Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

„Ef ég gæti myndi ég drepa þennan mann sem fór svona með hana“

„Ef ég gæti myndi ég drepa þennan mann sem fór svona með hana“

Gerður Berndsen hefur í rúma tvo ára­tugi barist fyrir því að rétt­læt­inu sé full­nægt í máli dóttur hennar, Áslaugar Perlu Krist­jóns­dóttur, sem myrt var með skelfi­legum hætti 27. maí árið 2000. Áslaugu var kastað fram að svölum á 10.hæð í Engi­hjalla 9 í Kópavogi.

Morðingi hennar, Ásgeir Ingi Ásgeirs­son, var sak­felldur fyrir morðið og dæmdur í 14 ára fang­elsi sem síðan var þyngdt um 2 ár. Gerður hefur alltaf verið ósátt við dóm­inn og vill að málið verði tekið upp að nýju með það fyrir augum að sannað verði að dóttur hennar hafi verið nauðgað fyrir morðið.

Rúm 20 ár eru síðan Áslaug var sví­virt og myrt. Gerður seg­ist sann­færð um að dóttir hennar hafi ekki átt sam­ræði við Ásgeir af fúsum og frjálsum vilja. „Hún var án nær­buxna sem hann hafði rifíð utan af henni og fund­ust rifnar í vasa morð­ingj­ans,“ er meðal þess sem Gerður sagði í við­tali við DV um málið.

Áslaug Perla Krist­jóns­dóttir, 1979–2000. Blessuð sé minn­ing hennar.

Myrt af ókunnugum manni

Áslaug fór heim með Ásgeiri af skemmti­stað í mið­bænum. Fyrir dómi við­ur­kenndi hann að hafa stundað kyn­líf með henni en Gerður full­yrðir að Ásgeir hafi nauðgað Áslaugu. Þegar hún hafi ekki viljað stunda kyn­líf með honum kastaði hann henni fram af svöl­unum.

Ásgeir hlaut 16 ára dóm fyrir verkn­að­inn og var einnig dæmd­ur til að greiða for­eldr­um Áslaugar 1,7 millj­ón­ir króna í bæt­ur. Hann neit­aði að hafa hrint stúlkunni fram af svöl­unum. Í fyrstu hélt hann því fram að Áslaug hefði sjálf dottið yfir 119 sentí­metra hátt hand­riðið en við­ur­kenndi síðar að hafa ýtt henni fram af.

Í við­tali við DV við­ur­kennir Gerður að morð­ingja dóttur hennar geti hún aldrei fyr­ir­gefið. Ekki líði sá dagur án þess að Áslaug sé í huga hennar og það margoft yfir dag­inn. „Ef ég gæti myndi ég drepa þennan mann sem fór svona með hana; sví­viiti og myrtí mis­kunn­ar­laust með köldu blóðiþ Það víkur ekki úr huga mér hvernig henni hlýtur að hafa liðið þegar hún fann að hún réði ekki við mann­inn og var á leið fram af svöl­unum og fallið niður beið hennar. Ég spyr mig líka hvað hún hugs­aði á leið niður af tíundu hæð á
stein­steypta stétt­ina fyrir neðan.“

Sat inni til 2010

Ásgeir slapp út á reynslu­lausn í des­em­ber 2010. Þá átti hann eftir að afplána 1.920 daga af dómnum sem hann hlaut fyrir morðið. Árið 2012 var Ásgeir svo aftur dæmdur, þá í 12 mán­aða fang­elsi fyrir lík­ams­árás gegn þáver­andi sam­býl­is­konu á meðan hann var á reynslu­lausn. Árið 2016 end­aði hann svo aftur inni á Litla-hrauni þegar hann braut af sér, þá einnig á meðan reynslu­lausn stóð.

Þegar hringt var í Gerði á sínum tíma og henni færðar hinar hræði­legu fréttir þá fór hún eðli­lega í algjört áfall. Stundum eftir tíð­indin lýsti hún svona:

vÉg fleygði sím­anum í gólfið og lagð­ist upp í rúm gjör­sam­lega lömuð. Gat ekki einu sinni spurt hvað hefði gerst og vildi ekki tala við neinn, bað fólk að fara, ég vildi frið. Ég man að það kom ein­hver og gaf mér sprautu og skildi eftir róandi lyf.“

Áslaug var aðeins 21 árs gömul og lést af áverkum sínum eftir að hafa fallið af níundu hæð fjöl­býl­is­húss í Kópavogi. Ásgeir var ákærður fyrir morðið en neit­aði fyrst um sinn sök. Ákæru­valdið taldi öll gögn benda til að Ásgeir hafi ýtt Áslaugu yfir hand­riðið. Talið er að hann hafi orðið Áslaugu að bana því hún hafi neitað honum um sam­farir.

Líkti eftir fallinu með blístri

Morg­un­blaðið fjall­aði um dóm­inn gegn Ásgeir og fjall­aði þar jafn­framt um hegðun Ásgeirs við hand­töku og lík­ams­skoðun á Land­spíal­anum. Er hann sagður meðal ann­ars hafa hótað lög­reglu­mönnum og börnum þeirra líf­láti ásamt því að hafa ítrekað líkt eftir verkn­aðnum með flauti líkt og eitt­hvað væri að falla úr mik­illi hæð með til­heyr­andi dynki við lend­ingu.

Gerður hefur ítrekað kallað eftir end­ur­upp­töku máls­ins. Í sam­tali við Frétta­blaðið sagði hún manns­líf lít­ils metin innan rétt­ar­kerfs­is­ins og óskar hún þess að dóm­stólar við­ur­kenni að Áslaugu hafi verið nauðgað, áður en henni var ráð­inn bani.

„Þegar við pabbi Áslaugar Perlu fórum til lög­regl­unnar var okkur sagt að blúndunær­buxur hennar úr satíni hefðu fund­ist í rassvasa hand­tekna, tættar í sundur á báðum hliðum. Gallasmekk­buxur hennar girtar niður að hnjám og önnur krækjan á þeim skemmd. Hún var í þrennum glæ­nýjum fatn­aði; gallasmekk­buxum, nær­buxum og íþrótta­skóm,“ sagði Gerður.

Missti alsystur sína

Blaða­konan Ragn­heiður M. Krist­jóns­dóttir fjall­aði um á átak­an­legan hátt í pistli þegar hún missti alsystur sína, Áslaugu Perlu. Hún segir að móðir þeirra hafi hrein­lega aldrei jafnað sig eftir áfallið.

„Ég gleymi aldrei nístandi öskrum móður minnar og hvernig hún brotn­aði niður og varð að engu. Þetta varð því einnig dag­ur­inn sem ég missti mömmu mína.“
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum