Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Þakbar og Michelin stjörnu kokkur, glæsihótelið Reykjavík EDITION opnar dyr sínar

Lúxus hótelið Reykjavik EDITION, sem nú er opið til forskoðunar, er glæsileg viðbót í höfuð­borgina með einstökum veitinga­stöðum og börum.

Veitinga­svæði EDITION eru nokkur t.d. opinn bar í anddyrinu, kaffi­húsið Tides og sérrétta­veitinga­staður.

Þá verður glæsi­legur kokteilbar opnaður á nýju ári. Um er að næða nætur­klúbb og þakbar sem hefur ekki sést áður hér á landi. Því má með sanni segja að Reykjavík EDITION sé staður fyrir öll tækifæri.

Gunnar Karl Gíslason sem er kokkurinn á bak við Dill, hinn vinsæla veitinga­stað, og handhafi New Nordic Michelin-stjörnunnar er við stjórnvölinn á Tides, sérstökum veitinga­stað Reykjavík EDITION sem skartar verönd og sérinngangi frá höfninni.

Segist Gunnar Karl vera spenntur fyrir því að vera hluti af opnun Reykjavík EDITION sem beðið hafi verið eftir með mikilli eftir­væntingu.
„Ég vona svo sannarlega að þetta verði tímamót í matargerðar­list í Reykjavík og ég er fullur eftir­væntingar fyrir hönd íslenskrar nútíma­matargerðar sem fær að sanna sig á alþjóða­vettvangi.“
Tides býður upp á það allra besta af náttúru­legu hráefni landsins. Gunnar Karl býður upp á nútíma­lega íslenska matargerð sem ber keim af hefð­bundnum eldunar­aðferðum með áherslu á árstíða­bundnar íslenskar afurðir og hágæða alþjóðlegt hráefni sem er að mestu eldað yfir opnum eldi.

Fyrir þá sem koma til kvöld­verðar tryggir Gunnar Karl Gíslason kokkur að íslensk nútíma­matargerð og menning einkenni allt sem hann fram­leiðir í eldhúsinu, parað saman við tilkomu­mikinn vínlista þar sem er að finna vín frá öllum heims­hornum.

Nokkrir helstu réttir á matseðlinum eru:

Grillaður sólkoli, spergilkál og skessu­jurt

Bakaður þorskur, grillaðar kartöflur, blandaðar jurtir og brúnað smjör

Þunn­skorið angus-nautakjöt með GK BBQ-gljáa, stöppuðum kartöflum, grilluðum portobello-sveppum og salati

Brúnaður og hægeldaður lamba­bógur, súrsaður laukur, mynta og epli.

Hefur Reykjavík EDITION tekist að skapa sérstak­lega fallegt umhverfi þar sem hvert einasta smáatriði er út pælt. Fléttuð er saman hlýleg stemning með landslagi Íslands en í bar anddyris er opið eldstæði, hannað af Roman & Williams. Þá er mjúk birta af hvítum brons­gólflömpum frá Christian Liaigre  fullkomin pörun blágrýtis og hraun­grjóts.

Reykjavík EDITION er því ekki einungis glæsi­hótel heldur líka staður fyrir sælkera.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Mannlífið

Myndir

Novasvellið rís á Ingólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga

Opnunar­veisla Bryggju­hússins að hefjast

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegrunar­aðgerðir

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setningu?

Bæjar­hátíðin Í túninu heima stendur með miklum blóma í Mosfellsbæ

Bangsa­félagið heldur upp á afmæli með stórhátíð og nýrri keppni