Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Trúbrot var úthrópuð en ekki útúrdópuð: „Við erum ekki forfallnir dópistar“

Trúbrot var úthrópuð en ekki útúrdópuð: „Við erum ekki forfallnir dópistar“

Í árs­byrjun 1970 birt­ist við­tal við með­limi hljóm­sveit­ar­innar Trúbrots sem skók sam­fé­lagið.

Á for­síðu vik­unnar var heil­síðu­mynd af þess­ari vin­sæl­ustu hljóm­sveit Íslands með fyr­ir­sögn­inni:

Við reyktum mari­ju­ana.

Þessi yfir­lýs­ing var orð­rétt höfð eftir Gunnari Þórð­ar­syni gít­ar­leik­ara. Viðtalið kom í fram­haldi af lög­reglu­rann­sókn og miklu umtali í sam­fé­lag­inu þar sem umtalað var að hljóm­sveitin væri í dóp­inu, eins og það kall­að­ist þá.

Ómar Valdi­mars­son, blaða­maður Vikunnar, útskýrði í upp­hafi við­tals­ins hver var kveikjan að umfjöll­un­inni.

„Hvar sem maður kemur þessa dag­ana er talað svo til ein­göngu um tvennt: EFTA og dópstandið á Trúbrot. Ég rakst á kunn­ingja minn í strætó um dag­inn og við fórum að tala um þetta tvennt, þó heldur meira um dóp­málið svo­nefnda,“ skrifar Ómar og seg­ist hafa verið á þeirri skoðun að honum þætti heldur harka­lega að þeim félögum í Trúbrot vegið.

Og honum tókst að selja hljóm­sveit­inni þá hug­mynd að tala út um málið og játa neysl­una und­an­bragða­laust.

Á þessum tíma var Trúbrot vin­sælasta hljóm­sveit lands­ins, og stóð flestum öðrum hljóm­sveitum framar að getu og vin­sældum. Hún var súpergrúppa, sett saman úr Hljómum, fyrstu bítla­hljóm­sveit Íslands, og Flowers, sem notið hafði mik­illa vin­sælda.

Trúbrot var á þessum tíma nán­ast í guða­tölu hjá ungu fólki á Íslandi og hafði gríð­ar­leg áhrif á ungt fólk.

Afhjúp­unin var því mörgum reið­ar­slag.

Ómar hitti Gunnar Þórð­ar­son „gít­ar­leik­ara hljóm­sveit­ar­innar alræmdu“ og fékk hann til að segja allt af létta um þetta mál sem svo mikið hafði verið talað um í blöðum og á götum úti.

Gunnar sagð­ist sjálfur hafa byrjað að nota „lyfið“ á Englandi þremur árum fyrr þegar fyrri breið­skífa Hljóma var tekin upp þar. Síðan hafi hann neytt maríjúana í Svíþjóð ári síðar en lítið eftir það.

„Ég ætla ekki að þræta fyrir það að það er hitt og þetta til í þessum sögum sem hafa gengið um hljóm­sveit­ina í sam­bandi við kanna­bis­neyslu, en ég harð­neita því bæði fyrir mína hönd og eins hinna í hljóm­sveit­inni, að við séum for­fallnir dópistar.“

Blaða­mað­ur­inn spurði þá hvar hljóm­sveitin hefði fengið það maríjúana sem um ræðir; var spurt hvort þau hefðu sjálf smyglað því frá Englandi.

Gunnar upp­lýsti fús­lega hvað var þar um að ræða.

„Við fengum þetta magn hjá Banda­ríkja­manni af Kefla­vík­ur­flug­velli, sem við höfðum kynnst rétt áður en við fórum til London í haust til að taka upp nýju plöt­una. Við komum heim síð­ast í októ­ber, og skömmu síðar bauðst hann til að gefa okkur örlítið maríjúana. Við þáðum það, öll nema Gunnar Jökull trommu­leik­ari, sem alltaf hefur verið ákaf­lega mikið á móti þessu. Og ég vil að það komi skýrt fram, að við gerðum allt sem í okkar valdi stóð til þess að halda þessu leyndu og við gáfum aldrei eitt ein­asta gramm út fyrir hljóm­sveit­ina,“ segir Gunnar.

Hann segir neysl­una aldrei hafa verið mikla.

„Ég sagði per­sónu­lega vinum mínum frá þessu, og reikna með að hin hafi gert það líka, þannig að það er í raun­inni okkur að kenna, að ein­hverju leyti, hvernig komið er. Nei, við vorum ekki stans­laust undir áhrifum þessa, magnið var lítið. Hefði öllu verið rúllað upp í sígar­ettur, og þessar mari­ju­ana­sígar­ettur eru venju­lega ca. helm­ingi mjórri en venju­legar, þá hefðu þær orðið á að giska 30. Það hefur verið í rúman mánuð sem við neyttum þessa, og þá aðeins um helgar, á tylli­dögum, eins og maður segir. Jú, það kom fyrir að við not­uðum lyfið á meðan við vorum að spila, en það er alls ekki rétt sem ég var að heyra, að ég og við öll, hefðum ekki getað spilað nema að vera í „dóp­inu“!,“ sagði Gunnar við Vikuna fyrir 51 ári síðan.

Gunnar segir að neysla hans og ann­arra hljóm­sveit­ar­með­lina hafi verið fikt en ekki hörð neysla.

„Fyrst þegar ég reyndi þetta, þá gerði ég það fyrir hreina for­vitni, og það sama er hægt að segja um hin þrjú. Ég þótt­ist vera búinn að lesa mér nægi­lega mikið til, til þess að ég væri öruggur um að þetta hefði engin skað­leg áhrif á mig. Og ennþá hef ég ekki rek­ist á neitt sem ritað hefur verið um þetta, og hef ég þó lesið allt sem ég hef náð í, sem bendir til þess að maríjúana, eða kanna­bis yfir­leitt, hafi skað­leg áhrif á fólk. Og sam­an­borið við vín er þetta, ja, það er eig­in­lega ekki hægt að bera þetta saman. Vín deyfir mann fyrir umhverf­inu, en undir áhrifum mari­ju­ana verður maður ákaf­lega næmur og opinn, og það er ástæðan fyrir því að við not­uðum þetta einu sinni eða tvisvar á meðan við vorum að spila. En ég er alls ekki að mæla með þessu,“ sagði Gunnar.

Upphaf þess að málið fór í fjöl­miðla var að sögn Gunnars að ein­hver tók sig til og sendi nafn­laus bréf á fjöl­miðla þar sem því var lýst að flug­freyja hefði játað við yfir­heyrslu að hafa smyglað maríjúana til lands­ins fyrir hljóm­sveit­ina.

„Þessi stúlka smyglaði aldrei einu eða neinu inn í landið handa okkur, og því síður var hún rekin úr starfi fyrir það. Ástæðan fyrir því að hún hætti í starf­inu var sú, að hún var bara ráðin til 1. nóv­em­ber eða eitt­hvað svo­leiðis, og sá tími var einmitt útrunn­inn þegar þetta bréf var samið. Þannig að þessi saga er upp­spuni frá rótum.“

Blaða­maður spyr um áhrif þess að hljóm­sveitin var bönnuð fyrir fullt og allt á skemmti­stað auk þess sem sam­band vín­veit­inga­húsa beindi þeim til­mælum til félaga sinna að Trúbrot yrði ekki látin spila á meðan málið væri í gangi.

„Auðvitað er þetta slæmt, en okkur finnst þetta eig­in­lega óskilj­an­legt. Við höfum ekki gert neitt sem gengur í ber­högg við lögin, en samt erum við stimpl­aðir sem ótíndir glæpa­menn og skúrkar, á meðan ill­mennum eins og þeim sem fleka smá­börn og þaðan af verra, er hlíft á allan hugs­an­legan hátt af rík­is­vald­inu. Mér finnst blaða­mennska á Íslandi skítug, en það er varla við öðru að búast, því blöðin verða nátt­úr­lega að inni­halda eitt­hvað sem fólk vill lesa, og æsifregnir eins og „TRÚBROT MEÐ EITURLYF“ er vita­skuld fyrsta flokks sölu­vara.

Og mér fannst það nokkuð und­ar­legt, svo ekki sé meira sagt, að hátt­settur lag­anna vörður hér á landi lét hafa það eftir sér í blaða­við­tali að hann „héldi“ að þetta hefðu verið ein­hverjir með­limir úr þess­ari hljóm­sveit, sem teknir voru fyrir „eit­ur­lyfja­neyslu“,“ svarar Gunnar.

Hann lýsir því þegar lög­reglan birt­ist á heim­ili hans. Þar voru nokkrir sam­an­komnir til að kveðja Banda­ríkja­mann­inn, sem hafði áður útvegað þeim mari­ju­ana.

„Þessa nótt, sem lög­reglan kom hér, var ég að kveðja hann, og við sátum hér í stof­unni ásamt Rúnari og Shady, konan mín var sof­andi inni. Og það er eins satt og að ég er Gunnar Þórð­ar­son, að eina „eitrið“ sem hér var haft um hönd í það skiptið, voru sígar­ettur af gerð­inni Salem; við sátum hér í bróð­erni og töl­uðum um músik. Klukkan hálf fimm, vinur minn banda­ríski átti að fara heim um morg­un­inn og því sátum við svona lengi, þá komu inn fimm lög­reglu­þjónar, með aðstoð­ar­yf­ir­lög­reglu­þjón­inn í broddi fylk­ingar.

Ég fór til dyra, og þar er strax borið upp á mig að ég sé þrældóp­aður, og hvort ég vildi ekki gefa þeim sýn­is­horn. Því miður varð ég að neita þvi; ég átti bara ekk­ert sýn­is­horn handa honum!

Svo vorum við tekin fram, eitt og eitt í einu og yfir­heyrð. Síðan kvöddu þeir kurt­eis­lega!

Daginn eftir vorum við á æfingu hér í Reykja­vík, þegar þessi sami lög­reglu­maður kom og sagði okkur að við ættum að koma strax með þeim suður í Keflavík, þar sem átti að yfir­heyra okkur. Jú, jú, það var í lagi, og við fórum með þeim suð­ur­eftir. Þar vorum við yfir­heyrðir af íslensku lög­regl­unni á Kefla­vík­ur­flug­velli, og fengum við að vita að Banda­ríkja­mað­ur­inn, sem hafði gefið okkur lyfið, hafði verið tek­inn fastur.

Síðan vorum við leidd fyrir rétt, og látin bera vitni í máli hans, þar sem við ját­uðum auð­vitað að hann hefði gefið okkur fjórar litlar filmu­dósir með mari­ju­ana. Og það er ekki rétt að það hafi fund­ist maríjúana hjá Shady við hús­rann­sókn, því hún afhenti það strax sjálf,“ segir Gunnar.

Blaða­maður segir þá stað­reynd blasa við að fram­tíð með­lima Trúbrots sem tón­list­ar­manna á Íslandi sé heldur dökk og spyr hvað þau ætlist fyrir.

„Í raun­inni getum við ekk­ert gert. Eina spilið sem við höfum í hönd­unum er mús­íkin okkar, og við verðum að vinna í henni. Við höfum öll fjögur ákveðið að gefa öllum örf­andi lyfjum frí, en nú er bara að bíða og sjá til hverju fram vindur. Og mig langar til að segja þetta einu sinni enn: Það er und­ar­legt rétt­ar­far sem stimplar menn ótínda glæpa­menn og þrjóta fyrir eitt­hvað sem ekki er ólög­legt, en lætur svo menn, stór­hættu­lega þjóð­fé­lag­inu, hvíl­ast undir vernd­ar­væng rík­is­ins.“

Blaða­maður slær tóna svart­sýnis undir lok við­tals­ins og segir að málið hafi valdið aðdá­endum hljóm­sveit­ar­innar miklum von­brigðum. Margir hafi snúið bak­inu við Trúbroti vegna þess að þeir hafi verið í fíkni­lyfja­neyslu og tím­inn verði að leiða í ljós hvernig fari fyrir hljóm­sveit­inni.

Gunnar sagði að málið hafi ekki haft veru­leg áhrif á afkomu hljóm­sveit­ar­innar sem átti eftir að ganga í gegnum mikið blóma­skeið. Hún var lögð niður árið 1973 eftir að hafa markað sín spor í íslenska tón­list­ar­sögu.

„Það voru ein­hver gigg afbókuð en fæstir spáðu í þetta. Við vorum auð­vitað bítla­hljóm­sveit og þetta þótti sjálf­sagt. Við urðum auð­vitað að prófa þetta eins og hljóm­sveitir úti í heimi til að vita hvað þetta væri,“ segir Gunnar. Hann seg­ist hafa notað maríjúana í tíu ár eftir við­talið fræga þrátt fyrir að hafa lýst yfir að þau væru hætt.

„Við not­uðum þetta af og til. En svo var þetta bara svo leið­in­legt að við hættum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum