Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Háskólanemi hvarf sporlaust: „Hingað fara þeir allir sem fyrirfara sér“

Háskólanemi hvarf sporlaust: „Hingað fara þeir allir sem fyrirfara sér“

Þann 26. mars árið 1972 hvarf háskóla­nem­inn Sverrir Krist­ins­son spor­laust, ekk­ert hefur spurst til hans síðan.

Sverir var 22 ára og stund­aði nám raun­vís­inda­deild Háskóla Íslands. Hann bjó í Nýja Garði í Reykja­vík en þar var heima­vist fyrir háskóla­nema. Auk náms­ins var hann gít­ar­leik­ari og spil­aði meðal ann­ars með hljóm­sveit­unum Yoga og Blóm Afþökkuð.

Það var um páska sem Sverrir sást síð­ast en þá hugð­ist hann verja fyrri­hluta páska­frís­ins í að læra undir próf, síðar ætl­aði hann á Reykja­nesið til fjöl­skyldu sinnar og njóta frís­ins þar.

Að kvöldi Pálma­sunnu­dags, þann 26 mars 1972, fór hann með kunn­ingjum sínum að skemmta sér á stað sem hét þá Klúbb­ur­inn og var við Borg­ar­tún í Reykja­vík. Sverrir var tölu­vert ölv­aður þegar hann kvaddi vini sína og fór heim með leigu­bíl. Leigu­bíls­stjór­inn sagði Sverri hafa verið í vand­ræðum með að skrifa ávísun sökum ölv­unar og gerðu þeir þá sam­komu­lag sín á milli um að hann kæmi á leigu­bíla­stöð­ina dag­inn eftir og greiddi fyrir farið.

Þegar á heima­vist­ina var komið hitti hann kunn­ingja­konu sína en hún sagð­ist ekki hafa séð á Sverri að hann væri ölv­aður, því var mikið mis­ræmi í frá­sögnum kon­unnar og leigu­bíls­stjór­ans. Konan heyrði síðar um kvöldið í mönnum fyrir utan her­bergi Sverris, hann fer með mönn­unum út af vist­inni og var þetta í síð­asta sinn sem vitað var um ferðir hans.

Þegar Sverir skil­aði sér ekki á Reykja­nesið á til­teknum tíma var fjöl­skylda hans farin að hafa áhyggjur og leit­uðu til lög­reglu, stuttu síðar var hafin umfangs­mikil leit en aldrei skil­aði hún neinu.

Þegar bróðir Sverris hafði sam­band við lög­reglu til að athuga með rann­sókn­ina til­kynnti lög­reglu­maður honum að hann vissi vel hvar Sverrir væri og sagð­ist ætla að sýna honum það. Ók hann þá með hann að rusla­haug­unum í Gufunesi og sagði honum að þarna gæti hann fundið bróður sinn: „Hingað fara þeir allir sem fyr­ir­fara sér.“

Engin ummerki voru þó á haug­unum og sagði lög­reglu­mað­ur­inn að þeir gætu þá ekk­ert gert.

Fjöl­skylda Sverris fór fram á að fingraför yrðu tekin af vín­glösum sem fund­ust í her­bergi Sverris en það var aldrei gert.

Lög­reglan leit­aði Sverris í Norræna hús­inu en eftir að for­stöðu­maður húss­ins svipti sig lífi þremur vikum eftir hvarfið fór af stað orðrómur um að hún hafi ekið á Sverri og falið lík hans undir kjall­ara húss­ins, ekk­ert fannst þó þar.

Fjöl­skylda Sverris gagn­rýndi störf lög­reglu við málið og fannst rann­sóknin fara fram með óskipu­lögðum hætti, aldrei var kom­ist að því hverjir menn­irnir sem Sverrir hitti kvöldið sem hann hvarf, auk þess fund­ust engar vís­bend­ingar sem gætu útskýrt hvarf hans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum