Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Lögreglan varar við „vönduðu netsvindli – Skipulagðir glæpir og algent tjón frá 2 millum upp í 10“

Lögreglan varar við „vönduðu netsvindli – Skipulagðir glæpir og algent tjón frá 2 millum upp í 10“

Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu varar fólk við „vönd­uðu netsvindli í bíla­við­skiptum, vinnu­vélum og dýrum íhlutum. Lögreglu hafa borist nokkuð af til­kynn­ingum um slík vöru­svik á und­an­för­unum árum, en nú eru svindl­ar­arnir farnir að koma sér fyrir á við­ur­kenndum sölu­síðum erlendis.“

Lög­reglan nefnir að þessir óprút­tnu aðilar „falsa skrán­ingar og setja upp heima­síður til að ljá svikum sínum trú­verð­ug­leika og bjóða vörur á þessum síðum. Þeir eru liprir í tölvu­póst­sam­skiptum og eiga það til að fylgja eftir í sím­tölum. Mynd­irnar sem fylgja hafa svindl­ar­arnir ein­fald­lega stolið af öðrum síðum og eru þær að því leiti trú­verð­ugar, nema að þeim var líka stolið.“

Bendir líka á að það sé „eftir miklu að slægj­ast fyrir glæpa­menn­ina og oft­ast er þetta armur af skipu­lögðum glæpum. Gefin eru öll góð fyr­ir­heit, en um leið og greiðsla hefur borist þeim þá hverfa þeir og pen­ing­arnir.

Algengt tjón í svona málum er frá 2.5 millj­ónum og upp í 10, þannig að svindl­ar­arnir geta náð til sín miklum fjár­munum á þennan hátt. Enda erum við að sjá vönd­uð­ustu glæp­ina þar sem gróð­inn er mestur.

Þar liggur einmitt vand­inn; það er að glæpa­sam­tök eru farin að leggja vand­aða vinnu í þess konar svindl. Við biðjum því fólk að sýna hæfi­lega tor­tryggni, sem í dag er að ganga út frá því að það sem er á net­inu sé svindl, þar til að grand­var kaup­andi viti annað.“

Einnig:

„Eitt sem má gera er að skoða heima­síður hjá https://whois.domaintools.com, en þar er hægt að sjá ýmsar upp­lýs­ingar um skrán­ingu síð­unnar; ekki síst hvað síðan er gömul og hvort ein­hver sé skráður ábyrgur. Þetta er samt alls ekki 100% og það borgar sig líka að leita að umsögnum á net­inu.“

Lög­reglan brýnir fyrir fólki að láta ALLS ekki þær fyrstu duga því svindl­ar­arnir sjálfir vita þetta og setja inn mjög jákvæðar umsagnir um sjálfa sig:

„Þetta eru ágæt atriði til að hafa í huga; en ef þið eruð að eiga við­skipti við ein­hvern í fyrsta sinn eða að við­skipta­að­ili vill fá pen­inga á nýjan reikn­ing þá eru það hættu­merki.

Ef þið eruð í sam­starfi við aðra, spyrj­ist þá líka fyrir um áreið­an­leika. Gerið sem mest til að sann­færa ykkur um hvort um er að ræða raun­veru­leg fyr­ir­tæki eða hrein­ræktað svindl.

Það eru ansi margir þarna úti sem mun reyna að svindla á ykkur og því byrjar net­ör­yggi hjá ykkur sjálfum.“

Bætir við:

„Í eðli sínu er sams­konar svindl vel þekkt í gegn um ald­irnar, en með til­komu inter­nets­ins/ver­ald­ar­vefs­ins, þá er aðgengi svindl­ara að stórum hóps orðið miklu auð­veld­ara og hægt að stunda nafn­leysi með að koma algjör­lega fram undir fölsku nafni.

Við höfum fengið til­kynn­ingar um sams­konar svindl á öðrum síðum, eins og Brask og brall; þar eru minni upp­hæðir í húfi, en oft eru fögur fyr­ir­heit og tölvu­svika­póstur í nafni þekktra aðila eins og Fed-ex eða paypal, að ofgreitt hafi verið fyrir þjón­ustu og þegar brota­þoli sé búinn að borga mis­mun­inn þá verði greiðsla lögð inn á þá. Í þeirri von að brota­þoli sendi pen­inga og þá láta glæpa­menn­irnir ekki heyra í sér aftur.“

Lög­reglan leggur mikla áherslu á að „ef þið sjáið eitt­hvað grun­sam­legt hafið sam­band við okkur í [email protected] eða [email protected] – góðar ábend­ingar hjálpa okkur að sjá hvað er í gangi og geta orðið til­efni til umfjöll­unar.

Farið var­lega og passið ykkur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum