Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Sýður upp úr í Garðabæ: „Samið án útboðs við fyrirtæki í eigu forseta bæjarstjórnar“

Sýður upp úr í Garðabæ: „Samið án útboðs við fyrirtæki í eigu forseta bæjarstjórnar“
Björg Fenger, for­seti bæj­ar­stjórnar Garða­bæjar: „Ég hef ávallt fylgt hæf­is­reglum sveit­ar­stjórn­ar­laga.“

Komið hefur á dag­inn að meiri­hlut­inn í bæj­ar­stjórn Garða­bæjar sam­þykkti að ganga til samn­inga án útboðs við fyr­ir­tækið Terra, áður Gáma­þjón­ustan, um leigu og for­kaups­rétt á gáma­leik­skóla, en for­seti bæj­ar­stjórnar Garða­bæjar, Björg Fenger, á stóran hlut í Terru.

Þrátt fyrir að Garða­bæj­ar­list­inn, sem er í minni­hluta í bæj­ar­stjórn Garða­bæjar, lýsti yfir furðu sinni á afgreiðslu máls­ins og mót­mælti kröft­ug­lega, sam­þykkti meiri­hlut­inn í Garðabæ engu að síður samn­ing­inn; þótt Garða­bæj­ar­list­inn hafi ítrekað bent á hags­muna­tengsl Bjargar varð­andi málið og hafi fært til bókar að „óásætt­an­legt er að gengið sé til samn­inga án útboðs við fyr­ir­tæki sem er að hluta í eigu for­seta bæj­ar­stjórnar.“

Þetta kom fram í gær á fundi bæj­ar­stjórnar Garða­bæjar, þegar tekið var fyrir mál sem varðar samn­ing við fyr­ir­tækið Terra um leigu á ein­ingum fyrir leik­skóla: Liður 9, eft­ir­far­andi númer, 2105431: Samn­ingur við Terru um leigu á ein­ingum fyrir leik­skóla. Um málið og fund­inn má lesa hér.

Samkvæmt áreið­an­legum heim­ildum Mannlífs er í samn­ingnum kaup­rétts­verðið 190 millj­ónir, 2023, og lækkar eftir því sem leigt er til fleiri ára, niður í 147 millj­ónir á sjö­unda ári.

„Sviðs­stjóri fræðslu- og menn­ing­ar­sviðs – Eiríkur Björn Björg­vins­son – gerði grein fyrir samn­ingi við Terru um leigu á ein­ingum fyrir leik­skóla sem stað­settur verður við hlið leik­skól­ans Sunnu­hvols á Víf­ils­stöðum og hefur verið nefndur Mána­hvoll.“

Eiríkur Björn Björg­vins­son er Sviðs­stjóri fræðslu- og menn­ing­ar­sviðs Garða­bæjar.

Var samn­ing­ur­inn sam­þykktur: „Bæjarráð sam­þykkir samn­ing­inn með fjórum atkvæðum (ÁHJ,SHJ,AG,GVG) gegn einu (IA). Bæjarráð vísar samn­ingnum til afgreiðslu á fundi bæja­stjórnar 19. ágúst næst­kom­andi. Bæjarráð Garða­bæjar.“

Sara Dögg Svan­hild­ar­dóttir odd­viti Garða­bæj­ar­list­ans er mjög ósátt með samn­ing þennan og í sam­tali við Mannlíf segir hún að „efn­is­legt inni­hald samn­ings­ins ein­fald­lega ber það með sér að verið sé að snið­ganga lög um opin­ber inn­kaup.“ Og bendir á að  „það þarf ekki annað en að horfa á hækkun leigu­verðs sem á sér stað eftir tveggja ára leigu, en hún er umtals­verð“ segir Sara Dögg. Það er hennar mat og skoðun „að hér er ein­fald­lega verið að fara gegn meg­in­reglu um opin­ber inn­kaup sem fjallar um að gæta skuli jafn­ræðis, með­al­hófs og gagn­sæis opin­berra inn­kaupa,“ segir Sara Dögg og bætir við:

„Það er ekki gert með þessum samn­ingi sem er undir leigu­samn­ingi sem inni­heldur for­kaups­rétt sveit­ar­fé­lags­ins á hús­unum. Hér er ein­fald­lega um gam­al­dags og löngu úrelt vinnu­brögð að ræða sem við í Garða­bæj­ar­list­anum mót­mælum harð­lega. Því greiddum við atkvæði gegn þessum samn­ingi.“

Sara Dögg er ósátt að gerður var samn­ingur án útboðs.

Ingvar Arnarson frá Garða­bæj­ar­list­anum lagði fram eft­ir­far­andi bókun á fund­inum:

Ingvar Arnarson lagði fram bókun á fund­inum fyrir hönd Garða­bæj­ar­list­ans.

„Við í Garða­bæj­ar­list­anum teljum eðli­legt að þegar gengið er til samn­inga um kaup eða leigu á fær­an­legu hús­næði sé farið í útboð, enda er fjár­hæð þessa samn­ings langt yfir við­mið­un­ar­fjár­hæðum sem kveðið er á um í lögum um opin­ber inn­kaup. Í ljósi þess getum við ekki sam­þykkt að Garðabær gangi til samn­inga um leigu og for­kaups­rétt á gáma­leik­skóla í eigu Terra. Auk þess teljum við óásætt­an­legt að gengið sé til samn­inga án útboðs við fyr­ir­tæki sem er að hluta í eigu for­seta bæj­ar­stjórnar,“ en for­seti bæj­ar­stjórnar í Garðabæ – og sá ein­stak­lingur sem á í áður­nefndu fyr­ir­tæki sem fékk samn­ing­inn án útboðs, er Björg Fenger lög­fræð­ingur.

Ingvar segir að það sé „stefna Garða­bæj­ar­list­ans að öll meiri­háttar inn­kaup fari í útboð og tryggja þannig gagn­sæi og góða nýt­ingu á skattfé Garð­bæ­inga.“

Í fram­haldi af bókun Ingvars á umræddum fundi lögðu full­trúar Sjálf­stæð­is­flokks­ins í bæj­ar­stjórn fram eft­ir­far­andi bókun á fund­inum:

Gunnar Ein­ars­son er bæj­ar­stjóri Garða­bæjar.

„Garðabær leggur ríka áherslu á þjón­ustu við for­eldra með börn á leik­skóla­aldri. Fjölgun barna í Garðabæ er mikil um þessar mundir og brýnt að börnum sé útveguð leik­skóla­vist við 12 mán­aða aldur eins og Garðabær leggur upp með. Leiga fast­eignar eins og þeirrar sem hér um ræðir er und­an­skilin gild­isviði laga um opin­ber inn­kaup nr. 120/2016. Öll til­vísun í við­mið­un­ar­fjár­hæðir sam­kvæmt þeim lögum á ekki við hér.
Varðandi hæfi bæj­ar­full­trúa vís­ast til ákvæða sveit­ar­stjórna­laga og sam­þykktar um stjórn Garða­bæjar sem fylgt hefur verið hví­vetna í þessu máli eins og öðrum málum sem koma til umfjöll­unar og afgreiðslu bæj­ar­yf­ir­valda. Bæjarráð sam­þykkir samn­ing­inn með fjórum atkvæðum (ÁHJ,SHJ,AG,GVG) gegn einu (IA). Bæjarráð vísar samn­ingnum til afgreiðslu á fundi bæja­stjórnar 19. ágúst nk. Bæjarráð Garða­bæjar.“

Guðjón Erling Frið­riks­son bæj­ar­rit­ari Garða­bæjar.

Fundinn sátu: Áslaug Hulda Jóns­dóttir for­maður, Sigríður Hulda Jóns­dóttir aðal­maður, Gunnar Valur Gíslason aðal­maður, Almar Guð­munds­son aðal­maður, Ingvar Arnarson vara­maður, Guðjón Erling Frið­riks­son bæj­ar­rit­ari, Eiríkur Björn Björg­vins­son sviðs­stjóri fræðslu- og menn­ing­ar­sviðs, Eysteinn Har­alds­son bæj­ar­verk­fræð­ingur, Svan­hildur Þeng­ils­dóttir sviðs­stjóri fjöl­skyldu­sviðs, Hulda Hauks­dóttir upp­lýs­inga­stjóri, Guðbjörg Brá Gísla­dóttir deild­ar­stjóri umhverfis og fram­kvæmda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ