Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Íslenska Klíníkin í Búdapest: „Við viljum að þetta sé fullkomið“

„Við viljum að þetta sé full­komið“

Zsófia, tann­lækn­ir­inn sem ann­ast blaða­mann, seg­ist sjaldan sjá jafn góðar röntgen­myndir á stof­unni; enda tölu­vert algeng­ara að fólk sem þangað kemur þurfi á meiri lækn­is­þjón­ustu og lag­fær­ingum að halda. Fólk velji yfir­leitt að halda út í slíkar ferðir fyrir stærri með­ferðir og aðgerðir, þótt það sé ekki algilt. Ljóst er að þá borgar þetta sig marg­falt fjár­hags­lega.

Allt lítur vel út á stof­unni. Þar eru stórir gluggar og tækin skín­andi og virð­ast af nýrri gerð­inni. Allt hrein­læti er til fyr­ir­myndar og and­rúms­loftið ein­hvern veg­inn þægi­legt og róandi. Móttaka allra; tann­fræð­inga, tann­læknis, mót­töku­starfs­manna og ráð­gjafa eru með þeim hætti að sú til­finn­ingin að maður sé í öruggum höndum verður alls­ráð­andi. Hér er vel hægt að ímynda sér að mann­eskja með tann­lækna­ótta gæti fundið grið.

Zsófia tann­læknir er mjúk­hent en bæði ákveðin og nákvæm. Það er varla að finna fyrir deyf­ing­ar­nál­inni í hennar höndum og borun og fyll­ingar taka fljótt af. Blaða­manni er tjáð að önnur skemmdin sé „tveggja flata“, það er að hún snerti tvo fleti af tönnum. Að hennar mati hefði mátt gera við hana fyrr, þegar hún var ein­ungis einn flötur. Þrátt fyrir það er ekki um neitt alvar­legt að ræða og Zsófia tekur sér góðan tíma í að slípa fyll­ing­arnar svo eng­inn munur sé á bit­inu. „Hvernig er þetta núna?“ spyr hún og þegar svarið er „Ég held að þetta sé gott svona“, þá spyr hún: „Gott, en ekki full­komið? Við viljum að þetta sé full­komið.“

Zsófia pússar af mik­illi nákvæmni upp agn­ar­lítil brot sem hafa komið í tvær fram­tennur síð­ustu ár. Hún seg­ist sjá það strax af bæði biti og brotum að við­fangs­efnið gnísti tönnum í svefni. Hún ráð­leggur svo­kall­aðan næt­ur­vörð; skinnur á neðri góm­inn sem munu vernda tenn­urnar fram­vegis fyrir hama­gangi næt­ur­innar. Þetta þykir blaða­manni áhuga­vert, sér­stak­lega í ljósi þess að honum hefur aldrei áður verið tjáð að hann sé gníst­ari. Það hefði kannski mátt koma í veg fyrir nokkur brotin.

Dr. Strémen Zsófia að störfum á Íslensku Klíník­inni í Búdapest.

Frískað upp á brosið

Daginn eftir er komið að loka­hnykknum í ann­ars lít­illi og þægi­legri með­ferð blaða­manns. Það mun vera tann­hvíttun að hans eigin beiðni – aðeins til þess að fríska upp á brosið. Það er tann­fræð­ing­ur­inn Erika sem sér um það. Til þess notar hún nýja og flotta Philips Zoom-vél. Ferlið tekur í heild­ina um einn og hálfan til tvo tíma, svo þá er ekki annað að gera en að láta fara vel um sig. Það er reyndar eng­inn vandi hér, ein­hvern veg­inn. Erika upp­lýsir að það sé eðli­legt að finna fyrir ein­hverjum óþæg­indum meðan á með­ferð­inni stendur, eins og tanna­kuli. Þar sem blaða­maður hefur alltaf verið við­kvæmur fyrir slíku býr hann sig undir sting­inn – sem aldrei kemur. Allan tím­ann sem vélin vinnur er ekki að finna nein ein­ustu óþæg­indi og reynslan öll því bara ansi nota­leg – eins nota­leg og hægt er með var­irnar glenntar upp og tæki í munn­inum, að minnsta kosti.

Tennur blaða­manns fyrir með­ferð­ina – eftir að efni hefur verið sett á tann­holdið til að verja það.
Meðan á með­ferð stendur.

Að með­ferð lok­inni eru bæði blaða­maður og Erika hæstá­nægð með árang­ur­inn. Með hvítt­un­inni fást svo sér­sniðnar skinnur og hvítt­un­ar­efni í sprautum til þess að taka með heim og við­halda árangrinum, ef þarf.

Að hvíttun lok­inni. Það er ekki laust við að blaða­maður sé örlítið feim­inn við að hafa stellið svona á glám­bekk.

Það sem var áber­andi á hverju stigi með­ferð­ar­innar var öryggið. Blaða­maður upp­lifði sig ávallt í góðum höndum og gat slakað á. Á öllum stigum var vand­lega útskýrt að ef ein­hverra óþæg­inda yrði vart – eða bara ef sjúk­ling­ur­inn vildi stoppa af ein­hverjum öðrum ástæðum – þyrfti ein­ungis að rétta upp vinstri hönd­ina. Það var eins og örygg­is­orð sem var alltaf hægt að nota og þessi litla regla gerir að verkum að sá sem í stólnum situr upp­lifir sig ávallt við stjórn­völ­inn. Þetta er vel hægt að ímynda sér að það sé afar áhrifa­ríkt fyrir fólk sem af ein­hverjum ástæðum ótt­ast heim­sókn á tann­lækna­stofu.

Lestu meira í nýjasta helg­ar­blaði Mannlífs.

Blaða­maður Mannlífs lagði á dög­unum land undir fót til þess að skoða umhverfi tann­lækn­inga í Búdapest sem og svo­kall­aðar túrista­tann­lækn­ingar. Sífellt fleiri Íslend­ingar leggja leið sína til borg­ar­innar í leit að ódýr­ari tann­lækna­þjón­ustu, einkum og sér í lagi þegar um er að ræða viða­meiri aðgerðir. 

Blaða­manni var boðið út á vegum Íslensku Klíník­ur­innar í Búdapest, stofu í eigu Íslend­inga.

Blaða­maður ein­setur sér að skrifa af fag­mennsku og fjalla af heið­ar­leika um það sem fyrir augu hans bar. 

Fyrsta hluta þess­arar umfjöll­unar um stof­una Íslenska Klíníkin í Búdapest og tann­lækn­ingar þar og hér er að finna í heild sinni í nýjasta helg­ar­blaði Mannlífs. Auk þess er þar meira um tann­með­ferð blaða­manns og spenn­andi við­tal við Oddnýju Jakobs Krist­ín­ar­dóttur, yfir­ráð­gjafa á stof­unni.

Annar hluti þess­arar umfjöll­unar mun birt­ast í næsta blaði Mannlífs sem kemur út í prent­uðu formi á næst­unni. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum