Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Kolbrún, eigandi Jurtaapóteksins: „Matur sem leikur við öll skynfærin“

Kolbrún, eigandi Jurtaapóteksins: „Matur sem leikur við öll skynfærin“

Kolbrún Björns­dóttir, eig­andi Jurta­apó­teks­ins, hefur starfað við grasa­lækn­ingar í 22 ár eða frá því að hún útskrif­að­ist úr grasa­lækna­skól­anum í Bret­landi árið 1993. Kolbrún er Mat­gæð­ingur Mannlífs, þessa vik­una.

Við spurðum Kolbrúnu hvort hún ætti sinn upp­á­halds­rétt.

„Upp­á­halds­réttur minn, vá, það er ekk­ert auð­velt að finna einn sér­stakan. Ég hugsa að ann­að­hvort sé það matur sem minnir mig á æsk­una og fyllir mig nostal­gíu, þar sem hjartað hoppar af kæti og til verður þessi barns­lega gleði, eða hins vegar matur sem mér finnst geggjað gaman að elda, matur sem leikur við öll skyn­færin.“

Veitir mér gleði og örvar gleði­horm­ónin

„Bragð sem flytur mig á ókunnar slóðir, ilmur sem fær mig til að líða vel, veitir mér gleði og örvar gleði­horm­ónin. Sjónin fær örvun með alls kyns lita­sam­setn­ingu. Mér dettur helst í hug ísra­elski kokk­ur­inn Ott­o­lenghi, sem starfar í Lundúnum, sem nær fram þessum áhrifum. Margir af hans réttum eru mínir upp­á­halds­réttir.

Eitt af mínu upp­á­haldi eru lamba­hakkskjöt­bollur, glút­ein­lausar.“

Kolbrún seg­ist vera ástríð­ur­kokkur sem geri mikið af þessu, soldið af hinu og pínu­lítið af öðru. Hún not­ast sjaldan við upp­skriftir og ef hún gerir það, þá breytir hún þeim oft­ast. En henni finnst mjög gaman að elda og eldar úr eins fersku hrá­efni og hægt er.

„Ég reyni að nota fjöl­breytta liti í mat­inn svo það sé skemmti­legra að borða hann. En ef ég er þreytt og finnst ég ekki hafa tíma þá bý ég til vondan mat.

Ég er frekar nösk á að sjá hvað er mjög gott

Í mat­ar­boð­unum hefur það aldrei klikkað að nota partí­upp­skriftir úr Ott­o­lenghi-upp­skrifta­bók­inni. Ég útbý marga rétti og þótt ég segi sjálf frá þá er ég frekar nösk á að sjá hvað er mjög gott í upp­skrift­unum hans. Hér er t.d. salat frá Ott­o­lenghi sem skapar bragð sem er engu líkt og kall­ast Karsi (ég nota kletta­salat í stað­inn) /pistasíu og app­el­sínu-blóma­salat.“

Dagsrútína Kolbrúnar

Dæmi­gerður dagur hjá Kolbrúnu hefst þegar hún vaknar kl. 6.00 og fær sér stórt vatns­glas. Hún iðkar svo klukku­tíma jóg­ar­útínu, öndun og hug­leiðslu. Þannig fer dag­ur­inn best af stað.

„Svo pressa ég safa sem er gúrka, sell­erí, hvít­kál (nýjasta æðið), engi­fer eða eitt­hvað grænt, og fer eftir það í gott bað. Þegar ég kem úr bað­inu fæ ég mér nær­ing­ar­drykk með alls konar í. Alltaf íslensk ber, vatn, olíur (Omega-3 + 7 og mct.), alls konar nær­ing­ar­jurtir, hreint kakó (oft), hörfræ eða hamp­fræ. Stundum set ég líf­rænt epli (er svo flott pektín í því sem styður við bakt­er­íuflór­una). Þessi drykkur byrj­aði sem túr­merik-latte þegar ég var að prófa ketó svo þró­að­ist hann í þetta. Stundum er þetta geggjað gott og stundum fer ég yfir strikið og nota of mikið af ein­hverju sem gefur ekki nógu gott bragð. Það truflar mig ekki á morgn­ana, ég þarf bara góða nær­ingu.

Hádeg­is­mat­ur­inn er vana­lega afgangar frá kvöld­inu áður, sem oft­ast enda sem kássa. Á kvöldin elda ég frá grunni, oft­ast elda ég, en börnin fá stundum að spreyta sig og nota ég  eins ferskt hrá­efni og hægt er – græn­met­is­mat, kjöt og fisk, en ég bý svo vel að fá fjalla­vatna­sil­ung. Á kvöldin baka ég mjög oft heilan sil­ung með beinum og öllu. Finnst þessi þróun að bein­hreinsa allt ekki alveg nógu góð, vegna þess að beinin næra okkar bein.“

Ein af skemmtilegustu matarminningum Kolbrúnar

„Eitthvað sem ég get ekki borðað er lifr­ar­pylsa, bara út af æskuminn­ingu sem ég á. Annars finnst mér fátt virki­lega vont.

En ein af mínum skemmti­leg­ustu mat­ar­minn­ingum er senni­lega þegar ég var að vinna á  Heilsu­hæl­inu í Hvera­gerði. Ég var tví­tug og hafði sagst kunna að elda, sem ég varla kunni. Ég ólst uppi í sveit og hafði mest­megnis verið að vinna úti við, en ekki inni í eld­hús­inu. Pálína, sem þá stjórn­aði eld­hús­inu, sagði við mig: „Settu 16 egg í pott­inn.“  Það voru fjórir pottar á elda­vél­inni, ég valdi einn sem var fullur af vatni og byrj­aði að brjóta eggin ofan í vatnið þangað til ein­hver kom og sá hvað ég var að gera og sagði: „Hvað ertu að gera?“

Ég var þá búin að skemma ein­hverja súpu og hafði átt að sjóða eggin. Eftir þetta var ég færð inn í sal og fékk aldrei að gera neitt  í eld­hús­inu aftur.“

Lambahakkskjötbollur með ferskri basilíku

Innihald:

  • 500 g lamba­hakk, líf­rænt (það er það sem ég nota)
  • 40 g basi­líka fersk, smátt skorin
  • 1½ tsk. sjáv­ar­salt gott, eða Himalaya-salt
  • 2 stk. eggja­r­auður
  • 4 msk. bók­hveitiflögur (Sólgæti)
  • 2 tsk. kúmmin-duft
  • 1 msk. óreganólauf
  • 1 tsk. engi­fer­duft
  • 1 tsk. græn­met­is­kraftur, án gers í dufti
  • svartur pipar eftir smekk

Aðferð:

Öllu hrært saman og mót­aðar bollur með hreinum höndum. Sett á bök­un­arplötu með bök­un­ar­pappír undir. Bakað við 200 °C í 25 mín­útur.

Með þessu er svo hægt að hafa ferskt salat og gufusoðið græn­meti eða bakað. Kjötið ætti ekki að vera nema 25% af matnum. Má hafa grjón eða kart­öflur með. Hægt að gera upp­bak­aða sósu eins og mamma gerði, en gera hana í mínum stíl, sem væri kókós­olía og bók­hveiti­mjöl, svo vatn sett út í. Set svo kryddið sem ég not­aði í kjöt­boll­urnar líka í sós­una. Set svo smá kraft í sós­una og lita hana og krydda hana svo með hollri Tamari-sojasósu.  Smakka svo til með salti og pipar.

Karsi, pistasíu og appelsínu-blómasalat

Innihald:

  • 90 g kletta­salat/karsi (karsi er erfitt að fá hér á Íslandi)
  • 20 g fersk basi­líka
  • 20 g fersk kórí­and­er­lauf
  • 10 g ferskt dill
  • 10 g ferskt estra­gon
  • 40 g ósalt­aðar pistasíur, létti­lega ristaðar og saxaðar

Aðferð:

Blandið öllu grænu saman og setjið ekki dress­ing­una og pistasíur í fyrr en rétt áður en þetta er borið fram.

Dressing:

  • 4 msk. kald­pressuð ólífu­olía
  • 1½ msk. sítrónu­safi
  • 1 msk. app­el­sínu­blóma­vatn (fæst í Jurta­apó­tek­inu)
  • salt og pipar
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fólk

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur