Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Haraldur Ingi: „Kalt – Mannlega er það ekki kalt – en það er rosalega kalt“

Haraldur Ingi: „Kalt – Mannlega er það ekki kalt – en það er rosalega kalt“

Haraldur, eig­in­kona hans og börnin tvö höfðu verið búsett í Banda­ríkj­unum í rúm sex ár en ákváðu að kíkja heim síð­asta sumar. Sú heim­sókn varð lengri en áætlað var. Þau fóru í huggu­legan göngutúr eitt kvöldið og fjög­urra ára sonur Haralds varð þyrstur. Þau ákváðu að koma við í verslun til að finna eitt­hvað að drekka.„Þegar við komum að búð­inni sá ég strax að það var trappa og að hún væri of há fyrir mig að kom­ast inn. Svo ég sat fyrir utan í svona fimm mín­útur á meðan fjöl­skyldan fór inn. Þá hugs­aði ég svo­lítið lengi um þetta og um þessa tröppu sem var orðin tákn­ræn fyrir mig því þetta er sama trappan og er búin að gera það að verkum að ég get ekki hitt vini mína á kaffi­húsum, get ekki farið niður Lauga­veg­inn að versla á Þor­láks­messu með fjöl­skyld­unni,“ segir Haraldur.„Ég hugs­aði hvað þetta væri mikið svona lítið vanda­mál að leysa því þetta er bara ein trappa oft. Þá eig­in­lega ákváðum við að byrja.“

Það sem meira skiptir máli er að vinna með okkur

Haraldur Ingi Þor­leifs­son er upp­hafs­maður átaks­ins Römpum upp Reykja­vík sem vakið hefur mikla lukku og athygli. Mark­miðið var að koma upp hund­rað römpum víðs vegar um mið­borg­ina en þeir eru þegar orðnir enn fleiri. Hann ræddi átakið og upp­runa þess í Mannlega þætt­inum á Rás 1.

Haraldur ræddi málið við föður sinn sem hann hafði nýráðið í vinnu og sagði honum að nú stæði til að byggja hund­rað rampa á einu ári. Feðgarnir ræddu við Dag B. Egg­erts­son borg­ar­stjóra og svo byrj­uðu þeir að safna pen­ingum fyrir átakið. Borg­ar­stjóri tók vel í hug­mynd­ina og stofn­aður var aðgeng­is­sjóður Reykja­víkur.

„Við fengum borg­ina með og það er tvennt sem hún kom með. Í fyrsta lagi pen­ingar, en það sem meira skiptir máli er að vinna með okkur. Við vorum með verk­efna­stjóra inni á umhverfis- og skipu­lags­sviði sem við unnum mikið með og þá var hægt að gera þetta hraðar,“ segir Haraldur.

„Svo fengum við styrki frá mjög öfl­ugum og stönd­ugum fyr­ir­tækjum sem komu að þessu með okkur.“

Féð kom þó líka að miklu leyti frá Haraldi sjálfum og svo tóku ýmsir styrkt­ar­að­ilar þátt í verk­efn­inu. Það fór hægt af stað en um leið og bolt­inn fór að rúlla rúll­aði hann hratt og örugg­lega. „Við byrj­uðum að fram­kvæma og þá tók þetta bara fjóra mán­uði. Það var aðal­lega und­ir­bún­ings­vinnan sem var þrír mán­uðir eða eitt­hvað svo­leiðis en þegar þetta kom í gang þá rúll­aði það. Við vorum að taka ein­hverja tvo rampa á dag,“ segir Haraldur.

Fallegt eða nytsamlegt

Inni á heima­síðu verk­efn­is­ins rampur.is er hægt að sjá „fyrir og eftir“ myndir af þeim stöðum sem ramp­arnir hafa verið settir. Þeir eru ansi ólíkir en oft­ast fer lítið fyrir þeim.

„Þegar það er hægt gerðum við rampana eins ósýni­lega og hægt er. Við vildum sýna fram á að þetta væri ekki eitt­hvað sem þyrfti ann­að­hvort að vera fal­legt eða nyt­sam­legt því það er alveg hægt að gera bæði. Að þeir falli vel að bygg­ing­unum og þetta sé þannig að þú átt að upp­lifa þetta eins og það hafi alltaf verið þarna,“ segir Haraldur.

Aðspurður að lokum hvernig það sé að flytja af vest­ur­strönd Banda­ríkj­anna hingað á norð­ur­hvel jarðar svarar hann: „Kalt. Mannlega er það ekki kalt, en það er rosa­lega kalt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum