Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

„Albert hvílir yfir þessu máli eins og risastór skuggi“ – Saga Helga Magnússonar og Hafskips:

„Albert hvílir yfir þessu máli eins og risastór skuggi“ – Saga Helga Magnússonar og Hafskips:
Helgi Magn­ús­son fjár­festir. Mynd: Fréttablaðið

Helgi Magn­ús­son, athafna­maður og stjórn­ar­for­maður Torgs, var hand­tek­inn og hnepptur í gæslu­varð­hald árið 1986 þegar hann var sjálf­stætt starf­andi end­ur­skoð­andi, meðal ann­ars fyrir Hafskip. Hann er í dag einn far­sæl­asti fjár­festir lands­ins. Helgi rifjar upp þann feril og Haf­skips­málið í við­tali við Reyni Trausta­son.

„Menn töldu að Haf­skips­málið væri að taka ein­hverja nýja stefnu og það væri ástæða til að grípa til þess­ara aðgerða,“ segir Helgi Magn­ús­son, athafna­maður og stjórn­ar­for­maður Torgs, sem hafði starfað sem sjálf­stætt starf­andi end­ur­skoð­andi meðal ann­ars fyrir Hafskip þegar hann var hand­tek­inn ásamt fleirum árið 1986 þegar grunur kom upp um mis­ferli. Hann var settur í gæslu­varð­hald þar sem hann sat í um þrjár vikur.

„Þetta var mjög óvænt lífs­reynsla og ég hugs­aði mikið og velti fyrir mér hvort ég væri að mis­skilja þetta allt saman ein­hvern veg­inn. Ég gerði mér fljót­lega ljóst að þarna var eitt­hvað skrýtið á ferð­inni en sam­viskan var ekk­ert að naga mig þannig að ég hugs­aði með mér að ég yrði bara að kom­ast í gegnum þetta.“

Helgi segir að það liggi algjör­lega fyrir og varla deilt um það að gæslu­varð­halds­úr­ræðið hafi verið mis­notað þarna á mjög frek­legan hátt. „Það var engin þörf á að gera þetta. Ef fólk er hneppt í gæslu­varð­hald þá er það ann­að­hvort vegna þess að menn eru með ofbeldi og hættu­legir umhverf­inu eða þá að menn hafi staðið að ein­hverjum blekk­ingum og föls­unum og það þarf þá að koma í veg fyrir að þeir eyði gögnum eða geti borið saman bækur sínar eða frá­sagnir sínar. Það var hálft ár frá því að félagið varð gjald­þrota og ef menn hefðu þurft að bera saman bækur sínar eða eyða ein­hverjum gögnum þá hefðu þeir haft hálft ár til þess. Þannig að það var algjör­lega fárán­leg hug­mynd að beita gæslu­varð­halds­úr­ræði og það var bara mis­notað þarna. Við sýndum fram á þetta allt saman. Þetta var mjög merki­leg lífs­reynsla og eitt­hvað sem maður hefði alveg viljað vera laus við. En það breytir samt ekki því að öll erfið lífs­reynsla nýt­ist svo fólki síðar á ævinni ef það nær að vinna úr því.“

Það var hálft ár frá því að félagið varð gjald­þrota og ef menn hefðu þurft að bera saman bækur sínar eða eyða ein­hverjum gögnum þá hefðu þeir haft hálft ár til þess

Sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­arnar voru fram undan vorið 1986 og óskaði Helgi eftir því að fá að kjósa en því var hafnað. „Mér og mínum lög­manni og rétt­ar­gæslu­manni, Ólafi Gúst­afs­syni hæstar­rétt­ar­lög­manni, fannst þetta vera ósann­gjarnt og ég óskaði eftir því að við létum á þetta reyna. Hann fór með málið áfram og fór það fyrir und­ir­rétt og þar var því hafnað. Við ákváðum að skjóta þessu til Hæsta­réttar og féllst Hæsti­réttur á að ég fengi að kjósa. Þetta var smá­sjálf­stæð­is­bar­átta en þetta breytti því ekki að ég fékk að kjósa utan­kjör­fundar eins og það heitir; það var strákur frá lög­regl­unni sem fór með mér og fór ég svo með atkvæðið í Valhöll,“ segir Helgi sem var áður Sjálf­stæð­is­maður. „Þetta var prinsipp­mál og mér skilst að þetta sé notað í kennslu­efni í lög­fræði ein­hvers staðar.“

Helgi Magn­ús­son.

Mál Helga og hóps Haf­skips­manna fór svo fyrir und­ir­rétt. „Þar fékk þetta mjög fag­lega með­ferð. Sverrir Ein­ars­son saka­dóm­ari var for­seti rétt­ar­ins og hann gætti þess að öll sjón­ar­mið kæmust að, bæði ákæru­valds­ins og okkar lög­manna. Þeir fluttu þetta mál okkar mjög vel og voru vel und­ir­búnir. Þeir voru mjög hneyksl­aðir. Þetta voru mjög öfl­ugir lög­menn eins og sá sem flutti þetta fyrir mig, Jón Steinar Gunn­laugs­son. Jón Magn­ús­son var þarna líka og svo tveir gam­al­reyndir, Guð­mundur Ingvi Sig­urðs­son og Jónas Aðal­steins­son. Þessir voru mest fyrir okkur Haf­skips­menn­ina.

Það var mik­ill þungi í mál­flutn­ingi þeirra og end­aði með því að þessu var meira og minna öllu hent út af borð­inu og ég fékk 100.000 króna sekt. Það var nið­ur­staðan eftir að það höfðu verið birt um 400 ákæru­at­riði og þá var dæmt fyrir fimm sem voru ein­hver mis­taka­mál. Jónatan Þór­munds­son pró­fessor sem var sak­sókn­ari í mál­inu sagði af sér; við­ur­kenndi í raun ósigur sinn. Þeir skip­uðu annan sem fór með málið í Hæsta­rétt og þar var þetta klárað. En með öðrum orðum: Maðr þurfti að eyða fimm árum í þetta en ég gerði margt annað á meðan en engu að síður var þetta mjög sér­stök lífs­reynsla og eitt­hvað sem maður hefði alveg verið til í að vera laus við.“

Það var mik­ill þungi í mál­flutn­ingi þeirra og end­aði með því að þessu var meira og minna öllu hent út af borð­inu og ég fékk 100.000 króna sekt

Helgi nýtti tím­ann í gæslu­varð­hald­inu meðal ann­ars með því að byrja á að skrifa bók um málið og kom hún út síðar sama ár. „Ég eig­in­lega skrif­aði mig frá mál­inu og svo hélt ég bara áfram með lífið. Ég seldi end­ur­skoð­un­ar­skrif­stof­una um haustið en ég gat ekki hugsað mér að starfa í þessum bransa áfram. Þetta hafði þau áhrif að mér fannst ekki lengur vera áhuga­vert að starfa við þetta svo sem eftir fjöl­miðlaum­fjall­anir og annað. Ég sneri mér að öðru og það var mjög gott. Ég met það þannig að það hafi gert mér per­sónu­lega mjög gott að skrifa þessa bók og ég setti þetta mál aftur fyrir mig.“

Þetta hafði þau áhrif að mér fannst ekki lengur vera áhuga­vert að starfa við þetta svo sem eftir fjöl­miðlaum­fjall­anir og annað.

Helgi rifjar upp Haf­skips­málið sjálft en Hafskip lenti í sínum vand­ræðum 1984-1985 og úr því varð meint saka­mál.

„Það sem gerð­ist þarna var að það voru marg­háttuð öfl að verki og þetta var mjög flókið að mörgu leyti,“ segir Helgi og bætir svo við: „Þetta var mikið mál og kom upp rétt fyrir kosn­ingar 1986. Menn geta alveg leyft sér að setja það í visst sam­hengi.

Þetta var svo mikið átaka­mál og fyr­ir­tækið var litli aðil­inn en stækk­aði mjög hratt og var orð­inn tals­vert mikil ógn við Eim­skipa­fé­lagið. Það voru til fleiri skipa­fé­lög; Sam­bandið var með skipa­deild og það var ýmis­legt sem gekk á. Ég er nokkuð sann­færður um að með­ferðin á Hafskip var ekk­ert eðli­leg og félagið lenti í erf­ið­leikum. Það þarf ekki að gera lítið úr því. Það fékk enga hjálp til að kom­ast í gegnum erf­ið­leik­ana eins og mörg fyr­ir­tæki sem lenda í mót­byr fá aðstoð og þeim er fleytt yfir hjall­ann. Það hefði alveg átt við í þessu til­viki en það sáu sér ýmsir leik á borði og það er nátt­úr­lega engin laun­ung á því, og það hefur komið fram í öllum þessum bókum og öllu sem hefur verið sagt og skrifað um þetta, að Eim­skipa­fé­lagið reri undir og það var þeirra hagur að losna við þennan keppi­naut. Það er engin spurn­ing. Það sem er stóra málið í þessu öllu er Albert Guð­munds­son. Hann hvílir yfir þessu máli eins og risa­stór skuggi. Albert var nátt­úr­lega risa­stór stjórn­mála­maður. Við megum ekki gleyma því að hans fer­ill var mjög sér­stakur og merki­legur. Hann var bæði borg­ar­full­trúi fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn og svo þing­maður fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn og svo ráð­herra. Það sem meira er; hann lét ekki vel að stjórn og fór sínar eigin leiðir og var mjög sterkur per­sónu­leiki. Ég þekkti hann per­sónu­lega sem og for­eldrar mínir.“

Helgi talar um að Albert hafi átt marga and­stæð­inga og keppi­nauta. „Ég held að það hafi spilað mjög inn í þetta mál vilj­inn til þess að koma höggi á Albert. Hann gaf þennan högg­stað á sér að vera bæði for­maður banka­ráðs Útvegs­bank­ans og vera síðan stjórn­ar­for­maður í Hafskip. Þetta veikir stöðu manna. Það er úti­lokað að þetta gæti gerst í dag en á þessum tíma sátu framá­menn flokk­anna í banka­ráðum eins og ekk­ert væri. For­svars­menn Hafskips og ég, sem var utan­að­kom­andi ráð­gjafi úti í bæ, end­ur­skoð­andi, vorum peð í þessu tafli og fórum illa út úr því að lenda í þessu. Það breytti samt ekki því að við tókum til varna og börð­umst og náðum að sýna fram á það á end­anum að við höfðum ekk­ert brotið af okkur og ekk­ert gert. Maður eyddi orku í þetta í mörg ár.“

Ég held að það hafi spilað mjög inn í þetta mál vilj­inn til þess að koma höggi á Albert.

Harpa Sjöfn og Bláa lónið

Þegar Helgi hafði selt end­ur­skoð­un­ar­skrif­stof­una sína hóf hann störf sem for­stjóri ferða­skrif­stof­unnar Útsýn og var þar í tvö ár. Hann gerð­ist síðan rit­stjóri Frjálsrar versl­unar og gegndi því starfi í fjögur ár. „Það var mjög merki­legur og skemmti­legur tími. Maður hefur kannski verið með dulda fjöl­miðla­bakt­eríu,“ segir Helgi sem hafði á náms­ár­unum verið rit­stjóri Versl­un­ar­skóla­blaðs­ins. „Þetta er eitt­hvað sem leyn­ist í fólki.“

Fjöl­skylda Helga átti meiri­hlut­ann í máln­ing­ar­verk­smiðj­unni Hörpu og varð hann fram­kvæmda­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins sem faðir hans hafði stýrt í ára­tugi. Því starfi gegndi Helgi í 12 ár. „Það var mjög góður tími. Áhuga­verður tími. Ég keypti þá meira í fyr­ir­tæk­inu og við áttum stóran hlut í þessu, feðgarnir. Það gerð­ist ýmis­legt á þessum tíma og það merki­leg­asta var kannski það að við sam­ein­uð­umst Sjöfn á Akureyri, keppi­nauti okkar í máln­ing­ar­brans­anum. Þá var hann fall­inn frá og ég bar einn ábyrgð á því fyrir okkar hönd. Svo keypti okkar fyr­ir­tæki norð­an­menn­ina út og við áttum þá Hörpu Sjöfn ein. Danir fengu mik­inn áhuga á fyr­ir­tæk­inu og gerðu okkur til­boð og við seldum Flügger fyr­ir­tækið og þeir eiga það í dag og reka það með glæsi­brag.

Það gerð­ist ýmis­legt á þessum tíma og það merki­leg­asta var kannski það að við sam­ein­uð­umst Sjöfn á Akureyri, keppi­nauti okkar í máln­ing­ar­brans­anum

Árið 2004 þegar þetta var búið sneri ég mér að því að sinna fjár­fest­ingum og sitja í stjórnum. Ég varð meðal ann­ars fljót­lega for­maður Samtaka iðn­að­ar­ins. Um þetta leyti bauð Grímur Sæmund­sen, vinur minn til 40 ára, mér að koma að Bláa lón­inu. Hann vant­aði fleiri með sér til að fjár­festa og mér bauðst strax að fara í stjórn­ina og var í 17 ár í stjórn og þar af for­maður í 10 ár. Allt þetta fyr­ir­tæki er stór­kost­legt ævin­týri og eitt af mörgum merki­legum fyr­ir­tækjum á Íslandi. Það var mjög ánægju­legt að taka þátt í því. En allt hefur sinn tíma og þegar mér bauðst að selja á mjög góðu verði þá var það til­boð sem maður gat ekki hafnað. Og þá seldi ég síð­ast­liðið haust og fór þá út úr því en það var 17 ára fer­ill.“

En allt hefur sinn tíma og þegar mér bauðst að selja á mjög góðu verði þá var það til­boð sem maður gat ekki hafnað

Lýðræðisvaktin

Helgi keypti hlut í Torg árið 2019 og er stjórn­ar­for­maður. „Þá keyptum við fyrst helm­ing­inn á móti hjón­unum Ingi­björgu og Jóni Ásgeiri og svo keyptum við hinn helm­ing­inn fyrir rúmum tveimur árum og höfum rekið þetta síðan. Svo keyptum við DV og Hring­braut kom inn í þetta. Það er búið að sam­eina þessi þrjú fyr­ir­tæki. Þetta er spenn­andi og áhuga­vert en veiru­vand­inn hefur truflað þennan rekstur eins og kannski víða.

Ég hef fulla trú á þessum rekstri við eðli­legar aðstæður og við metum það þannig að ann­að­hvort erum við að kom­ast frá þess­ari veiru eða læra að lifa með henni og þá á þessi rekstur að geta gengið ágæt­lega.“

Helgi segir að sér finn­ist fjöl­miðla­rekstur vera áhuga­verður og mik­il­vægur. „Hlut­haf­arnir standa með rekstr­inum og við bara fleytum þessu öllu í gegnum þennan skafl. Svo teljum við og trúum að það séu góðir tímar fram undan og að rekst­ur­inn geti orðið eðli­legur. En hann verður kannski ekk­ert eðli­legur á meðan við höfum RÚV og menn verða að reikna með að lifa með því.

Hlut­haf­arnir standa með rekstr­inum og við bara fleytum þessu öllu í gegnum þennan skafl

Ég minni á það sem Jón Ásgeir sagði við mig og aðra og ég held hann hafi líka sagt það í við­tölum en það var að þegar þau voru búin að reka Frétta­blaðið í 17 ár, hjónin, eða vera lyk­il­að­ilar í því þá sagði hann þegar hann var að selja okkur þetta að þau væru búin að standa þessa lýð­ræð­is­vakt svona lengi og að þau töldu sig vera búin að gera sitt. Ég tek alveg undir það. Það að standa í svona rekstri er ákveðin lýð­ræð­is­vakt. Þetta er til að tryggja að stórir fjöl­miðlar séu ekki bara ann­ars vegar á vegum sjáv­ar­út­vegs­ins, eins og Morg­un­blaðið, eða á vegum rík­is­ins eins og RÚV. Það er þá ágætt að það komi fleiri aðilar að rekstri stórra fjöl­miðla og þá fáum við kansnki meiri breidd í umræð­una og þetta verður ekki hættu­lega eins­leitt eins og gæti orðið.“

Hlað­varps­við­talið við Helga er að finna hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum