Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Milljarðahöllin stenst ekki kröfur: „Geta þessir jólasveinar ekki gert neitt rétt í Garðabæ?“

Milljarðahöllin lágreista. . Mynd / Garðabær.
Millj­arða­höllin lágreista. . Mynd / Garðabær.

Í Vetrar­mýri í Garðabæ rís nú dýrasta knattspyrnuhús landsins; kostnaður við verkið er um fimm milljarðar króna, en húsið er rúmlega átján þúsund fermetrar að stærð; með rými fyrir knattspyrnu­völl í fullri stærð; upphitunar­aðstöðu og tilheyrandi stoðrýmum.

Nú er komið á daginn að í þessu rándýra knattspyrnu­húsi í Garðabæ er knattpyrnuvöllurinn ekki löglegur fyrir keppnis­leiki á efsta stigi; lands­leiki og leiki í efstu deildum karla og kvenna; aðeins í neðri deildunum.

Ástæðan fyrir þessu er lofthæð hallarinnar: Hún er fjórtán metrar en þyrfti að vera rúmlega sex metrum hærri til að uppfylla skilyrði KSÍ varðandi leiki í efstu deildunum og lands­leiki.

Svokallaðar „inni­hallir“ hafa risið víða um land allt á undan­förnum árum og áratugum, en aðeins tvær af „höllunum“ – Kórinn í Kópavogi og Egilshöll í Grafar­vogi uppfylla skilyrðin um áður­nefnda lofthæð.

Þessi lága lofthæð í Garðabæ hefur fallið í grýttan jarðveg margra innan knattspyrnu­samfélagsins hér á landi; margir eru undrandi og janvel reiðir, sérstak­lega þegar tekið er tillit til að húsið kostar fimm þúsund milljónir króna.

Þetta mál var til dæmis til umræðu í hlaðvarps­þættinum vinsæla en umdeilda, Dr. Football, sem margir áhugamenn um íslenska knatt­spyrnu fylgjast með.

Þar var ýmislegt á kjarnyrtri íslensku látið flakka um málið; gagnrýndi þátta­stjórnandi hlað­varpsins, gamli mark­vörðurinn Hjörvar Hafliðason meðal annars bæjar­yfirvöld í Garðabæ harðlega enda fjár­festingin við húsið rándýr eins og áður hefur komið fram:

„Garðbæingar byggðu dýrustu höll sögunnar og það má ekki keppa í henni!“ og varpaði síðan fram þessari spurningu:

„Geta þessir jóla­sveinar ekki gert neitt rétt í Garða­bænum?“

Gestur Hjörvars í þættinum er ekki minni orðhákur en Hjörvar, Lúðvík Jónasson, sem er Garð­bæingur í húð og hár, fyrrum knattspyrnu­maður og framkvæmda­stjóri Bestun Birtinga­húss. Hann var ekki lengi að taka undir orð Hjörvars og sagði að „það er allt í rugli í bæjar­stjórninni í Garðabæ.“

Íþrótta-, tómstunda- og forvarnar­fulltrúi Garða­bæjar er Kári Jónsson og segir hann að aðal­markmiðið með byggingunni sé að hafa bestu mögulega æfinga­aðstöðu en um leið uppfylla þarfir fyrir æfinga­leiki og viðburði sem ekki þarfnast meiri lofthæðar. Samkvæmt Kára hefur það því aldrei verið ætlunin „að halda lands­leiki eða að spila leiki í efstu deildunum í nýja fjölnota íþrótta­húsinu sem nú rís í Vetrar­mýri; það mun umbylta aðstöðu fyrir æfingar í Garðabæ“ en húsið mun verða upphitað og með góðri loft­ræstingu og einni bestu þrek­æfinga­aðstöðu á Íslandi. Kári segir mikla eftir­væntingu ríkja í Garðabæ varðandi húsið sem verður tekið í notkun einhvern tímann eftir áramót.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim