Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Sævar Pétursson býður sig fram til formanns KSÍ: „Málið var allt illa unnið síðasta haust“

Sævar Pétursson býður sig fram til formanns KSÍ: „Málið var allt illa unnið síðasta haust“

„Nei það tel ég ekki, hef gagn­rýnt það áður og hef ekki skipt um skoðun. Málið var allt klaufa­lega og illa unnið síð­asta haust. Þannig að það sé sagt að þá erum við ekki að tala um sitj­andi for­mann heldur þann for­mann sem vék vegna máls­ins,“ segir Sævar Pét­urs­son sem býður sig fram til for­manns KSÍ en líkt og Mannlíf greindi frá í dag þá fer for­manns­kjörið fram í lok mán­að­ar­ins. Sævar var spurður að því hvort núver­andi stjórn hafi tekið rétt á þessum málum sem upp komu varð­andi meint ofbeldi og kyn­ferð­is­brot nokk­urra leik­manna íslenska karla­lands­liðs­ins í knatt­spyrnu.

Sævar hefur haft í nægu að snú­ast und­an­farna daga og situr nú hvern fram­boðs­fund­inn á fætur öðrum um allt land en Mannlíf náði tali af honum nú undir kvöld þar sem hann var á leið­inni á fund í Hvera­gerði.

„Ég var á fundi á Teams þegar þú hringdir áðan og þess vegna skellti ég á þig,“ sagði Sævar og hló þegar blaða­maður spurði hvers vegna sam­bandið hefði slitnað tvisvar sinnum í röð þegar hringt var í hann. Sævar er fæddur á Húsavík, alinn upp á Vopna­firði og Laugum, bjó lengi í Kópa­vog­inum en hefur síð­ustu fimmtán ár búið á Akureyri. Þar hefur hann meðal ann­ars gegnt stöðu fram­kvæmda­stjóra KA við góðan orðstír. Sævar má telja sig ríkan, burt séð frá því hvað efn­is­legar eignir varðar, því hann á fjögur fal­leg börn – þrjá stráka og eina stelpu: „Eig­in­konan mín er svo fædd og upp­alin á Akureyri.“

En að máli mál­anna, líkt og blaða­maður Mannlífs orð­aði það við Sævar nú undir kvöld en það eru tíð­rædd meint kyn­ferð­is­brot nokk­urra leik­manna lands­liðs­ins. Ekki var kom­ist hjá því að spyrja hvort til væru ferlar hjá KSÍ sem tækju á svona málum sem upp kæmu hjá leik­mönnum lands­liða, og í raun ann­arra félags­liða ef út í það er farið. Sævar segir það stóra vanda­málið í þessu öllu: „Það virð­ist ekki vera svo og það er stóra vanda­málið í þessu öllu. Aðilar brugð­ust illa við því verk­ferlar voru ekki til og fóru að vinna í málum sem eiga ekki heima inn í stjórnum eða ráðum hjá íþrótta­hreyf­ing­unni.

„Gríð­ar­lega sorg­legt og ógeð­fellt mál“

Fréttir af knatt­spyrnu­stjörn­unni Mason Greenwood skóku allan heim­inn um dag­inn þegar upp­tökur af honum þar sem hann, að því er virð­ist, vera að nauðga kær­ustu sinni og beita hana ofbeldi.

Spurður út í þessar fréttir og hvort íþrótta­hreyf­ingin þurfi mögu­lega í heild sinni að setja í gang ein­hvers konar for­varnir og fræðslu fyrir unga íþrótta­iðk­endur þegar það kemur að hátt­vísi, innan vallar sem utan segir Sævar: „Þetta er gríð­ar­lega sorg­legt og ógeð­frellt mál. Hvort íþrótta­hreyf­ingin þurfi að bregð­ast við er stór spurn­ing. Við sem sam­fé­lag þurfum að taka á slíkum málum og skiptir þá engu máli hvort þú komir úr íþróttum, atvinnu­lífi eða skólum. Slík hegðun sem þú vísar til er óásætt­an­leg og á ekki að líð­ast í okkar sam­fé­lagi.“

Sævar virð­ist ekki spenntur fyrir því að gagn­rýna mót­fram­bjóð­anda sinn, að minnsta kosti hefur hann ekki gert það í þeim við­tölum sem blaða­maður Mannlífs hefur heyrt við hann tekin. En ef hann er ekki gagn­rýnin á störf Vöndu Sig­ur­geirs­dóttur af hverju er hann þá yfir höfuð að bjóða sig fram? Hann hljóti að telja sig betur til þess fall­inn að stýra sam­band­inu en Vanda?

„Já, mér finnst leið­in­leg póli­tík eða venja að þurfa alltaf að níða skó­inn af þeim aðila sem maður er í sam­keppni við. Vanda er ekki mann­eskja sem á eitt­hvað illt skilið frá mér. Ég hef þekkt hana í mörg ár og ber virð­ingu fyrir henni. Að því sögðu þá get ég á sama tíma haft trú á því að ég geti verið betur til þess fall­inn að stýra KSÍ  en þá á mínum for­sendum en ekki hennar göllum. Það er svipað og í fót­bolt­anum, ég get borið mikla virð­ingu fyrir and­stæð­ingnum en á sama tíma haldið að ég sé betri en hann og unnið bar­átt­una,“ segir Sævar og bætir við að hann sjái fyrir sér starf for­manns KSÍ sem bæði spenn­andi og krefj­andi en á sama tíma mjög skemmti­legt.

Elskar fiski­bollur og heldur með Liverpool

„Ég hef alla tíð haft mikla ástríðu fyrir íþróttum og að fá að leiða knatt­spyrnu­sam­bandið væri frá­bær heiður,“ segir Sævar sem hefur haft gríð­ar­legan áhuga á knatt­spyrnu frá blautu barns­beini.

„Já ég brenn fyrir íslenskan fót­bolta og vil færa fók­us­inn aðeins meira á það sem er verið að gera í félög­unum hérna heima. Það hefur verið aðeins meiri þungi á lands­liðs­málum und­an­farin ár og kannski eðli­lega eftir svona mikla vel­gengni en ég trúi því að slíka vel­gengni komi í upp­hafi frá góðu starfi félag­anna. Þar höfum við aðeins gleymt okkur síð­ustu ár og þar vil ég reyna eftir bestu getu að leggja fleiri lóð á voga­skál­arnar.“

Sævar elskar fiski­bollur og á erfitt með að svara þeirri spurn­ingu með hvaða liði hann heldur í ensku deild­inni en gerir að þó að lokum og hlær: „Nú gæti ég tapað fullt af atkvæðum en mitt lið í enska er Liverpool.“ Spurður hvort hann sé far­inn að leita að hús­næði fyrir fjöl­skyldu sína á höf­uð­borg­ar­svæð­inu þá seg­ist Sævar ekki hugsa lengra í bili en fram á laug­ar­dag, þegar for­manns­kjör KSÍ fer fram.

Sævar og fjöl­skylda

„Fjöl­skyldan styður  mig í þess­ari bar­áttu minni og er öll á bak­við mig. Ég er samt ekki að hugsa mikið lengra en fram á laug­ar­dag. Ef ég verð svo hepp­inn að verða kjör­inn for­maður þá setj­umst við niður sem heild og skipu­leggjum okkur út frá þeirri nið­ur­stöðu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum