Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

„Kodda kastað yfir andlitið á mér og þrýst að“ – Fórnir, sigrar og mótlæti Helga Tómassonar:

„Kodda kastað yfir andlitið á mér og þrýst að“ – Fórnir, sigrar og mótlæti Helga Tómassonar:
Mynd. Skjáskot/RÚV

Helgi Tómasson lýsti í ævi­sögu sinni langri leið, mót­læti og þrot­lausu striti, að því marki að verða einn dáð­asti ball­ett­dans­ari sinnar kyn­slóðar á alþjóða­vísu.

„Ég er senni­lega að verða fimm ára þegar pabbi kemur heim seint að kvöldi og hefur hátt.  Þau mamma skipt­ast á orðum og ég skynja spenn­una í and­rúms­loft­inu þar sem ég ligg í rúm­inu mínu án þess að skilja hvað fer fram.  Nú þegar ég kalla fram minn­ing­una veit ég að pabbi er vel við skál.  Allt í einu stendur hann við rúmið mitt og á næsta and­ar­taki er kodda kastað yfir and­litið á mér og þrýst að.  Eftir nokk­urt hark þrí­fur mamma í kodd­ann, lyftir mér upp úr rúm­inu og segir: „Hlauptu upp að Hlíð­ar­enda og vertu þar í nótt.”  Og ég hleyp út í myrkrið þennan stutta spöl yfir túnið, ber­fættur og á nátt­föt­unum,“ segir Helgi í ævi­sögu sinni.

Helgi átti í raun þrjá feður og þegar hann er ung­lingur og far­inn að verða hrif­inn af stelpum sagði móðir hans honum hver blóð­faðir hans væri.  Helgi varð ósegj­an­lega glaður yfir því að Tómas skyldi ekki vera blóð­faðir hans því hann hafði aldrei verið honum góður.  Haukur stjúp­faðir Helga reynd­ist honum mjög vel alla tíð og með honum eign­að­ist Dagmar, móðir Helga, son­inn Guðjón Inga.  Á full­orð­ins­árum kynnt­ist Helgi svo hálf­systrum sínum föður megin.

Jakob Bjarnar blaða­maður á Vísi spyr Helga hvað vinum hans hafi fund­ist um þennan áhuga hans á ball­ett og þá segir Helgi:

„það hafi stundum verið erfitt fyrir mig sem ungur strákur; ell­efu, tólf, þrettán, fjórtán ára. Erfiður aldur fyrir drengi og mér var mikið strítt: Að ég væri að dansa ball­ett sem væri bara fyrir stelpur. Kallaður stelpu­strákur sem var mikið skammar­yrði. En ég var ákveð­inn í að gef­ast ekki upp.“

Danssýningin sem var greypt í barnsminni Helga

Dimmalimm í Þjóð­leik­hús­inu. Árið 1954 í hlut­verki svans­ins Helgi Tómasson

Örlögin haga því svo til að þegar Helgi er fimm ára gam­all leggja leið sína til Vest­manna­eyja þrír dans­arar frá Danmörku og setja upp sýn­ingu. Eyjamenn vissu vart hvaðan á sig stóð veðrið.

„… þetta þekkt­ist ekki á Íslandi. Frið­björn einn af dönsur­unum átti ætt­ingja í Vest­manna­eyjum og kom með þessa dans­ara til Vest­manna­eyja. Ég sá þessa sýn­ingu með móður minni. Ég smit­að­ist.“ Helgi segir svo frá að hann hafi setið dol­fall­inn í fangi móður sinnar og fylgst með.

„Ég varð víst mjög hrif­inn af þessu, sagði mamma, og reyndi að herma eftir því sem ég sá á svið­inu. Stökk og sneri mér í hringi. Sem segir mér hversu mik­il­vægt það er að for­eldrar fari með börn sín á list­sýn­ingar; leik, tón­list og dans. Maður veit aldrei hvaða áhrif það hefur á börn. En svona er þetta.“

Þegar for­eldrar hans skildu flutt­ust þau mæðgin til Reykja­víkur og bjuggu í fyrstu við þröngan kost í höf­uð­staðnum. Alltaf lifir þessi dans­sýn­ing í sam­komu­hús­inu í Eyjum með Helga. Hann stekkur um gólf og stígur spor þegar tón­list heyr­ist í útvarp­inu og ákvað mamma hans að senda hann í lít­inn ball­ett­skóla sem rek­inn var af Félagi íslenskra list­dans­ara í veit­inga­hús­inu Röðli. Dönsk hjón sem hingað komu reynd­ust svo miklir örlaga­valdar í lífi Helga, þau Erik Bidsted og þáver­andi kona hans Lisa Kæregaard. Erik var ráð­inn til að kenna við nýstofn­aðan List­dans­skóla Þjóð­leik­húss­ins 1952.

San Francisco Ballet “2010 Reper­tory Season” April 9, 2009 by Rita Felciano
Helgi var stað­ráð­inn í að halda sínu striki

Fórnir og sigrar manns
Ævisaga Helga Tóm­as­sonar er saga um sárs­auka og gleði, fórnir og sigra manns sem náð hefur lengra í list sinni en flestir aðrir Íslend­ingar.

Seigla og þraut­seigja er það sem kemur í hug­ann þegar farið er yfir sögu hans sem er ein­stak­lega áhrifa­mikil.  Hann varð að leggja meira á sig en félag­arnir þar sem hann var útlend­ingur og sam­keppnin var gríð­ar­lega hörð. Helgi gaf aldrei eftir enda elskaði hann að dansa og var til í að leggja allt í söl­urnar til að ná árangri sem ball­ett­dans­ari. Hann var aðeins 33 ára þegar honum var tjáð að hann myndi aldrei dansa að nýju svo þjáður og illa var hann far­inn í baki en Helgi náði sér á strik með vilja­styrk og þrot­lausum æfingum.

Saga ævin­týri lík­ust
Fjögurra ára strákur fer á dans­sýn­ingu í Vest­manna­eyjum, kemst undir hand­leiðslu dansks ball­ett­meist­ara, fer þaðan til Dan­merkur og upp á hátind list­grein­ar­innar. Saga Helga Tóm­as­sonar, ball­ett­dans­ara og stjórn­anda, er ævin­týri lík­ust.

Þegar hann er tíu ára gam­all er Ball­ett­skóli Þjóð­leik­húss­ins stofn­aður og hann fær þar inn­göngu, eini dreng­ur­inn á fyrsta árinu innan um nærri 200 stúlkur. Það er enn önnur til­viljun í lífi hans að kall­aður skuli vera til mjög fær ball­ett­meist­ari frá Danmörku til að kenna Íslend­ingum að dansa. En það átti eftir að hafa afdrifa­rík áhrif á feril Helga.

Árið 1969 tók Helgi þátt í fyrstu alþjóð­legu ball­ett­keppn­inni í Moskvu og vann þar til  silf­ur­verð­launa en Mikhail Bar­ys­hnikov fékk gullið. Í kjöl­farið komst Helgi í fremstu röð ball­ett­dans­ara heims. Hann tók við stjórn San Francisco-ball­etts­ins 1985 og undir hand­leiðslu hans öðl­að­ist dans­flokk­ur­inn við­ur­kenn­ingu sem einn sá besti á alþjóða­vísu.

Þegar sagan um minn­ingar hans er lesin er með ólík­indum hvernig ungur strákur frá Íslandi tekst með ein­dæma atorku að verða einn fremsti ball­ett­dans­ari heims.  Aðeins fimm ára gam­all hrífst hann af dönsurum úr Kon­ung­lega ball­ett­flokki leik­húss­ins í Kaup­manna­höfn sem heim­sóttu Vest­manna­eyjar en þar bjó Helgi fyrstu ár ævi sinnar.

Átta ára hefur hann ball­ett­nám við List­dans­skóla Þjóð­leik­húss­ins og fimmtán ára er hann ráð­inn sem sumar ball­ett­dans­ari í Tívolí í Kaup­manna­höfn.  Ekki komst hann að hjá Kon­ung­lega leik­hús­inu því sá skóli var ein­ungis fyrir Dani á þeim tíma.  Fyrir atbeina vel­gjörð­ar­manns hans í Kaup­manna­höfn er honum boðin náms­dvöl við þekktan banda­rískan ball­ett­skóla í New York.

Í fyrstu alþjóð­legu ball­ett­keppni heims sem haldin var í Moskvu hlaut Helgi silf­ur­verð­laun sem varð til þess að honum var boðin staða aðal­dans­ara við New York City Ballet sem var mik­ill heiður. Þar var Helgi næstu fimmtán árin og hlaut mik­inn og ein­stæðan frama. Það var svo árið 1985 sem Helgi var ráð­inn list­rænn stjórn­andi San Francisco-ball­etts­ins en þá hafði hann lagt skóna á hill­una 43 ára gam­all. Undir stjórn Helga hefur flokk­ur­inn orðið að einum fremsta dans­flokki heims.

San Francisco-ball­ett­inn kom fram í fyrsta sinn í Hörpu á Lista­há­tíð Reykja­víkur árið 2016.

Styrmir Gunn­ars­son fyrr­ver­andi rit­stjóri skrif­aði í Morg­un­blaðið og hafði þetta að segja um sýn­ing­una:

„heim­sókn San Francisco-ball­etts­ins nú er í okkar augum, sem höfum fylgzt með Helga Tómassyni frá upp­hafi, eins konar hápunktur“

Helgi til­kynnti að hann hygð­ist hætta störfum sem list­rænn stjórn­andi og aðal­dans­höf­undur San Francisco-ball­etts­ins á næsta ári. Hann er 78 ára gam­all og hefur verið list­rænn stjórn­andi San Francisco ball­etts­ins í meira en 35 ár. Hann hefur verið í fremstu röð ball­ett­heims­ins, bæði sem dans­ari og stjórn­andi, ára­tugum saman.

Heim­ildir:

Jakob Bjarnar. 2021. „Stráknum strítt en hann stað­ráð­inn í að láta það ekki stöðva sig“ Visir. 24. maí.

Styrmir Gunn­ars­son. 2016. „Helgi Tómasson. Af inn­lendum vett­vangi …“ Morg­un­blaðið, 28. maí.

Þor­valdur Krist­ins­son. 2017. Helgi – minn­ingar Helga Tóm­as­sonar ball­ett­dans­ara. Bjartur. Reykja­vík.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum