Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Bretar hertaka Ísland: „Okkur þykir leiðinlegt að gera þetta ónæði“

Bretar hertaka Ísland: „Okkur þykir leiðinlegt að gera þetta ónæði“
Breskir her­menn á mót­ur­hjólum í Reykja­vík

Aðfara­nótt 10 maí árið 1940 urðu lög­reglu­verðir og aðrir nátt­hrafnar í Reykja­vík, varir við flug­vél sem sveim­aði yfir borg­inni. Stuttu síðar sigldu fjögur bresk her­skip inn sundin og lögð­ust á ytri höfn­ina. Klukkan var fjögur um nótt­ina. Fljót­lega rann upp fyrir fólki ljós. Búið var að her­taka Ísland.

Tíminn sagði frá atburðum næt­ur­innar dag­inn eftir og var ljóst að Ísland yrði aldrei samt. Bret­arnir gengur mjög hratt og hreint til verks og á undra­hraða voru þeir búnir að hand­taka þá þjóð­verja sem þeir náðu í og setja upp varð­stöðvar víða og loka á öll sam­skipti út á við. Fer Tíminn mild­ari höndum um Bretana en miðlar eins og Þjóð­vilj­inn á þessum tíma sem kall­aði her­námið „ger­ræði brezka her­valds­ins.“ Hér fyrir neðan má lesa brot úr frétt Tímans um málið:

„Bretar her­taka Ísland

Enska stjórnin lofar því að láta her­liðið hveria héðan strax og styrj­öld­inni lýkur og
að hafa engin afskipti af inn­an­lands­málum

Stjórn Íslands mót­mælti her­tök­unni

Hinir þýð­ing­ar­miklu og sögu­legu atburðir, sem gerð­ust hér í gær, fóru í aðal­at­riðum fram á þessa leið: Klukkan 3.45 í fyrr­inótt urðu lög­reglu­menn, er á verði voru í Reykja­vík, og bæj­ar­búar, sem enn voru á ferli, varir við flug­vél á sveimi yfir bænum. Litlu síðar sigldu fjögur brezk her­skip hér inn sundin og lögð­ust á ytri höfn­ina klukkan 4. Voru það tvö beiti­skip og tveir tund­ur­spillar. Eftir nokk­urt hring­sól yfir bænum sett­ist flug­vélin í
grennd við her­skipin. Reyndust tvær sjó­flug­vélar vera með í för­inni. Rétt um kl. 5 í gær­morgun sigldi annar tund­ur­spillir­inn inn á innri höfn­ina og lagð­ist við hafn­ar­bakk­ann framan við skipa­af­greiðsl­urnar. Stigu þá af skips­fjöl all­margir smá­flokkar her­manna, er þegar dreifð­ust um bæinn. Tóku þeir sér varð­stöðu við ýmsar bygg­ingar og á gatna­mótum. Brezku ræð­is­menn­irnir hér tóku á móti her­lið­inu við land­göngu­brúna.

Fáliðuð sveit her­manna, um 25 manns, tók bústað þýzka ræð­is­manns­ins við Túngötu þegar á sitt vald, en fólk það, er þar var, til fanga. Var ræð­is­mað­ur­inn og fjöl­skylda hans og starfs­lið flutt á skips­fjöl siðar um morg­un­inn. Áður en brezku her­menn­irnir réð­ust til inn­göngu í ræð­is­manns­bú­stað­inn höfðu þeir nokkurn við­búnað úti fyrir. Þykir lík­legt, að ræð­is­mann­inum hafi, meðan á þessu stóð, unnizt tími til að eyði­leggja plögg og skjöl, er hið þýzka starfs­lið ógjarna vildi láta falla í hendur óvin­anna, því að vart varð reykjar í einni stofu bústað­ar­ins. Fyr­ver­andi aðal­ræð­is­maður Breta hér var í för með löndum sínum við töku bústað­ar­ins. Að lok­inni her­töku húss­ins komu Eng­lend­ingar fyrir sendi­tækjum í garð­inum úti fyrir og héldu um hríð stöð­ugu skeyta­sam­bandi við her­skipin. Einka­bif­reið þýzka ræð­is­manns­ins stóð í fyrri nótt á Tún­göt­unni móts við Landa­kots­spít­alahn. Stóð hún þar óhreyfð í allan gær­dag. En í gær­kvöldi seint komu enskir her­menn, tóku hana og óku henni brott. Þá réð­ust her­flokkar til inn­göngu í þau gisti­hús bæj­ar­ins, er Þjóð­verjar bjuggu í, svo sem Herkast­al­ann, Hótel Heklu og Hótel Ísland. Voru hinir þýzku menn, er þar fund­ust, teknir til fanga og fluttir niður á hafn­ar­bakka, og síðan í annað beiti­skipið.
Margir Þjóð­verjar voru hand­teknir ann­ars staðar í bænum, flestir á heim­ilum sínum eða
dval­ar­stöðum, en nokkrir ann­ars staðar, þar sem þeir höfðu leitað sér, hælis eða jafn­vel
freistað und­an­komu. Var öðru hvoru um morg­un­inn verið að koma með slíka fanga á vöru­bílum niður á hafn­ar­bakka. Einn Þjóð­verja tóku Bretar til dæmis höndum austur í Svína­hrauni, og mjög fljótt eftir land­göngu fyrstu lið­sveit­anna voru bif­reiðar sendar austur að Litla Hrauni að sækja þýzka menn, er þar voru í haldi.

Við töku gisti­hús­anna við­höfðu brezku her­menn­irnir ýmsar var­úð­ar­ráð­staf­anir, komu vél­byssum fyrir í grennd við þau, eins og þeir byggjust við mót­spyrnu, og biðu þess albúnir að hefja skot­hríð, ef til þyrfti að taka. Borið mun það hafa við að Íslend­ingar, er bjuggu á þeim gisti­húsum, þar sem Þjóð­verjarnir voru flestir, væri einnig teknir höndum og fluttir niður á hafn­ar­bakka. En er við nán­ari eft­ir­grennslan kom í ljós að um Íslend­inga var að ræða, voru  þeir látnir lausir og beðnir afsök­unar á óþæg­ind­unum, er þeim voru bökuð.
Þjóð­verjar þeir, sem hand­teknir voru, munu hafa skipt hund­ruðum, enda mun í þeim hópi hafa verið nær allir þýzkir menn, er hér voru. Örfáir Þjóð­verjar munu þó hafa sloppið hjá
hand­töku. Land­síma­húsið var brotið upp af brezkum her­mönnum nálægt kl. 5.15 og tóku þeir þar aðsetur í afgreiðslu­söl­unum og var fáum eða engum Íslend­ingum leyft að koma í húsið, útvarp sim­töl og skeyta­send­ingar út úr bænum bann­aðar. Símtöl inn­an­bæjar
leyfð. Kl. 3 í gær­dag var starfs­fólki leyfður aðgangur að síma­stöð­inni og síma­sam­band komst á um allt land. Um sama leyti voru sal­ar­kynni útvarps­ins einnig fengin í hendur starfs­liði þess. Við allar benzíngeymslur og olíu­stöðvar voru varð­menn skip­aðir og einnig var póst­húsið þegar tekið á vald her­sveit­anna. Hafn­ar­húsið var gert að bráða­birgða­bæki­stöð land­göngu­liðs­ins. Hótel Ísland var tekið í þágu hjúkr­un­ar­sveita, er á land voru settar, og flutt þangað hjúkr­un­ar­tæki ýmis­konar, sjúkra­börur, lyf og annað þess háttar. Síðar um dag­inn flutti hjúkr­un­ar­liðið bæki­stöðvar sínar í íþrótta­hús f. R. við Túngötu. Við loft­skeyta­stöð­ina var einnig sett her­lið. Hingað og þangað um bæinn
voru her­menn á verði við ýms götu­horn og höfn­ina. Öll umferð út úr bænum var skjót­lega
bönnuð í nokkrar klukku­stundir og fámennar sveitir tóku sér varð­stöðu á Hafn­ar­jarð­ar­veg­inum utan í háls­inum, skammt sunnan við Foss­vogs­brúna, og á Suð­ur­lands­braut­inni á Elliða­ár­brú. Var þar grannur kað­all með rauðu merki strengdur yfir brúna, en her­menn gættu. Einnig var varð­lið sett við flug­skýlið í Vatna­görðum og umferð bönnuð um braut­ina niður að skýl­inu. Eftir fáar stundir var bif­reiða­um­ferð leyfð um veg­ina út frá Reykja­vík, en brezkir varð­menn höfðu gát á ferðum manna, aðgættu fólk og far­angur í bif­reiðum og við­höfðu svip­aða varúð, sem von gæti verið óvina. Er á dag­inn leið, varð þó eft­ir­lit varð­manna ekki jafn strangt.

Undir eins og hinar fyrstu her­sveitir voru stignar á land, var ávarp frá yfir­for­ingja her­leið­ang­urs fest upp á ýmsum stöðum í bænum og úthlutað meðal veg­far­enda. Ávarp þetta eða til­kynn­ing hljóð­aði svo, orð­rétt og staf­rétt:“

Tíminn birti svo til­kynn­ingu Breta í heild sinni en athygli vekur hversu kurt­eisi Bretinn er og ætti það svo sem ekki að koma neinum á óvart, þeim sem þekkja til þjóð­ar­innar. Hér má lesa til­kynn­ing­una:

„TILKYNNING.
Brezkur her­líðs­afli er kom­inn snemma í dag á her­skipum og er núna í borg­inni. Þessar rádstaf­anir hafa verið gerðar bara til þess að taka sem fyrst nokkrar stöður og að verða á undan Þjóð­verjum. Við Eng­lend­ingar ætlum að gera ekk­ert á móti Íslenzku lands­stjórn­inni og Íslenska fólk­inu, en við viljum verja Íslandi örlög, sem Danmörk og Norvegur urðu fyrir.
Þess­vegna biðjum við yður að fá okkur vin­sam­legar við­tökur og að hjálpa okkur. Á meðan við erum að fást við Þ0jóð­verja, sem eru búsettir í Reykja­vík eða ann­ar­staðar á Íslandi, verður um stundar sakir bannað
(1) að útvarpa, að senda sím­skeyti, að fá sím­töl.
(2) að koma inn í borg­ina eða að fara út úr henni fyr nokkra kluk­k­an­tíma.

Okkur þykir leið­in­legt að gera þetta ónæði; við biðj­umst afsök­unar á því og vonum að það
end­ist sem fyrst.
R. G. STURGIS, yfir­for­ingi“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum