Bjartmar Oddur Þeyr Alexandersson og Davíð Þór Guðlaugsson, blaðamenn á Stundinni fóru í ferðalag til bæjarins Påryd í Svíþjóð, þar sem þeir fundu að um það 1.500 tonn af íslensku plasti; sem hafði legið hefur óhreyft í ein fimm ár: Í niðurníddu vöruhúsi.
Bæði innan- og utandyra fundu þeir félagar plastúrgang frá vörumerkjum eins og Krónunni og MS; fyrirtæki sem starfa eftir strangri umhverfissstefnu.
Kemur fram að samkvæmt upplýsingum frá Úrvinnslusjóði að plastið átti að hafa verið endurunnið.
Endurvinnslufyrirtækin Íslenska gámafélagið og Terra hafi fengið mörg hundruð milljónir íslenskra króna úr sjóðnum til að endurvinna plast – til dæmis það plast sem endaði í vöruhúsinu í Svíþjóð.
Þá segir einnig að milliliðurinn í málinu sé sænska endurvinnslufyrirtækið Swerec; saga þess fyrirtækis er talin vafasöm í meira lagi samkvæmt áðurnefndri grein.
Swerec hefur verið kært til lögreglu í Svíþjóð og einnig í Noregi; hefur Swerec einnig sætt lögreglurannsókn í Lettlandi vegna starfshátta sinna.
Þó að ýmis hneykslismál séu tengd fyrirtækinu kom það ekki í veg fyrir að íslensk fyrirtæki eigi enn viðskipti við fyrirtækið: Því ódýrast er að senda plastið til Svíþjóðar frekar en til virtari fyrirtækja í Evrópu; Inn í málið er flæktur þekktur sænskur góðkunningi lögreglunnar á svæðinu, sem þegið hefur greiðslur frá Swerec til að sjá til þess að plastið yrði endurunnið.

Eins og kemur fram í Stundinni gekk sá samningur ekki eftir.































Athugasemdir