Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Hanna hraunar yfir KSÍ: „Ætlar KSÍ að þagga niður ofbeldi sem gerendur á þeirra vegum hafa beitt?“

Hanna hraunar yfir KSÍ: „Ætlar KSÍ að þagga niður ofbeldi sem gerendur á þeirra vegum hafa beitt?“

Hanna Björg Vil­hjálms­dóttir fram­halds­skóla­kenn­ari og for­kona jafn­réttis­nefndar KÍ, er ekki sátt við hvernig KSÍ hefur þagað þunnu hljóði yfir ofbeldi sem hún vill meina að margir lands­liðs­menn í knatt­spyrnu hafi gerst sekir um:

„Óhætt er að full­yrða að knatt­spyrna sé vin­sælasta íþrótt heims. Fólk sem hefur í raun engan áhuga á íþróttum á sér upp­á­halds­lið og fylgist spennt með mótum. Á sama tíma hefur spill­ing og ákveðið sið­leysi fylgt íþrótt­inni – að minnsta kosti und­an­farna ára­tugi. Vafa­laust teng­ist það þeirri stað­reynd að vin­sæld­unum fylgja miklir fjár­munir.“

Hún segir að „skemmst er að minn­ast þess að FIFA – Alþjóða knatt­spyrnu­sam­bandið – var kallað ,,skipu­lögð glæpa­sam­tök” af banda­rískum stjórn­völdum (heim­ild: Vera Ill­uga­dóttir, 2018, Í ljósi sög­unnar) vegna yfir­gengi­legrar spill­ingar. Þá hefur vændi – þar með talið man­sal – verið hluti af skipu­lagi stór­móta. Áhuga­vert, en jafn­framt sorg­legt, er að rifja upp þegar for­ysta KSÍ hafn­aði beiðni fem­inísks hóps þess efnis að taka opin­bera afstöðu gegn man­sali árið 2006 í tengslum við heims­meist­ara­mót. For­ystu­menn í KSÍ voru staðnir að því að nota greiðslu­kort sam­bands­ins á nekt­ar­stað um árið og bar­átta fót­bolta­kvenna fyrir jafnri stöðu virð­ist enda­laus. Þá er þekkt kven­fyr­ir­litn­ingin sem tíðkast í bún­ings­klefum karla­bolt­ans. Dómarar í karla­deild fá helm­ingi hærri laun en starfs­systkin þeirra í kvenna­deild.

Ofan­greint er þó ekki umfjöll­un­ar­efni þessa pistils, þó svo að það sé vissu­lega bak­grunn­ur­inn.“

Hanna Björg nefnir að „fyrir nokkru steig ung kona fram og sagði frá hópnauðgun sem hún varð fyrir árið 2010. Lýsingin á ofbeld­inu er hroða­leg og glæp­ur­inn varðar við margra ára fang­elsi. Það hafði þó ekki meiri áhrif á ger­end­urna – lands­liðs­menn­ina – en svo að þeir gerðu grín að nauðg­un­inni dag­inn eftir. Í frá­sögn­inni kemur fram hvaða afleið­ingar þessi unga kona hefur þurft að burð­ast með. Lýsingin er þyngri en tárum taki. Þol­and­anum var ein­dregið ráð­lagt að kæra ekki, við ofurefli væri að etja.“

Hanna Björg nefnir að mun „fleiri frá­sagnir eru um lands­liðs­menn sem eru sagðir beita konur ofbeldi – bæði kyn­ferð­is­legu ofbeldi og heim­il­is­of­beldi. Þetta virð­ist ekki hafa haft nein áhrif á vel­gengni þess­ara manna; þeim er hampað og njóta mik­illa vin­sælda meðal þjóð­ar­innar. Þöggunin er alger, og KSÍ ber vita­skuld ábyrgð á henni.“

Hún segir KSÍ vera leið­andi afl í íslensku íþrótta­lífi en fram til þessa hafi sam­band­inu ekki tek­ist að vera afger­andi í jafn­rétt­is­málum né náð miklum árangri, þó svo að heima­síða þeirra skarti fínni jafn­rétt­is­stefnu og -áætlun.

„Upp­eld­is­hlut­verk KSÍ er stórt og mikið. Börn, ung­menni og full­orðið fólk líta upp til þeirra leik­manna sem vel gengur og þeir eru dýrk­aðir og dáðir. Þau sem lengst ná eru fyr­ir­myndir þús­unda, það er mikil ábyrgð.“

Og Hanna segir að „spurn­ingin sem á svo mörgum brennur er þessi: Ætlar KSÍ að halda áfram að þagga niður ofbeldi sem ger­endur á þeirra vegum hafa beitt? Að vera ger­enda­með­virk og fórna stúlkum og konum á alt­ari keppn­iskarla? Er það afstaða sem hreyf­ingin vill standa fyrir?“

Hún nefnir að í þessu sam­hengi séu KSÍ tvær leiðir færar; ann­ars vegar að halda áfram að senda þau skýru skila­boð til stráka og karla að þeir geti beitt konur mis­kunn­ar­lausu ofbeldi, án þess að það hafi nokkur áhrif á vel­gengni þeirra og því síður að þeir þurfi að axla ábyrgð á gerðum sínum.

Og bætir við:

„Skila­boðin til stúlkna og kvenna frá KSÍ eru að þær þurfi að sætta sig við ofbeldið af hálfu karla og þegja yfir því, ann­ars verði þær sak­aðar um lygi. Að ofbeld­is­menn­ing sé sjálf­sögð og eðli­leg. Að mik­il­vægi karla sé óum­deil­an­lega meira en kvenna.

Hin leiðin fyrir KSÍ er að verða hluti af lausn­inni, að rjúfa víta­hring ofbeldis, þögg­unar og kven­fyr­ir­litn­ingar. Taka skýra afstöðu með þolendum, jafn­rétti og rétt­læt­inu,“ segir Hanna tekur skýrt fram að „þögnin er ekki hlut­laus – heldur afstaða með ríkj­andi ástandi.

Ég óska KSÍ þess að þar láti fólk ekki kappið og ger­enda­með­virkn­ina bera sið­ferðið ofur­liði. Ég óska þess að KSÍ taki af skarið af styrk, hug­rekki og sam­fé­lags­legri ábyrgð – fyrir okkur öll og fyrir fram­tíð­ina.“

(Innskot blaða­manns) Þess má geta að eft­ir­far­andi texta má finna á heima­síðu KSÍ:

„5.10. Sérhvert aðild­ar­fé­lag skal bera ábyrgð á fram­komu leik­manna, for­ráða­manna, félags­manna og stuðn­ings­manna sinna og allra þeirra sem hafa hlut­verki að gegna á vegum þess vegna ámæl­is­verðrar eða óásætt­an­legrar fram­komu þess­ara aðila innan vébanda KSÍ, og getur sætt við­ur­lögum sem nánar er kveðið á um í lögum þessum og reglu­gerðum KSÍ.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ