Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Rúna í kapphlaupi upp á líf og dauða til að bjarga Eldi: „Örugglega erfiðasta augnablik lífsins“

Rúna í kapphlaupi upp á líf og dauða til að bjarga Eldi: „Örugglega erfiðasta augnablik lífsins“

„Í raun­inni var hann alveg að fara að kveðja,“ segir Rúna Sif Rafns­dóttir sem í ágúst í fyrra gaf hálfs árs syni vin­konu sinnar, Eldi Elí Bjarka­syni, hluta af lifur sinni. Rúna var vegna þessa valin „Hetja árs­ins“ hjá Mannlífi og fór af því til­efni í við­tal hjá Reyni Trausta­syni.

Lifrin var að skemm­ast, alltaf meira og meira

Fljót­lega eftir að Eldur Elí fædd­ist kom í ljós að hann var smit­aður af veiru sem leiddi svo til lifr­ar­bil­unar og fjög­urra mán­aða gam­all fóru for­eldrar hans með hann til Sví­þjóðar þar sem ljóst var að hann þyrfti að fara í lifr­ar­skipta­að­gerð en það gekk hins vegar illa að finna gjafa. „Lifrin var að skemm­ast, alltaf meira og meira og hún var nán­ast ónýt þegar hún var tekin.“ Rúna segir að komið hafi í ljós að for­eldr­arnir gætu ekki gefið syn­inum hluta af lifur úr sér. „Það þarf að vera ákveðin lögun og stærð. Af því að hann var svo lít­ill þá hafði það ekk­ert að segja þótt blóð­flokk­ur­inn væri ekki sá sami; þá væri bara skipt um blóð í honum.“ Hún seg­ist hafa velt því fyrir sér hvers vegna það væri ekki kannað hvort fleiri gætu gefið hluta af lifur sinni þegar for­eldrar drengs­ins fóru í slíka skoðun í Svíþjóð. „Það hefði kannski verið betra að láta kanna fleiri en bara for­eld­rana á þessum tíma. En svo hugsar maður „nei, þetta átti bara að fara svona af því að þetta gekk upp svona“.

Þau sendu okkur mynd­skeið á hverjum degi á meðan þau voru úti þannig að maður var í raun­inni alltaf að fylgj­ast með. Maður vildi fylgj­ast með. Við erum í hjálp­ar­starfi með sex öðrum þjóðum með líf­færa­gjafir og þá var hann kom­inn efstur þar á lista og eins og Bjarki sagði,“ segir Rúna og á við föður Elds Elís, Bjarka Pál Eysteins­son, „þá var það skrýtið að þau væru í raun­inni að bíða eftir að eitt­hvað annað barn myndi deyja til þess að hans barn gæti fengið líf­færi úr því. Þetta er allt svo absúrd. Þetta er svo erfitt. Og alls konar til­finn­ingar.“

Varahluturinn

Ein úr vin­kvenna­hópnum, Lea, býr í Svíþjóð og segir Rúna að þannig hafi bolt­inn farið af stað; Lea bauðst til að láta athuga hvort hægt væri að nýta hluta af lifur sinni en í ljós kom að svo var ekki. Rúna segir að á Íslandi hafi fólk þá áttað sig á því hvernig ástandið væri og fannst það þá eitt­hvað þurfa að gera. „Það voru margir sem buðu sig fram. Ég held líka að við Íslend­ingar höfum þetta í okkur. Við erum gott fólk.“ Og Rúna bauðst til að veita aðstoð sína á þennan hátt eins og fleiri úr vin­kvenna­hópnum. Hún býr á Tálkna­firði og seg­ist hafa verið komin með keppn­is­skap og verið óþreyju­full eftir að hringt yrði í sig til að fara í svona tékk. Svo var hringt og hún átti að fljúga frá Bíldudal. Hún var aðeins sein og er þakk­lát flug­fé­lag­inu þar sem vin­kona hennar, Lea, fékk því fram­gengt að brott­för vél­ar­innar yrði seinkað eitt­hvað til að Rúna kæm­ist með henni suður. „Það var beðið í nokkrar mín­útur; flug­vélin átti að fara klukkan 12 en ég mætti klukkan 12 þannig að þeir biðu í nokkrar mín­útur.“ Eig­in­maður Rúnu stakk hann upp á því að vega­bréfið yrði tekið með.

„Hann var ótrú­legur klettur í þessu ferli með mér.“

Hún fór í fyrr­nefnt og kom í ljós að hún væri mögu­legur gjafi. Og í sömu viku flaug hún og eig­in­maður hennar til Stokk­hólms og þá vissu þau að Eldur Elí væri á gjör­gæslu.

Það var örugg­lega erf­ið­asta augna­blik lífs míns.

Hjónin ætl­uðu síðan að taka lest til Gauta­borgar þar sem dreng­ur­inn lá á sjúkra­húsi en svo var pantað flug­far en vél­inni seink­aði og þá fengu þau þær fréttir að dreng­ur­inn væri kom­inn í önd­un­ar­vél. „Það var örugg­lega erf­ið­asta augna­blik lífs míns. Mér fannst eins og ég væri kannski að fara að geta bjargað honum en af hverju var ég föst þarna í sama landi? Þetta var rosa­lega erfitt.

Ég bara grét og mað­ur­inn minn fór í svona „hvað getum við gert?“. Hann tók upp sím­ann og athugað hvort hann þekkti ein­hvern sem gæti reddað þyrlu til að fljúga okkur yfir.

Svo náðum við að róa okkur niður.

Þetta var orðin spurn­ing um líf og dauða. „Þess vegna held ég að þetta hafi verið svona dramat­ískt á vell­inum – af því að við vorum komin af stað til þess að fara að bjarga honum – til þess að koma með þennan vara­hlut sem vant­aði.“

Rúna segir að Eldur Elí hafi ekki verið í stakk búinn til þess að fara í aðgerð á þessum tíma­punkti hvort sem var. „Hann var orð­inn svo veikur að í raun­inni var önd­un­ar­vélin að hjálpa honum að halda ball­ans og ná sér kannski á betra strik. Okkur var sagt að halda okkar plani og taka flugið þegar að því kæmi. Maður róað­ist þarna og svo þegar við vorum komin í vél­ina fékk ég aftur á til­finn­ing­una að þetta færi vel þannig að vonin kom aftur. Það hjálp­aði svo mikið að maður fann að það var þarna þessi von.“

Um sjö tíma aðgerð

Hjónin komu loks til Gauta­borgar og fór þá Rúna í ýmis próf á Sahlgrenska -sjúkra­hús­inu. Eldur Elí lá hins vegar á öðru sjúkra­húsi. „Svo kom læknir inn og sagði að ég væri 99% „match“.“ Lækn­ir­inn tal­aði um ef hún væri með ein­hverjar efa­semdir og vildi hætta við og fór yfir hvað yrði gert í aðgerð­inni; skorið frá bringu­beini og niður að nafla. „Ef þú vilt hætta við þá finnum við lækn­is­fræði­lega ástæðu fyrir því að þetta gekk ekki upp,“ sagði hann. „Mér fannst þetta svo skrýtið; ég var í þessu af „fight mode“. Er hann í alvöru að bjóða mér að hætta við þetta?“

Líkurnar voru ekki brjál­æð­is­lega háar að ég hefði dáið.

Hvað með mögu­legar afleið­ingar aðgerð­ar­innar á Rúnu?

„Líkurnar voru ekki brjál­æð­is­lega háar að ég hefði dáið. Auðvitað getur allt gerst þegar það er kvið­að­gerð og allt opið en þetta eru færir skurð­læknar sem gera svona aðgerðir á hverjum degi.“ Rúna segir að lækn­ir­inn hafi meðal ann­ars sagt að ef skorið yrði of langt í aðra átt­ina þá gæti farið að leka gall og þá þyrfti að opna hana aftur. „Ég var bara svo ótrú­lega vel stemmd í þetta og til­búin og ég vissi að þetta myndi fara vel.

Það sem maður var mest hræddur um var að þetta myndi ekki ganga. Eins og hann sagði við mig lækn­ir­inn þá færi þetta kannski þannig að ég gæfi part af lifr­inni en þeir gætu ekki notað hann af því að hann færi á meðan. Maður getur ekki sett sig í þessi spor sem for­eldri. Þetta er svo mikið.“

Svo fór Rúna í um sjö tíma aðgerð og þegar hún vakn­aði spurði hún hvernig Eldur Elí hefði það. Hann var þá enn í aðgerð og segir hún að hann hafi verið á mörk­unum að geta farið í aðgerð­ina. Ástand hans var það slæmt. „Ég var í móki. Maður var lyfj­aður.“ Hún hitti svo mann­inn sinn ekki fyrr en 27 tímum síðar og lá hún á sjúkra­húsi í tæpa viku.

Aðgerðin á Eldi Elí gekk vel. Rúna segir að honum hafi verið haldið sof­andi í fjóra eða fimm sól­ar­hringa og alltaf sást munur á honum. Hún segir að eðli­leg lifr­ar­gildi eigi að vera í mesta lagi í kringum 20 en þau voru komin upp í um 520 hjá honum. „Kristín og Bjarki töl­uðu um að lifrin hans væri að verða skorpulifur. Það mátti ekki tæpara standa.“

Tíminn leið. Rúna og eig­in­maður hennar fóru til Íslands og svo kom að því að litli dreng­ur­inn kom líka heim. Og þau hitt­ust þá fyrst eftir aðgerð­ina en hún hafði þó fylgst með honum á net­inu og séð myndir og mynd­bönd..

„Það er ólýs­an­legt,“ segir hún um það augna­blik þegar hún hitti dreng­inn.

Hvernig var að halda á honum?

„Dásam­legt. Krafta­verk.“

Þau eru þrjú saman; ekki bara tvö.

Hún segir að hjarta sitt fyllist af þakk­læti þegar hún sér myndir af drengnum með systk­inum hans tveimur. „Þau eru þrjú saman; ekki bara tvö.“

Rúna býr á Tálkna­firði eins og þegar hefur komið fram en eig­in­maður hennar er aðstoð­ar­yf­ir­lög­reglu­þjónn á Vest­fjörðum. Hún er sjúkra­liði og vinnur á sjúkra­hús­inu á Pat­reks­firði.

„Maður sér börnin blómstra þarna. Þau eru svo frjáls. Og svo er nátt­úran svo mikil og umferðin minni,“ segir hún og minn­ist á að fólk vinki sér úr bíl­unum þegar hún gengur um bæinn. „Mér finnst það vera svo krútt­legt.“

Rúna er spurð hvort Eldur Elí komi ekki til hennar í sveit­ina.

„Það er planið næsta sumar að þau komi öll og ég sýni þeim allar perlurnar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum