Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Björg í Garðabæ um milljarða samning bæjarstjóra við sjálfa sig: – „Ég hef fylgt hæfisreglum“

Björg í Garðabæ um milljarða samning bæjarstjóra við sjálfa sig: – „Ég hef fylgt hæfisreglum“
Björg Fenger, for­seti bæj­ar­stjórnar Garða­bæjar: „Ég hef ávallt fylgt hæf­is­reglum sveit­ar­stjórn­ar­laga.“

Meiri­hlut­inn í bæj­ar­stjórn Garðabær sam­þykkti nýverið að veita samn­ing án útboðs til fyr­ir­tækis í eigu for­seta bæj­ar­stjórnar Garða­bæjar, Bjargar Fenger.

Mannlíf fjall­aði um málið og grein­ina sjá hér.

Fyr­ir­tækið sem um ræðir er Terra – áður Gáma­þjón­ustan –  og var samn­ing­ur­inn um leigu og for­kaups­rétt á ein­ingum fyrir gáma­leik­skóla.

Samkvæmt heim­ildum Mannlífs er virði samn­ings­ins tæpur millj­arður króna.

Mannlíf sendi bæj­ar­full­trúum Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Garðabæ – bæj­ar­stjóra og upp­lýs­ing­ar­full­trúa bæj­ar­ins og fleiri aðilum sem tengj­ast mál­inu – ítar­legan spurn­inga­lista um málið með vísun til upp­lýs­inga­laga nr. 140/2012.

Gunnar Ein­ars­son bæj­ar­stjóri Garða­bæjar er í sum­ar­fríi og hefur hann ekki tjáð sig beint um málið þó eftir því hafi verið leitað.

Aðeins tveir aðilar tengdir mál­inu hafa svarað fyr­ir­spurn Mannlífs um málið, en hafa ekki enn svarað áður­nefndum spurn­ingum sem Mannlíf sendi.

Þeir tveir aðilar sem svör hafa borist frá eru Guðjón Erling Frið­riks­son bæj­ar­rit­ari og Björg Fenger for­seti bæj­ar­stjórnar Garða­bæjar.

Svar Guðjóns er í raun svar fyrir hönd Gunnars Ein­ars­sonar bæj­ar­stjóra, sem eins og áður sagði, er nú í sum­ar­fríi.

Guðjón Erling Frið­riks­son bæj­ar­rit­ari Garða­bæjar.

Þetta kemur fram kemur í svari Guðjóns: „Að beiðni bæj­ar­stjóra er ég að und­ir­búa að svara fyr­ir­spurn þinni varð­andi leigu á fær­an­legum ein­ingum fyrir leik­skóla fyrir börn í Garðabæ.“

Gunnar Ein­ars­son bæj­ar­stjóri Garða­bæjar er í sum­ar­fríi.

Guðjón segir enn fremur:

„Við munum að sjálf­sögðu svara fyr­ir­spurn­inni en mér finnst samt strax rétt að taka fram að vegna sum­ar­leyfa margra starfs­manna að þá er lík­legt að við náum ekki að svara og afhenda gögn innan þess frest sem upp­lýs­inga­lög kveða á um sem ég held að sé sjö dagar. Við munum leggja áherslu á að svara fyr­ir­spurn­inni eins fljótt og við mögu­lega getum.“

Björg Fenger sagði í svari sínu að „þar sem ég hef ekki haft neina aðkomu að samn­inga­gerð um leigu á ein­ingum fyrir leik­skóla sem þú vísar til þá get ég ekki svarað spurn­ingum þínum. Ég bendi þér á að hafa sam­band við bæj­ar­stjóra Garða­bæjar til að fá svör við spurn­ing­unum.“

Björg Fenger á stóran hlut í fyr­ir­tæk­inu Terra, áður Gam­aþjón­ustan.

Björg vill „þó nefna af þessu til­efni að ég hef ávallt fylgt hæf­is­reglum sveit­ar­stjórn­ar­laga og mun að sjálf­sögðu víkja af fundi þegar umræddur samn­ingur kemur á borð bæj­ar­stjórnar.“

Samkvæmt heim­ildum Mannlífs er mik­ill titr­ingur innan stjórn­sýslu Garða­bæjar og líka á meðal bæj­ar­búa, en heim­ild­ar­maður Mannlífs innan stjórn­sýsl­unnar sem vildi ekki koma fram undir nafni sagð­ist varla hafa trúað því að áður­nefndur samn­ingur hafi verið gerður; hags­muna­tengslin séu svo ótrú­lega áber­andi og aug­ljós – nán­ast æpandi.

Mannlíf mun að sjálf­sögðu fylgja mál­inu eftir og bíður nú svara frá bæj­ar­stjóra Garða­bæjar, Gunnari Ein­ars­syni, um það hvort samn­ingur þessi sé lit­aður af áður­nefndum hags­muna­tengslum eða ekki.

Nýverið fjall­aði Mannlíf um „Millj­arða­höll­ina“ svoköll­uðu í Garðabæ í tveimur fréttum sem má sjá hér  og hér.

Það gengur því á ýmsu um þessar mundir hjá meiri­hlut­anum í Garðabæ.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi