Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Bryndís Haraldsdóttir situr þing Artic Circle: „Mikil framsýni hjá Ólafi Ragnari Grímssyni“

Bryndís Haraldsdóttir situr þing Artic Circle: „Mikil framsýni hjá Ólafi Ragnari Grímssyni“
Bryndís Har­alds­dóttir alþing­is­maður.

Þing norð­ur­slóða, Arctic Circle, er þessa dag­ana haldið í Hörpu og það sækir fólk víðs vegar að úr heim­inum. Bryndís Har­alds­dóttir alþing­is­maður seg­ist halda að þingið skipti Íslend­inga miklu máli og að tæki­færi Íslend­inga séu margs konar þegar kemur að mál­efnum norð­ur­slóða.

„Ég held að það hafi verið mikil fram­sýni hjá Ólafi Ragnari Gríms­syni á sínum tíma þegar hann í raun­inni kom þessu af stað – Arctic Circle er að verða risa­stórt í alþjóða­sam­hengi. Ég hef ein­hvern tím­ann sagt á svona ráð­stefnu að það hafi eig­in­lega verið nördar sem höfðu áhuga á norð­ur­slóða­málum en núna er nör­da­klúbb­ur­inn orð­inn risa­stór og líka rosa­lega töff. Þess vegna held ég að Arctic Circle skipti okkur mjög miklu máli því með þessu erum við að vinna í því að þeir sjái svo­lítið Ísland fyrir sér sem eru að velta fyrir sér norð­ur­slóða­málum, hvort sem það er til dæmis á vett­vangi við­skipta eða vís­inda. Þess vegna held ég að þessi ráð­stefna sé algert lyk­il­at­riði í því að byggja undir þessa atvinnu­grein ef það má orða sem svo, ég held að við eigum mikla mögu­leika í fram­tíð­inni en það eru norð­ur­slóða­fræði, nýsköpun og sjálf­bær þróun á norð­ur­slóðum; ég held að Ísland hafi raun­veru­lega mögu­leika á að vera ein­hvers konar mið­dep­ill fyrir svona hug­vits­drif­inn iðnað, þekk­ing­ar­yf­ir­færslu og nýsköpun tengda norð­ur­slóðum. Hér á Arctic Circle koma meðal ann­ars saman stjórn­mála­menn, fólk úr vís­inda­sam­fé­lag­inu, félaga­sam­tökum og atvinnu­líf­inu til að ræða þessi mál og þarna höfum við raun­veru­legt tæki­færi. Ég á ekki ein­göngu við bein við­skipta­tæki­færi heldur eru líka tæki­færi fyrir litla smá­ríkið Ísland, sem er stað­sett á milli aust­urs og vest­urs sitj­andi við borðið í sjálfu Norð­ur­skauts­ráð­inu. Það má segja að þetta sé líka ákveð­inn vett­vangur hvað varðar frið­ar­um­leit­anir, eða sem „tals­maður“ friðar, og lágs spennustigs á svæð­inu þannig að ég held að tæki­færin séu gríð­ar­leg. Auðvitað má til dæmis nefna tæki­færi á Akureyri sem teng­ist til dæmis þjón­ustu ef Græn­lend­ingar ætla að vinna málma og svo er auð­vitað umskip­un­ar­höfn alltaf mögu­leiki ef fólk vill setja fjár­fest­ingar í það og við sjáum tæki­færi í því.“

Arctic Circle er að verða risa­stórt í alþjóða­sam­hengi.
Bryndísi var falið á síð­asta kjör­tíma­bili að end­ur­skoða norð­ur­slóða­á­ætlun Íslands; leiða þann starfs­hóp þar sem sátu þing­menn úr öllum þing­flokkum. (Mynd: Svava Jóns­dóttir.)

Talsmaður norðurslóða

Þegar Bryndís sett­ist á þing tók hún sæti í umhverfis- og sam­göngu­nefnd auk þess að sitja í utan­rík­is­mála­nefnd sem og í Vest­nor­ræna ráð­inu; hún situr ekki lengur í umhverfis- og sam­göngu­nefnd.

„Á þeim tíma var Vest­nor­ræna ráðið að sækja um að verða áheyrn­ar­að­ili að Norð­ur­skauts­ráð­inu og mér fannst allar þessar þrjár nefnd­ar­setur mínar sam­eina mig í því að þetta væri áhuga­efnið, það er að segja norð­ur­slóðir, af því að þetta er utan­rík­is­mál. Þetta er risa­stórt umhverf­is­mál en þetta er auð­vitað líka efna­hags­mál. Vest­nor­rænu löndin – Ísland, Færeyjar og Grænland – eiga auð­vitað mjög mikið undir því sem ger­ist á þessu svæði. Þetta eru eyríki sem eiga allt undir haf­inu og sjáv­ar­af­urðum þannig að þess vegna skipta þessi mál auð­vitað mjög miklu máli.“

Vest­nor­rænu löndin – Ísland, Færeyjar og Grænland – eiga auð­vitað mjög mikið undir því sem ger­ist á þessu svæði.

Bryndísi var falið á síð­asta kjör­tíma­bili að end­ur­skoða norð­ur­slóða­á­ætlun Íslands; leiða þann starfs­hóp þar sem sátu þing­menn úr öllum þing­flokkum. „Okkur tókst með ágætum að koma saman nýrri stefnu sem var svo sam­þykkt á síð­asta þingi. Þannig að ég hef sýnt þessum mála­flokki mik­inn áhuga. Á vett­vangi ÖSE hef ég svo fengið það hlut­verk að vera sér­stakur tals­maður norð­ur­slóða­mála. Þetta er þess vegna svo­lítið mikið hugð­ar­efni enda finnst mér að við Íslend­ingar eigum að vera mjög stoltir af því að vera norð­ur­slóða­ríki. Við megum ekki gleyma því að það búa um fjórar millj­ónir manna á norð­ur­slóðum og við á Íslandi erum þar á meðal. Oft er talað um norð­ur­slóðir eins og ein­hvern garð sem þarf að friða þar sem eru ísbirnir og bráðn­andi ís. Það gleym­ist stundum í umræð­unni að þarna býr líka fólk og það þarf að búa til tæki­færi fyrir þetta fólk til að búa þar áfram.“

Á vett­vangi ÖSE hef ég svo fengið það hlut­verk að vera sér­stakur tals­maður norð­ur­slóða­mála.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum