Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Í fréttum var þetta helst – Skrifstofuofbeldi, blóðmerar, skilnaður og Króna með gati

Í fréttum var þetta helst – Skrifstofuofbeldi, blóðmerar, skilnaður og Króna með gati

Hilmar lýsir ein­elti á skrif­stof­unni: „Ég lam­að­ist úr skelf­ingu og kom varla upp nokkru orði“

Friðbert Trausta­son

Aðal­með­ferð í máli Hilmars Vilbergs Gylfa­sonar, fyrr­ver­andi fjár­mála­stjóra Samtaka starfs­manna fjár­mála­fyr­ir­tækja, gegn sam­tök­unum fer fram í dag. Hilmar hefur nú stefnt SSF og krefst sjö­tíu og fimm millj­óna króna í bætur frá SSF eftir að honum var vikið úr starfi eftir að hann kvart­aði undan langvar­andi ein­elti og ofbeldi af hálfu yfir­manna sinna.

Sjá einnig: Hilmar hafnar því að SSF hafi boðið sátt: Krefst 75 millj­óna í bætur vegna ein­eltis og ofbeldis

Mannlíf hefur undir höndum stefnu Hilmars en þar er að finna nákvæmar lýs­ingar á máls­at­vikum.

Eft­ir­far­andi texti er atburða­lýs­ing á því þegar Friðbert Trausta­son, for­maður SSF, kom inn á skrif­stofu Hilmars og sýndi af sér ógn­andi hegðun.

„Í kjöl­farið, síðar þann dag réðst fyr­ir­svars­maður stefnda inn á skrif­stofu stefn­anda í reiði­kasti með ógn­andi til­burðum og ásök­unum í garð stefn­anda þar sem hann tók ergju sína út á stefn­anda. Varð stefn­anda veru­lega brugðið eftir þessar ákúrur og alger­lega miður sín. Lýsir stefn­andi því sjálfur á þann veg í grein­ar­gerð sinni sem hann vann að beiðni sál­fræði­stof­unnar Hug­ar­heim, sbr. dskj. nr. 121.“

Sjá alla frétt­ina hér: Hilmar lýsir ein­elti á skrif­stof­unni: „Ég lam­að­ist úr skelf­ingu og kom varla upp nokkru orði“

Faldar myndavélar sýna dýraníð: Heimildamynd um íslenskar blóðmerar

Falin mynda­vél sýnir við­ur­styggi­lega með­ferð á fyl­fullum merum í íslenska blóða­mer­a­iðn­að­inum. Heim­ilda­mynd um málið frum­sýnd á mánu­dag­inn.

Á mánu­dag­inn næsta verður heim­ilda­mynd þýsk/aust­ur­rísku dýra­vernd­ar­sam­tak­anna TSB Tierschutzbund Zurich frum­sýnd og verður hún þá öllum sýni­leg á YouTube. Fjallar hún um íslenska blóð­mer­a­iðn­að­inn. Hefur myndin verið í vinnslu síð­ustu 18 mán­uði en myndefni sem þar er að sjá var tekið á þessu hausti en not­ast var við faldar mynda­vélar.

Blóð­mer­a­iðn­að­ur­inn gengur út á að hirða allt að 40 lítra af blóði úr fyl­fullum merum og merum með folöld á 10 vikum frá sumri fram á haust til að vinna horm­ónið PMSG úr blóð­inu. Hormónið er selt áfram til svína­kjöts­fram­leið­enda til að auka frjó­semi í svína­eldi.

Vegna hrotta­legrar með­ferðar mer­anna hefur Evr­ópu­þingið ályktað til Evrópska ráðs­ins að fram­leiðsla og notkun PMSG verði bönnuð í Evrópu. Ísland er eitt fárra landa sem heim­ila þetta.

Sjá alla frétt­ina hér: Faldar mynda­vélar sýna dýra­níð: Heim­ild­ar­mynd um íslenskar blóð­merar

Smartland segir Gunnu Dís og Kristján, bæjarstjóra á Húsavík, vera að skilja

Samkvæmt frétt Smartlands eru hjónin Kristján Þór Magnús­son og Guðrún Dís Em­ils­dótt­ir, eða Gunna Dís eins og hún er kölluð, að skilja.

Kristján Þór og Gunna Dís flutt­ust til Húsa­vík­ur þegar hann tók við starfi sveit­ar­stjóra, en áður hafi Gunna Dís getið sér gott orð hjá RÚV, bæði í út­varpi og sjón­varpi, og víst að margir sakna hennar úr fjöl­miðl­unum.

Kristján Þór, sem er sveit­ar­stjóri í Norð­ur­þingi, ku hafa til­kynnt sam­starfs­mönn­um sín­um fyr­ir stuttu að miklar breyt­ing­ar væru að verða á hans hög­um.

Samkvæmt sömu grein segir að Gunna Dís hygg­ist flytja aft­ur til Reykja­vík­ur og mögu­lega tek­ur hún upp þráð­inn að nýju í fjöl­miðlum.

Kristján Þór hef­ur und­an­farnar vikur verið í veik­inda­leyfi, en tjáði starfs­mönn­um sín­um að hann hlakk­aði til að koma aft­ur til starfa strax eftir ára­mót.

Ólafur varð kjaftstopp í Krónunni: „Þetta er nú meira ruglið“

Ólafi nokkrum blöskr­aði mjög í heim­sókn sinni í lág­vöru­verslun Krón­unnar á dög­unum. Ástæðan var him­inhá verð­lagn­ing búð­ar­innar á lamba­hrygg sem hann lang­aði til að kaupa sér í mat­inn.

Ólafur fjallar um upp­lifun sína í fjöl­mennum hópi mat­gæð­inga, Mat­ar­tips!, á Facebook. Í Krónunni hugð­ist hann kaupa sér hálfan lamba­hrygg frá Norð­lenska sem vó 1,2 kíló en hætti snar­lega við þegar hann brá stykk­inu undir verðskann­ann. Þar kom í ljós að hrygg­ur­inn hálfi kostar 4.234 krónur eða 3.499 krónur kílóið. Þetta hefur Ólafur að segja um verð­lagn­ing­una:

„Þetta er nú meira ruglið. “

Fjöl­margir furða sig á verð­lagn­ingu Krón­unnar og Norð­lenska í þessu til­viki. Sigurður er einn þeirra. „Svaka­legt rugl­verð!“, segir Sigurður ósáttur.

Kristínu er afar brugðið. „Almátt­ugur. Sé ég get ekki keypt hrygg fyrir jólin. Hangi­kjöt kostar eitt nýra liggur við,“ segir Kristín.

Diljá er hugsi og veltir fyrir sér hvað ráði þessu háa verði búð­ar­innar. „Ég hugsa nú bara mest um, hvað þetta er alls ekki að skila sér til bænda þetta háa verð,“ segir Diljá.

Þórður hugsar á svip­uðum nótum. „Milli­lið­irnir, ábyggi­lega margir í eigu kvóta­greifa hirða allan ávinn­ing­inn,“ segir Þórður ákveð­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina