ingu til 16. októ­ber næst­kom­andi.

Rannsókn á máli Gylfa er í fullum gangi en hann er þó ekki í varð­haldi eftir að hafa greitt trygg­ingu. Mál Gylfa Þórs, leik­manns Evert­on, er ennþá til rann­sókn­ar hjá lög­regl­unni í Manchester, og ekki hef­ur verið gef­in út kæra á hend­ur honum.

Sjá einnig: Tengda­faðir Gylfa Þórs knatt­spyrnu­kappa: „Þau eru ekki að skilja“

Hafn­firð­ing­ur­inn Gylfi Þór er einn af fremstu knatt­spyrnu­mönnum Íslands og sann­kölluð þjóð­hetja fyrir árangur sinn. Síðustu vikur hafa þó verið honum erf­iðar. Lög­reglu­rann­sókn stendur yfir og hann sak­aður um að hafa mis­notað stúlku undir lög­aldri. Honum hefur verið vikið tíma­bundið úr liði sínu, Everton, á meðan rann­sókn stendur.

Hér að neðan má sjá yfir­lýs­ingu KSÍ í heild sinni:

Að gefnu tilefni

Knatt­spyrnu­sam­band Íslands (KSÍ) leggur áherslu á fag­leg vinnu­brögð þegar fram koma ábend­ingar eða kvart­anir um meint ofbeldi sem með einum eða öðrum hætti má rekja til starf­semi innan hreyf­ing­ar­innar. Knatt­spyrnu­hreyf­ingin á Íslandi er fjöl­menn og eru skráðir iðk­endur um 30 þús­und. KSÍ hefur ríka hags­muni af því að sá mikli fjöldi sem starfar eða tekur þátt í starf­semi knatt­spyrnu­hreyf­ing­ar­innar hér á landi upp­lifi öryggi og vel­ferð í starfi sínu eða þátt­töku og sam­bandið tekur skýra afstöðu gegn öllu ofbeldi.

Ef til­kynn­ingar um mál sem tengj­ast ein­elti eða ofbeldi (m.a. kyn­ferð­is­of­beldi) koma inn á borð sam­bands­ins er tryggt að þau fari í við­eig­andi ferli. Allir verk­ferlar slíkra mála hafa verið end­ur­bættir og hafði fyrsta bylgja #Metoo m.a. áhrif þar á. Jafn­rétt­is­á­ætlun og jafn­rétt­is­stefna sam­bands­ins hafa verið upp­færðar og er þar fjallað sér­stak­lega um kyn­ferð­is­legt ofbeldi. Þá hefur KSÍ staðið fyrir vinnu­stofu um kyn­ferð­is­of­beldi fyrir aðild­ar­fé­lög sín og bætt fræðslu um kyn­ferð­is­of­beldi inn í náms­efni þjálf­ara­mennt­unar.

Eins og gefur að skilja eru mál sem varða kyn­ferð­is­of­beldi vand­með­farin og kallar með­ferð þeirra á fag­leg, vönduð og ekki síður yfir­veguð vinnu­brögð. Ef grunur er um lög­brot er ávallt hvatt til aðkomu lög­reglu­yf­ir­valda og eins er leitað aðstoðar hjá Sam­skipta­ráð­gjafa íþrótta- og æsku­lýðs­mála, sem er sér­fræð­ingur rík­is­ins í með­ferð slíkra mála.

KSÍ getur ekki tjáð sig um ein­stök mál sem upp kunna að koma á opin­berum vett­vangi vegna trún­aðar og per­sónu­vernd­ar­mála. Rétt er þó að ítreka að KSÍ gerir engar til­raunir til að þagga niður ofbeld­is­mál eða hylma yfir með ger­endum. Dylgjum um slíkt er alfarið vísað á bug.

KSÍ er ávallt til­búið til að gera betur og víkur sér ekki undan mál­efna­legri gagn­rýni á starf sam­bands­ins. Því er sam­talið um ofbeld­is­mál mik­il­vægt og ábend­ingum sem eru til þess fallnar að bæta hag iðk­enda og áhuga­fólks um knatt­spyrnu vel tekið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina