Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Svara enn ekki efnislega fyrir ráðningu Sigríðar: Er munur á handarsérfræðingi og handarskurðlækni?

Svara enn ekki efnislega fyrir ráðningu Sigríðar: Er munur á handarsérfræðingi og handarskurðlækni?
Guðlaug Rakel Guð­jóns­dóttir, fram­kvæmda­stjóri með­ferð­ar­sviðs Land­spít­ala. Tók tíma­bundið við starfi for­stjóra LSH

Enn eru engin svör komin frá starfs­fólki LSH sem mögu­lega kom að ráðn­ingu Sigríðar Karls­dóttur lýta­læknis sem hand­ar­sér­fræð­ings – en eins og komið hefur fram í tveimur greinum sem Mannlíf hefur skrifað og birt um þetta mál má sér­fræð­ingur í þeirri grein sem við­kom­andi læknir hefur numið í sér­fræði­námi sínu og útskrif­ast í, ekki kalla sig eða kynna sig fyrir sjúk­lingum að við­kom­andi sé sér­fræð­ingur í fagi sem hann er ekki.

Þetta er skýrt í lögum og reglum innan heil­brigð­is­kerf­is­ins, og hægt að kynna sér á net­inu lögin og regl­urnar varð­andi sér­fræði­lækna og ráðn­ingar innan hins íslenska heil­brigð­is­kerfis.

Einu svörin sem Mannlífi hafa borist um ráðn­ingu lýta­læknis í starf hand­ar­sér­fræð­ings/hand­ar­skurð­læknis – hafa komið frá fyrrum blaða­mann­inum og núver­andi aðstoð­ar­manni land­læknis, Kjartani Hreini Njáls­syni (sem engan tölvu­póst né spurn­ingar fékk frá blaða­manni Mannlífs), Ölmu Möller land­lækni sem firraði sig ábyrgð á mál­inu, og nú síð­ast fyrrum blaða­mann­inum Andra Ólafs­syni, sem sinnir nú fjöl­miðla­sam­skiptum hjá sam­skipta­deild Land­spít­al­ans, og hefur engan tölvu­póst með spurn­ingum um málið fengið frá Mannlífi.

Hvers vegna svara ekki til þess bærir aðilar spurn­ingum Mannlífs? Ef ráðn­ingin er 100% lög­leg, ætti þá ekki að vera lítið mál fyrir þá aðila sem fengu ítar­legar spurn­ingar frá Mannlífi um ráðn­ingu Sigríðar, að svara fyrir sig og kynna gögn sín er sanna að ráðn­ingin var 100%.

Hér fyrir neðan má sjá svar Andra Ólafs­sonar við spurn­ingum sem ekki voru sendar til hans af blaða­manni Mannlífs:

„Í tveimur fréttum sem birt­ust nýverið á mann­lif.is er að finna stað­reynda­villur sem nauð­syn­legt er að bregð­ast við og leið­rétta. Í frétt­unum er því rang­lega haldið fram að læknir á Land­spít­ala sigli undir fölsku flaggi og ýjað er að því að ráðn­ing við­kom­andi læknis í hand­ar­teymi bækl­un­ar­deildar spít­al­ans sé á ein­hvern hátt óeðli­leg. Sigríður Karls­dóttir sér­fræð­ingur í lýta­lækn­ingum var ráðin inn í hand­ar­teymi bækl­un­ar­deildar Land­spít­ala eftir lög­form­legt ráðn­ing­ar­ferli og metin hæf af mats­nefnd spít­al­ans. Á heims­vísu eru bækl­un­ar­læknar, lýta­læknar og almennir skurð­læknar sem sinna aðgerðum á höndum, en hand­ar­skurð­lækn­ingar eru eigin sér­grein í ein­ungis örfáum löndum. Það er styrkur hand­ar­ein­ingar Land­spít­ala að við hana starfar hópur með breiða þekk­ingu og ólíkan bak­grunn. Í sam­skiptum við sjúk­linga er Sigríður titluð af Land­spít­al­anum sem hand­ar­sér­fræð­ingur, ekki hand­ar­skurð­læknir, í sam­ræmi við menntun hennar, reynslu og verk­efni á spít­al­anum.“

Hver er mun­ur­inn á hand­ar­sér­fræð­ingi og hand­ar­skurð­lækni?

Andri Ólafsson segir í svari sínu: Sigríður Karls­dóttir sér­fræð­ingur í lýta­lækn­ingum var ráðin inn í hand­ar­teymi bækl­un­ar­deildar Land­spít­ala eftir lög­form­legt ráðn­ing­ar­ferli og metin hæf af mats­nefnd spít­al­ans.

Hér með óskar Mannlíf með til­vísun í upp­lýs­inga­lög nr. 140/2012 eftir þeim gögnum sem sýna fram á að ráðn­ing Sigríðar hafi farið í gegnum lög­form­legt ráðn­ing­ar­ferli, og einnig gögnum, nöfnum og menntun þeirra er skip­uðu mats­nefnd spít­al­ans þegar umsókn Sigríðar lýta­læknis sem hand­ar­sér­fræð­ings/hand­ar­skurð­læknis, var tekin fyrir og hún síðan í kjöl­farið ráðin sem hand­ar­sér­fræð­ingur.

Einnig fer Mannlíf fram á, með til­vísun í upp­lýs­inga­lög nr. 140/2012, að þeir sem fengu spurn­ingar sendar frá blaða­manni Mannlífs svari fyrir spurn­ing­unum.

Mannlíf stendur við fréttir sínar af þessu máli, og mun halda áfram að fjalla um það þangað til svör og gögn um málið munu ber­ast til Mannlífs, eins og þessum aðilum er skylt að gera með til­vísun í upp­lýs­inga­lög nr. 140/2012.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina