Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Hilmar hafnar því að SSF hafi boðið sátt: Krefst 75 milljóna í bætur vegna eineltis og ofbeldis

Hilmar hafnar því að SSF hafi boðið sátt: Krefst 75 milljóna í bætur vegna eineltis og ofbeldis
Hilmar Vilberg Gylfason Mynd: Aðsend

Fyrrum fjár­mála­stjóri Samtaka starfs­manna fjár­mála­fyr­ir­tækja, Hilmar Vilberg Gylfason gaf frá sér yfir­lýs­ingu í gær þar sem hann harð­neitar að félagið hafi boðið honum sátt eftir kvörtun hans um ein­elti og ofbeldi yfir­manna hans. Svarar Hilmar þannig yfir­lýs­ingu félags­ins sem kom fram í gær.

Hilmar hefur nú kært SSF og krefst sjö­tíu og fimm millj­óna króna í bætur frá SSF eftir að honum var vikið úr starfi eftir að hann kvart­aði undan langvar­andi ein­elti og ofbeldi af hendi yfir­manna sinna. Vísir sagði frá mál­inu í gær.

Í fyrra­dag sagð­ist lög­maður SSF að sam­tökin hefðu gert til­raun til sátta við Hilmar en án árang­urs. Þá telji þau sig hafa gert upp við hann með sann­girni að leið­ar­ljósi.

Í yfir­lýs­ingu Hilmars sem hann sendi frá sér í gær, segir hann það ósann­indi að SSF hafi boðið sér sátt í mál­inu.

„Þessi meinta sátt fólst í því að ég myndi hætta störfum hjá stétt­ar­fé­lag­inu og ekki yrði gerði nein úttekt á umkvört­unum mínum. Voru mér settir þeir afar­kostir að annað hvort myndi ég skrifa undir starfs­loka­samn­ing eða að mér yrði sagt upp störfum,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

Þá full­yrðir hann að þetta hafi gerst eftir að SFF hafi dregið sig án fyr­ir­vara út úr fram­kvæmd á lög­bund­inni úttekt á vinnu­á­stæðum, ein­elti og ofbeldi.

Segir Hilmar að hann hafi fengið í kjöl­farið sendan ein­hliða starfs­loka­samn­ing sem hafi falið í sér að hann láti undan kröfu um greidda yfir­vinnu, stærstan hluta af upp­söfn­uðu orlofi og í þokka­bót að hann greiddi sjálfur stóran hluta lög­fræði­kostn­aðar en stjórn félags­ins hafði áður lofað að greiða þann kostnað. Þá hafi einnig verið skil­yrði í samn­ingnum þess efnis að hann mætti ekki tjá sig um inni­hald samn­ings­ins né aðdrag­anda starfs­lokanna.

„Í stuttu máli var þessi til­laga að starfs­loka­samn­ingi svo fjar­stæðu­kennd að ekki nokk­urt stétt­ar­fé­lag á land­inu hefði ráð­lagt félags­manni sínum að taka honum,“ segir í yfir­lýs­ingu Hilmars.

Stjórnin huns­aði gagntil­boði Hilmars og sagði honum síðan upp fyr­ir­vara­laust í miðju veik­inda­leyfi.

„Vil ég sér­stak­lega taka fram að SSF hefur hafnað því að sam­skipti varð­andi þetta séu lögð fyrir dóm­inn þrátt fyrir beiðni mína þar um. Og einnig alfarið hunsað beiðni mína um að fund­ar­gerðir stjórnar stétt­ar­fé­lags­ins þar sem fjallað var um mín mál­efni verði lagðar fram í mál­inu. Það er því aug­ljóst að SSF telur þessi gögn og þar með ákvarð­anir sínar í mínum mál­efnum ekki þola dags­ljósið,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

Per­sónu­vernd hefur úrskurðað að SSF hafi brotið á Hilmari í þremur málum og hefur þrjú önnur mál til skoð­unar.

Ekki náð­ist í Friðbert Trausta­son, fram­kvæmd­ar­stjóra SSF, við vinnslu þess­arar fréttar.

Mannlíf hefur undir höndum gögn tengd mál­inu og mun fjalla nánar um það á næstu dögum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina