Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Hallfríður: „Innflytjendalandið Ísland – 70 þúsund innflytjendur á Íslandi í dag“

Hallfríður: „Innflytjendalandið Ísland – 70 þúsund innflytjendur á Íslandi í dag“

„Áhuga minn á fólki úr annarri menn­ingu má senni­lega rekja til þess að ég er upp­alin á mörkum ólíkra menn­inga, í Njarð­víkum á Kalda­stríðs árunum þegar umsvif banda­ríska hers­ins voru hvað mest. Það ríkti ein­hvers­konar skit­sófrenískt sam­band milli Íslend­inga og fólks­ins á her­stöð­inni – aðdáun og undrun ann­ars vegar og hins vegar fyr­ir­litn­ing ótti við ein­hvers­konar hugs­an­lega menn­ing­ar­lega mengun. Á þeim árum var það ekki hátt skrifað á Íslandi. Sem ung­lingur hlust­aði ég líka á og þýddi texta Bob Marleys og Stevie Wonders, sem hvor um sig sungu hástöfum um ójafn­rétti, kúgun og ras­isma. Það hafði mikil áhrif á mig.

Mikil þunga­vigt var í póli­tískum og menn­ing­ar­legum áhrifum Banda­ríkj­anna á þessum tíma en jafn­framt var þjóð­ern­is­hyggjan alls­ráð­andi í íslenskri menn­ing­arpóli­tík og við­horfum Íslend­inga gagn­vart sjálfum sér og öðrum og ekki örgrannt um að þeir finndu til yfir­burða sinna sam­an­borið við fólk úr annarri menn­ingu.“

Mannlíf hitti Dr. Hall­fríði Þór­ar­ins­dóttur í spjall, en hún er stofn­andi og fram­kvæmda­stjóri Mirru, fræðslu- og rann­sókn­ar­set­urs, sem sér­hæfir sig í inn­flytj­endum og marg­menn­ingu á Íslandi. Hall­fríður er einn frum­kvöðla í rann­sóknum á inn­flytj­endum á Íslandi, einkum inn­flytj­endum á vinnu­mark­aði og jafn­framt einn frum­kvöðla í fræðslu um inn­flytj­enda­landið Ísland. Hall­fríður er með dokt­ors­próf í menn­ing­ar­mann­fræði frá The New School for Social Research í New York borg.

Samfélagið ákaflega einsleitt

„Tæplega tví­tug fór ég svo að vinna í Stokk­hólmi og vann m.a. með fólki, frá Finn­landi, Gambíu, Chile, Banda­ríkj­unum og mörgum fleiri löndum. Þetta var um 1980 og inn­flytj­endur skiptu þegar hund­ruðum þús­unda í Svíþjóð, en á Íslandi voru þeir hins vegar telj­andi á fingrum ann­arrar handar, sam­fé­lagið ákaf­lega eins­leitt og smátt og við­brigðin því mikil en jafn­framt mjög heill­andi.

Stuttu eftir Sví­þjóð­ar­dvöl­ina lagði ég aftur land undir fót og fór til Frakk­lands þar sem ég var í tæpt ár og kynnt­ist þá líka fólki víðs­vegar að m.a. frá Venes­ú­ela, Senegal, Simbabve, Bret­landi, Banda­ríkj­unum, Danmörku og mörgum fleiri löndum. Ég hafði ætlað að fara í mann­fræði­nám í Frakk­landi en venti mínu kvæði í kross, inn­rit­að­ist í HÍ og lauk þaðan B.A. prófi nokkrum árum síðar. Fékk svo rekt­ors­styrk frá New School og var boðið þar í fram­halds­nám. Lauk fyrst M.A gráðu og var svo boðið í dokt­ors­nám, sem ég lauk í fyll­ingu tím­ans.“

Endalaus menningarleg fjölbreytni

Hall­fríður eða Fríða eins og hún er oft­ast kölluð segir að:

„stúd­era menn­ing­ar­mann­fræði í New York er eins og að sitja á menn­ing­ar­legri gull­námu. Fyrir utan öll söfnin, leik­húsin, jazzinn, klassík­ina og lista­lífið þá er í þess­ari inn­flytj­enda­höf­uð­borg heims­ins, sam­an­komið fólk úr öllum heims­hornum. Hreint stór­kost­legt dæmi um sam­býli fólks úr ólíkri menn­ingu sem gengur þrátt fyrir allt.

New York, er eins og margir vita borg enda­lausrar menn­inga­legrar fjöl­breytni og þar ílengd­ist ég til fjölda ára og kenndi þar m.a. við háskóla í nokkur ár. Nemendur mínir voru margir af inn­flytj­enda­upp­runa og til­heyrðu ólíkum trú­ar­brögðum. Voru gyð­ingar, múslimar, úr margs­konar kristnum söfn­uðum o.s.frv. það var iðu­lega þannig að ein­hver í kúrs­inum gat sagt frá eigin reynslu þegar dæmi komu upp í mann­fræð­inni t.d. um skipu­lögð hjóna­bönd, mis­mun milli trú­ar­bragða o.fl..

Auk þess kynnt­ist ég fólki hvaðanæva úr ver­öld­inni, af öllum hugs­an­legum litum, stærðum, gerðum og trú­ar­brögðum. Búsetan í New York, þeir menn­ing­ar­straumar sem þar lágu, ásamt mik­illi póli­tískri vakn­ingu og bar­áttu ýmissa jað­ar­settra hópa og rót­tækum hug­myndum í fræði­legri orð­ræðu höfðu djúp­stæð áhrif á mig bæði per­sónu­lega og fræði­lega. Það voru gíf­ur­leg við­brigði að flytja svo aftur til litla eins­leita Íslands. Ég sakn­aði fjöl­breyti­leik­ans og því ekki und­ar­legt að ég fann mig fljótt á kafi í fræðslu um fjöl­menn­ingu og inn­flytj­endur.“

Innflytjendalandið Ísland

Mirra var stofnuð 2007 í Reykja­vík­ur­Aka­dem­í­unni, en varð svo að einka­fyr­ir­tæki síðar. Mirra hefur staðið fyrir margs­konar rann­sóknum á inn­flytj­endum á Íslandi og jafn­framt tekið þátt í alþjóð­legum rann­sóknum, sem m.a. lúta að sam­burði milli landa á stöðu inn­flytj­enda á vinnu­mark­aði.

Auk rann­sókna hefur Fríða unnið að fræðslu í formi fyr­ir­lestra og nám­skeiða um inn­flytj­enda­landið Ísland, marg­menn­ingu og þjálfun í s.k. menn­ing­ar­færni. Vit­und­ar­vakn­ing um mik­il­vægi þess að marg­breyti­leik­inn fái notið sín, verður sífellt hávær­ari. Það er ekki nóg að segj­ast vera jafn­rétt­is­sinn­aður heldur verður það að sjást í verki. Jafn­rétti ein­skorð­ast ekki við kynja­jafn­rétti það er miklu víð­tækara. Það þarf að taka til­lit til menn­ing­ar­legs upp­runa, ald­urs og fleiri þátta.

70 þúsund innflytjendur á Íslandi í dag

Fríða er aðspurð hvað henni finnd­ist mætti gera betur í þessum mála­flokki hér­lendis, og hún nefnir nokkur atriði.

„Í fyrsta lagi þá þurfum við heima­fólk að átta okkur á þeim grund­vall­ar­breyt­ingum sem eru að verða á íslensku sam­fé­lagi, með aðkomu tug­þús­unda fólks úr öðrum menn­ing­ar­sam­fé­lögum. Fjölgun inn­flytj­enda á Íslandi hefur verið ótrú­lega hröð. Á aðeins tveimur ára­tugum hefur þeim fjölgað um 85% og eru nú hátt í sjö­tíu þús­und. Þetta er fjöl­skrúð­ugur hópur fólks, sem hefur ákveðið að helga íslensku sam­fé­lagi krafta sína.

Ein­kenn­andi fyrir alþjóð­lega fólks­flutn­inga til Íslands er að flest fólk kemur hingað í atvinnu­leit þar af flestir frá ríkjum Evr­ópu­sam­bands­ins, en flótta­fólk er hlut­falls­lega fátt. Fimmti hver starf­andi á vinnu­mark­aði á Íslandi í dag er inn­flytj­andi og þeir eru mjög fjöl­mennir í ákveðnum starfs­greinum s.s. bygg­ing­ar­iðn­aði, umönnun, ferða­þjón­ustu og mörgum fleiri greinum. Mirra hefur t.a.m. rann­sakað og kort­lagt inn­flytj­endur í ferða­þjón­ustu og vinnur nú að rann­sókn á konum í umönnun.

Breyt­ing­arnar kalla á upp­stokkun gam­alla við­horfa. Við heima­menn þurfum að átta okkur á betur á hlut­verki okkar sem mót­tak­endur og gest­gjafar. Það er ekki nóg að aðfluttir leggi sig fram setji sig inn í aðstæður hér. Líkt og í hverri annarri sam­búð þarf fólk að mæt­ast á miðri leið.

Íslend­ingar hafa aldrei fyrr í sög­unni þurft að deila sínu sam­fé­lagi með hópum fólks sem hefur aðra menn­ingu eða trú­ar­brögð. Gest­gjaf­inn er óhjá­kvæmi­lega leið­andi og við eigum hér óunnið verk bæði hvað varðar sam­skipti milli ein­stak­linga úr ólíkum bak­grunni sem og hvað varðar við­horf stjórn­enda á vinnu­stöðum, í félögum og stofn­unum. Eftir höfð­inu dansa lim­irnir segir mál­tækið, þess vegna er mik­il­vægt að stjórn­endur hafi sans fyrir mik­il­vægi þess að praktísera jafn­rétti á sínum vett­vangi.

Þrátt fyrir fjöld­ann eru inn­flytj­endur á jaðr­inum í póli­tískri og sam­fé­lags­legri umræðu. Rödd þeirra er lág­stemmd en mun verða hástemmd­ari eftir því sem rætur þeirra í land­inu dýpka.
Það sem ein­kennt hefur afstöðu stjórn­valda er að líta fyrst og fremst á inn­flytj­endur sem vinnu­afl, sem mætir „þörfum atvinnu­lífs­ins“, en ekki fyrst og fremst sem fólk með alls­konar hæfni og getu þar sem þátt­taka á vinnu­mark­aði er aðeins einn flötur á lífi þeirra, líkt og heima­manna.

Íslenskur vinnu­mark­aður er sem betur fer – þökk sé mik­illi bar­áttu – ákaf­lega vel skipu­lagður og rétt­indi og skyldur launa­fólks og atvinnu­rek­enda bundin í lög. En það eru göt lög­unum. Þrátt fyrir ítrek­aðar ábend­ingar – einkum og sér­ílagi laun­þega­hreyf­ing­ar­innar – hafa við­brögð yfir­valda gegn kerf­is­bundnum brotum á inn­flytj­endum á vinnu­mark­aði, einkum launa­þjófn­aði, og vinnuman­sali því miður verið hæg. Launa­þjófn­aður er lögum sam­kvæmt ekki refsi­vert athæfi, líkt og laun­þega­hreyf­ingin hefur ítrekað gagn­rýnt. Staða launa­fólks á Íslandi er um margt betri en ger­ist í heima­löndum marga inn­flytj­enda en það er ekki afsökun fyrir því að brjóta á þeim hér.

Annað afar aðkallandi mál, sem liggur þungt hjá inn­flytj­endum eru hús­næð­is­mál. Lélegt hús­næði á upp­sprengdu verði er það sem allt of margir þeirra hafa neyðst til búa við. Skortur á mann­sæm­andi hús­næði á við­ráð­an­legu verði er mann­gert vanda­mál, sem auð­velt er að leysa sé til þess póli­tískur vilji. Annað sæmir okkur ekki sem mót­tak­endum og gest­gjöfum. Laun sem nægja ekki til fram­færslu, skapa fleiri vanda­mál en þau leysa.

Íslenska, eða ekki? Ef okkur heima­mönnum er alvara með því að taka inn­flytj­endur inn í íslenskt sam­fé­lag þá þurfum við að veita þeim aðgang að íslensku mál­sam­fé­lagi. Það ger­ist ekki ef Íslend­ingar skella í lás og tala ensku við þá öllum stundum. Þarna hafa yfir­völd dregið lapp­irnar, það ætti ekki að þurfa að ræða mik­il­vægi þess að veita ókeypis íslensku­kennslu fyrir alla inn­flytj­endur. Ef heldur fram sem horfir er mjög mikil hætta á því að margir inn­flytj­endur ein­angr­ist og það getur alið af sér alls­konar vanda­mál, sem örð­ugt getur reynst að leysa.“

Áhyggjuefni að börn innflytjenda eru að detta út úr framhaldsskólum

Fríða segir að ekki megi hins vegar gleyma að það hafi margt verið vel gert þegar kemur að inn­flytj­endum og mjög margt fólk sem hefur lagt sig fram um að lið­sinna þeim og greiða götu þeirra á marg­vís­legan hátt.

„Það er vissu­lega ánægju­legt að sjá að sam­búðin við inn­flytj­endur hefur gengið stór­átaka­laust og í heild­ina held ég að heima­menn séu til­búnir að leggja sitt af mörkum til að gera hana betri. Alþýðu­sam­bandið og ein­stök aðild­ar­fé­lög innan þess hafa staðið í eld­lín­unni þegar kemur að því að verja rétt­indi inn­flytj­enda á vinnu­mark­aði. Það er til fyr­ir­myndar.

Ég myndi vilja sjá meira af kerf­is­bundnum aðgerðum yfir­valda til að bæta stöðu inn­flytj­enda á vinnu­mark­aði líkt og ég þegar nefndi. Sama gildir um aðgerðir í skóla­kerf­inu. Það er veru­legt áhyggju­efni eins og rann­sóknir hafa sýnt, að börn inn­flytj­enda detta út úr fram­halds­skólum í meira mæli en börn Íslend­inga. Aðgerðir til að sporna við þeirri þróun og í átt að raun­veru­legri sam­þætt­ingu inn­flytj­enda og barna þeirra, er fjár­fest­ing sem skilar sér marg­falt.“

Hér má fræð­ast meira um hennar starf hjá Mirru.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum